Vísir - 02.10.1965, Qupperneq 5
V1SIR . Laugardagur 2. október 1965.
Hvor verður Iskmdsmeistari
- AKRANES eða KR?
:
© Á morgun fást úrslitin loks í 1. deild, — þ. e.
ef Akranes og KR skilja ekki jöfn að leik lokn-
um, en það getur vitanlega gerzt, enda þótt
framlengt verði ef jafntefli verður að loknum
rétta leiktímanum.
© KR er frægt fyrir „heppni“ sína í úrslitaleikj-
um. Er það annars heppni hve vel KR gengur
oft í úrslitaleikjum? Líklega ekki. Það er senni-
lega sigurviljinn hjá KR-liðunum, sem er þess
valdandi að oft gengur vel á úrslitastundu.
Akranes hefur tvívegis unnið
KR í sumar, i báðum leikjum
sinum 1 1. deildarkeppninni. KR
virðist ekki ganga sem bezt að
ráða við Akranes.
Laugardalsvöllurinn er að
visu helmavöllur KR í 1. deild,
en það má raunar segja að
Akranesliðið sé fullt eins hag-
vant þar. Liðið hefur alltaf leik
ið vel í Reykjavik og virðist
það ekki há liðinu hið minnsta
að leika hér.
Ríkharður Jónsson mun stýra
liði sinu i Laugardal á morgun.
Hann er kominn heim aftur úr
stuttu skemmti'ferðalagi til Dan-
merkur. Fyrirliði KR er Eliert
Schram.
Leikurinn hefst kl. 15 á morg-
Úrslit í meira en einum skilningi
Leikurinn á morgun er úrslitaleikur f meira en einum skilningi. Frá
því 1. deild byrjaði fyrir 11 árum hafa liðin verið mjög jöfn, og I
ef Akranes vinnur um heigina, eru liðin jöfn að stigum og leikj-
um, en Akranes hefur þá skorað fleiri mörk, Staðan er þessi:
Rikharður og Eyleifur eru beittir sóknarmenn og skora flest
marka Akraness.
KR 1Á ” 90 53 21 16 254:117 127st.
90 56- 13 —21— '254:139 -T25“St.
Valur 90 39 20 31 173:170 98 st.
Fram 90 28 22 40 136:163 78 st
ÍBK 55 17 12 26 96:120 46 st.
ÍBA 60 19 8 33 107:145 46 st.
Þróttur 25 2 5 18 25:88 9 st.
ÍBH 20 1 4 15 17:62 6 st.
Víkingur 10 2 0 8 15:39 4 st.
ÍBl 10 0 1 9 2:26 1 st.
HÖRÐUR FELIXSON — einn
styrkasti hlekkur varnarinnar
hjá KR er aftur með liði sínu
eftir nokkurt hlé.
un. Búast má við miklu fjöl-
menni á vellinum og er fólki
ráðlagt að koma snemma til að
missa ekki af Ieiknum, því mikil
þröng vill verða við aðgöngu-
miðasölurnar síðustu mínútum-
ar fyrir leik. Þannig komust
margir ekld inn á völlinn um síð
ustu helgi fyrr en 15—20 mín.
eftir að leikur hófst.
utlönd í Tiopgim útlönd í itibrgun • útlönd í itiorgun ' útlönd ;í morgun
Lokatilraun til
samkomulags um
siálfstæði Rhodesiu
í næstu viku hefst í London fund
ur brezkra ráðherra og ráðherra
frá Rhodesiu til þess að ræða sjálf
stæði hennar. Af hálfu Iains Smiths
forsætisráðherra Rhodesiu er tekið
fram, að þar sem dregizt hafi í
2 ár að ná samkomulagi um sjálf-
stæði landsins verði að ganga frá
málinu nú, það þoli ekki frekari
bið, að það fái ekki afgreiðslu.
Dómsmálaráðherra Rhodesiu
kemur með Iain Smith til London,
sennilega á mánudag, en fyrir eru
tveir ráðherrar frá Rhodesiu, ný-
lega komnir þangað.
