Vísir - 06.11.1965, Page 9
VlSIR . Laugardagur 6. nóvember 1965.
1
Hún er ung, tvítug að aldri, frekar smávaxin
og hýr og situr inni í stofunni heima hjá sér með
sjal um herðarnar. Valgerður Dan dóttir Jóns
Dan ríkisféhirðis og konu hans Halldóru Eh'as-
dóttur.
,Það er ekki nóg að
sýna sig á sviðinu
og fá góða dóma“
— Ég er að reyna að halda á
mér hita, segir Valgerður um
leið og blaðamaður tekur sér
sæti, — taugaæsingurinn og
spenningurinn hafa haft sín á-
hrif á mig. Stundin er um miðj-
an dag nokkrum dögum eftir
frumsýningu á leikriti Jökuls
Jakobssonar, „Sjóleiðin til Bagd
ad“,. Sama kvöld var önnur sýn
ing leiksins, en Valgerður fékk
óvenjugóða dóma gagnrýnend-
anna fyrir leik sinn í hlutverki
Hildar.
— Hvernig varð þér við að fá
svona góða dóma í blöðunum
Valgerður, er það gott eða
slæmt fyrir byrjandann?
— Ég held að það geti verið
bæði gott og slæmt að fá slíka
dóma að því leytinu til að það
getur hjálpað mér að vissu leyti
á framabfautinni, en slæmt
fyrir sjálfa mig, — þó held ég
ekki. En mér þykir vænt um ef
fólk trúir á mig.
— Hvernig líður þér á svið-
inu, hafa Ieikdómamir haft
nokkur áhrif á það?
— Þrátt fyrir leikdómana er
ég miklu taugaóstyrkari, fólk
býzt þá við meiru. Ég er ,nervös‘
í öllu, það er sama hvað það
er, en það kemur ekki fram,
ég held að fólk sjái það ekki á
mér. Við erum búin að taka
okkur stöðu áður en tjaldið er
dregið frá og það hjálpaði mér
mikið á frumsýningunni að í
tíu mínútur þarf ég ekkert að
segja. Maður getur vanizt við
salinn og gleymir því einhvern-
veginn að það sé fólk í salnum.
— Er verra að hafa fullan sal
af áhorfendum en að leika á
æfingu?
— Það er betra að hafa fólk,
— það er afskaplega gott, ég
veit eiginlega ekki hvemig ég á
að útskýra það, en það kemur
öðruvísi tilfinning yfir mann.
Áhorfendur hjálpa i einstaka
atriðum, bara með þögninni. í
einu atriði leiksins kemur
augnablik þar sem fólk bara bíð
ur, það býzt við einhverju spenn
andi og þá verður að stand-
ast þessa kröfu. maður finnur
hvernig fólkinu líður og spenn-
ingur og nervösitet hjálpar til
þess að maður geri sitt bezta.
Þá hjálpar það til að vita að
einhver horfir á og vill að mað-
ur geri vel.
— Og hvernig byrjaði þetta
allt saman?
— Þetta er einhver draumur,
sem ég hef gengið með í kollin-
um frá því að ég var lítil.
hef fengið að fylgjast með æf-
ingum og þeir hafa gefið mér
tækifaéri til þess að vera með .. .
— Hvemig?
— Ég tók við af annarri skvís
unni í Hart í bak en ég byrjaði á
því að hvísla í Eðlisfræðingun-
um, svo er ég statisti í gömlu
konunni og fékk að vera við-
stödd æfingarnar hljóp snún-
inga. Ég hafði líka smáhlutverk
í fyrsta þætti i Þjófar, lík og
falar konur og lék sendiboða í
Rómeó og Júlíu.
Ég var líka með í barnaleikrit
inu Almansor konungsson, lék
þar svífandi dís. Svo var afskap
lega gaman að vinna mitt hlut
verk, sem Hildur.
— Hefurðu alveg helgað þig
leiklistamáminu eða stundaðirðu
vinnu samhliða?
— Ég vann hjá Samvinnu-
tryggingum með náminu en
hætti öðru hvoru t. d. fór ég
Valgerður Dan.
þáff viljastyrk- til; ‘það er ekki
nóg að- sýnfftsia-á;4«iðijiu--oe fi->
góða dóma, það liggur vinna á
bak við.
— Skólaganga þín i Englandi
var hún í sambandi við leiklist-
ina?
— Nei, ég fór til að læra
ensku en ég fékk að koma á æf
ingar og- sá sýningar leiklistar
grúppu, sem tók fyrir nýtt verk
Talað viö Valgeröi Dan, unga leikkonu
— Aðeins draumur?
— Ef til vill löngun til þess
að tjá sig.
— Þú laukst prófi frá Leik
listaskóla L. R. í vor, eftir
þriggja ára nám er það nógur
grundvöllur til að byggja á?
