Vísir - 14.06.1965, Síða 1
VÍSIR
Trausti Gestsson í brúarglugga Guðbjörn Þorsteinsson í brúnni
Snæfellsins. á Þorsteini.
,
Landað úr metaflaskipinu Þorsteini £ Krossanesverksmiðjuna. Myndimar hér á síðunni frá Krossa- K
nesi tók Sigurbjörn Bjarnason um helgina.
Aðfaranótt sunnudagsins var
mesta veiði, það sem af er
þessari sumarsíldarvertíð. 53
skip fengu 65.750 mál. 1 nótt
var einnig gott veður á miðun-
um, en veiðin tregari og hafði
veiðisvæðið færzt lítið eitt fjær
landi. 27 skip voru þá með
30.270 mál.
Guðbjöm Þorsteinsson fékk
fyrsta afla sumarsins og er enn
í fararbroddi. Aflakóngssætinu
deilir hann með Tryggva Gunn-
arssyni á Sigurði Bjamasyni, og
eru þeir nú komnir með um
10.500 mál hvor. Hásetahlutur á
þessum tveimur bátum er þegar
kominn upp £105 þúsund krón-
ur, þótt verti'ðin sé varla byrjuð
enn.
Guðbjöm sagðist hafa verið
með eins mikinn afla um borð
og hann þyrði að hafa, 1800
mál. Þenha’n 'áflá fékk hann i
4 Köstum á 10 stundum. Alltaf
var nóg af torfum. þegar búið
var að háfa eina, og fóru strák-
amir aldrei niður þessar 10
stundir.
— Við komum hingað m. a.
vegna þess, að við vorum að
skipta um menn £ frf. Það eru
nú 15 menn á bátnum f stað 13
áður, en af þeim eru alltaf tveir
£ fríi. Þessi nýjung er nú að
breiðast út á flotanum.
Trausti Gestsson á Snæfellinu
var með 1300 mál, sem hann
fékk í einu kasti. Hann sagði,
að það væri gott að vera á gang
skipum, þegar siglingin er orð-
in 30 stundir, eins og hún var
£ þessu tilfelli. Snæfellið er nú
komið með 8.700 mál, en það
missti úr nokkra daga vegna
viðgerðar.
Magnús Guðmundsson á Jör-
undi III, sem kom inn með
2300 mál var mjög ánægður með
ganginn. Hins vegar sagðist
hann vilja gagnrýna, að þeir
sem stjómuðu málum verk-
smiðjanna £ landi, virtust ekkert
læra með árunum. Ár éftir ár
gætu þeir ekki komið verksmiðj
unum í gang um leið og vertið-
in hefst.
Fréttaritari Visis á Akureyri
spjallaði um helgina við þrjá
aflaskipstjöra, sem lönduðu i
Krossanesi, og forvitnaðist hjá
þeim um veiði. Þetta voru Guð-
bjöm Þorsteinsson á Þorsteini,
Trausti Gestsson á Snæfellinu
og Magnús Guðmundsson á Jör-
undi III, en hann kom inn með
drekkhlaðinn bátinn, — 2300
mál um borð.
410 ÞÚS. MÁL K0MIN Á LAND
KI. 7 í morgun voru komin
um 410 þús. mál af sild á land.
Á sama tima í fyrra vora kom-
in á land 154,262 mál og tunn-
ur eða rúmur þriðjungur þess
sem nú er komið á Iand.
Allar síldarþrær á Austur-
landi eru fullar og sigla því bát
arnir að mestu leyti til Norður
landshafna. Til Siglufjarðar hef
ur aldrei komið síld eins
snemma og nú. Fyrsta síldin
barst þangað hinn 8. júní, en
áður hafði síld fyrst borizt
þangað 16. júní. Þangað hafa
nú borizt 65 þús. mál, 40 þús.
til S.R. og 25 þús. til Rauðku.
Fréttaritari Vísis á Akureyri
símaði í morgun, að líflegt
væri í Krossanesi þessa dag-
ana Þar hefði verið landað 35
þús. málum og allt þróarrými
væri orðið fullt. Til þess að
bjarga málunum hafði síldar-
söltunarplanið fyrir sunnan
verksmiðjuna verið tekið undir
sítdargeymslu og slegið upp
þili í kringum það. Verksmiðj-
an afkastar aðeins 2200 málum
á sólarhring ,eða afla hálfs ann
ars báts, svo að hún hefur úr
nógu að vinna næstu vikurnar.
Verksmiðjan á Hjalteyr; fór
í gang á laugardaginn og fóru
skipin að streyma til hennajr.
Sú verksmiðja hefur mun meir’i
afköst en Krossanesið og verð-
ur til að létta mikið á löndun-
arerfiðleikunum í Eyjafirði.
Til Raufarhafnar hafa borizt
60 þús. mál og eru allar þrær
þar fullar. Bræðslan á Raufar-
höfn hefur ekki enn hafið
bræðslu, en það stendur til að
hún hefji starfsenji á morgun.
Á Austurlandi er byrjað að
bræða á Vopnafirði, Borgar-
firði, Neskaupstað, Eskifirði,
Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði,
en þessar stöðvar hafa hvergi
nærri undan. Á Seyðisfirði
munu 2 verksmiðjur bræða í
sumar, en hvorug þeirra hefur
enn hafið starfsemi. S. R. á
Seyðisfirði mun taka til starfa
í vikunni, en hin, Hafsíld, mun
að líkindum ekki geta hafið
bræðslu fyrr en eftir mánuð.
Laugarvotnsstúdentar
komnir með hvítu kollana
Fyrsta röð: Jóhann Hannesson skólameistari, Þorgerður Guðfinnsdóttir, Þorbjörg Einarsdóttir, Sigríður
Gunnarsdóttir. Önnur röð: Eirikur Karlsson, Magnús Kristjánss., Úlfar Tlioroddsen, Jens Jensson, Ólafur
Bjarnason, Skúli Magnússon^ Páll Imsland, Vilhjálmur Þorsteinsson. Þriðja röð: Sigurður Hjaltason, Eirik-
ur Guðnason, Ingi Sigurðsson, Sævar Lýðsson, Vésteinn Eiriksson, Loftur Þorsteinsson, Magnús Torfa-
son, Fjórða röð: Valur Helgason, Sigurður Kr. Pétursson^ Guðni Kolbeinsson, Ásgeir Gunnarsson, Bjarni
Jónsson, Jón Kristinsson. Fimmta röð: Sigþór Pétursson, Sigurjón Mýrdal, Viðar Ölsen, Carll Mooney,
Sveinn Torfi Þórólfsson.
Menntaskólanum að Laugar-
vatni var slitið í gær kl. 2 síð-
degis I hátíðarsal skólans að við
stöddu fjölmenni. Jóhann Hann
esson skólameistari afhenti ný-
stúdentum prófskírteini og
veitti verðlaun og viðurkenn-
ingar fyrir afrek og hugprýði.
Alls voru brautskráðir 29 stúd-
entar, 13 í máladeild og 16 í
stærðfræðideild. Hæstu eink-
unn 9.38 hlaut Ingi Sigurðsson
Reykjum í Lundareykjadal (úr
málad.) Hæstu einkunn í stærð
fræðideild 1. ágætiseinkunn
9.15 hlaut Ólafur Bjarnason frá
Króki í Ölfusi.