Wilson forsætisráðherra og Bott
omley samveldismáiaráðherra hafa
rætt Rhodesiumálið að undanförnu
sín í milli og er það von þeirra, að
samkomulag náist. — Stjórnmála-
fréttaritari Brezka útvarpsins seg
ir það óbreytta skoðun þeirra, að
þróunin verði að halda áfram í
átt að því marki að meiri hluti
landsmanna verði ráðandi í land-
inu, og sú þróun megi ekki taka
óeðlilega langan tíma. Telja þeir
það sem áður ögrandi og byiting-
arkennda ákvörðun, ef Rhodesíu-
stjórn birti einhliða yfirlýsingu um
sjálfstæði.
33 þingmenn úr flokki brezkra
krata hafa lýst yfir, að þeir vilji
refsiaðgerðir gegn Rhodesiu ef slík
yfirlýsing kæmi fram, og ef þær
dygðu ekki yrðu Sameinuðu þjóð-
irnar að beita valdi sínu.
Vafalaust er, að Afrikuþjóðir
muni leggja málið fyrir Sameinuðu
þjóðirnar.
Portúgalsstjórn hefir tilkynnt
brezku stjórninni sem var við fyr-
irspurn frá henni, að hún sé henni
sammála um, að fulltrúi Rhodesiu
f Lissabon sé ekki sendiherra, þar
sem Rhodesia sé ekki sjálfstætt
Rusk og Gromiko
á nýjum fundi
Iain Smith
land. Hins vegar sé fyllilega rétt
mætt að Rhodesia hafi sérstakan
fulltrúa í Lissabon, vegna náins
samstarfs og tengsla Rhodesiu og
portúgölsku nýlendnanna í Austur-
Afrfku.
Ný innflytjenda-
lög í USA
Báðar deildir þjóðþings Banda-
ríkjanna hafa nú samxykkt frum-
varp Johnsons forseta um innflutn
ing fólks
Með því er kvótakerfi fyrri laga
afnumið, en nú verður leyfður inn
flutningur 170.000 manns árlega —
án tillits t’il þjóðernis.
Andrei Gromiko utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna’ hafði boð inni
í gær fyrir Dean Rusk utanríkis-
íráðherra Bandaríkjanna og gafst
: þeim þá taékifæri til þess að halda
áfram viðræðum sínum um heims-
; vandamálin, kjamorkuvopn, hversu
ihindra megi útbreiðslu þeirra og
j Kashmirdeiiuna — , en Vietnam
ræddu þeir ekki á fyrri fundinum,
sem var fyrir tveimur dögum.
Bilið er breitt milli þeirra í Viet
nammálinu, en í Öryggisráðinu
hefir samstarfsvilji komið í Ijós í
Kashmirmálinu.
Meðal næstu ræðumanna á Alls
herjarþinginu í gær var Per Hække
rup utanrfkisráðherra Danmerkur.
Aðild Kfna að Sameinuðu þjóð
unum mun ekki verða rædd fyrr en
þá undir lok þingsins þar sem au
ríki sem styðja aðildina vilja bíða
átektar fram yfir fyrirhugaðan topp
fund Asíu- og Afríkuþjóða í Algeirs
borg í nóvember næstkomandi.
Fllefu lönd standa að tillögu um að-
} ild Kína. Fulltrúi Albaníu sagði f
}gær í ræðu. að víkja ætti Fomósu
stjórninni úr sæti Kína og láta Pek
'ingstjómina fá sessinn. Oft er litið
á fulltrúa Albaníu hjá Sameinuðu
þjóðunum sem málpípu Peking-
stjómar.
200 þús. her-
menn í Suður-
Vietnum
Bandaríkin munu innan árs hafa
200.000 manna her í Suður-Viet-
man. \
McNamara landvarnaráðherra til
kynnti í gær, að lið yrði sent til
Suður-Vietnam eftir þörfum. Banda
ríkjamenn hafa þar nú 130,000
manna lið.
Bandaríski skriffinnurinn Walter
Lippmann sagði nýlega, að Banda-
rfkin yrðu að senda eina milljón
hermanna til Suður-Vietnam ef það
ætti að takast, að ráða niðurlögum
Vietcong.
■■,
I
....