— Það er nauðsynlegur grund
völlur og svo er leikhúsið sjálft
nauðsynlegt. Það er hægt að
læra langmest á því að fylgjast
með í leikhúslifinu sjálfu. Eftir
áramót hef ég verið nærri á
hverju kvöldi niður í Iðnó. Ég
út í fyrrasumar og var á skóla
í Englandi svo hætti ég þar
alveg í janúar, þegar ég fór að
undirbúa mig undir prófið.
— Hvernig fór atvinnan og
listin saman?
— Já, það varð annað hvort
að koma niður á leiklistinni eða
vinnunni og ég er hrædd um að
það hafi komið niður á vinnuni.
— Var þetta erfitt?
Ég ráðlegg engum að fara
út í þltta — og þó, ég get
kannski ekki sagt það, en það •
efni vikulega. Það var unnið allt
örðu Vísi þarna en hér tíðkast,
fyrsta daginn er leikritið lesið
saman, annan daginn verða leik
aramir að kunna fyrsta þátt,
þriðja daginn þann næsta og í
vikulokin á að vera búið að æfa
leikritið hafa það tilbúið
undir flutning bar sem það er
sett upp um leið og leikararnir
kunna textajm.
— Hefurðu kynnt þér leiklist
víðar erlénd.is?
— Ég. var. í Londqn í sumar,
í ellefu daga, fór þangað ein-
g göngu til þess að fara í leikhús.
— Og lærðirðu á því?
— Maður lærir absolút á sýn
ingum, það kemur mér ekki að
gagni strax en situi ' mér. Það
var geysilega gaman að fara.
— Það er ef til vill erfitt að
tala um nokra leikhúshefð hér
á landi leiklístin er ekki það
mosagróin en finnst þér ekki, að
sumt mætti vera öðruvísi í leik-
húslífinu? 1
— Jú, kannski en það þýðir
ekki að fleygja því gamla og
fá eitthvað nýtt í staðinn, ekki
alveg, en það þýðir auðvitað
ekki að hjakka alltaf í sama Jar
inu.
— Þú hefur væntanlega ein-
hverj- framtíðaráætlanir, er
það leiklistin og ekkert annað?
— Æðsti draumur minn er
að það geti orðið, en maður veit
aldrei hvað getur komið fyrir.
Það væri gaman að geta í fram
tíðinni sýnt öllu þessu fólki, sem
kemur í leikhús, leiklistina eins
og ég get sannast og bezt túlk
að hana.
- S.
Undanjiáguástand í Rhodesiu
innanlandsfriði til
Tyrkneskur hersveitir til-
búnar nð fnrn til Kýpur
Frétt frá Salisbury árdegis í gær
hermdi, að lýst hefði verið yfir
undanþágdástandi í landinu, en það
er hemaðarástand að vissu marki.
Tilkynningin um þetta var birt
aðeins nokkrum mínútum eftir að
Ian Smith forsætisráðherra kom
af stjórnarfundi.
Hann neitaði að láta nokkrar
upplýsingar í té um það hvort birt
yrði einhliða yfirlýsing um sjálf
stæði, en svar Rhodesíustjórnar við
seinustu tillögum Breta væri á leið
til Lundúna.
Tilkynnt er, að undanþáguástandi
hafj verið lýst yfir til öryggis lög
um og regju í landinu, þar sem til
raunir kunni að verða gerðar til
þess að spilla friðnum 'Undan-
þáguástandið á að gilda
uði
3 mán-
Kongó-ríkin skipt-
nst á sendiherrum
Kongólýðveldið (fyrr Franska
Kongó) og Kongó hafa gert með
sér samkomulag um að skiptast á
sendihe.rriim (amþassadorum).
Fréttir frá Tyrklandi herma, að
herdeildir séu hafðar reiðubúnar
vegna þess að horfur á Kýpur hafi
versnað. Er þess krafizt, að Kýpur-
Grikkir hörfi úr þeim stöðvum, sem
þeir hafi tekið seinustu daga.
Frá 29. október hafa orðið nokkr
ir alvarlegir árekstrar í Famagusta
hafnarbæ á Kýpur, og einn Kýpur-
Tyrki beðið bana óg nokkrir særzt.
Leiddi þetta til þess að fulltrúi
Tyrkja hjá Sþ krafðist þess að
Öryggisráðið kæmi saman til
skyndifundar, sem hófst í gærkvöld.
Sænskir flokkar úr friðargæzlulið
inu voru þá komnir til FamagUsta
til þess að stilla til friðar.
Aidit „veiddur
í gildru?"
Frétt barst um það í gær frá
Jakarta, að Aidit, sem fjölmennar
hersveitir hafa leitað að nú að
undanförnu á Mið-Jövu hafi verið
„veiddur í gildru“, þ.e. felustaður
hans fundinn og umkringdur.
Ekki höfðu þó enn borizt fréttir
um handtöku hans. •