Vísir - 01.06.1966, Síða 3

Vísir - 01.06.1966, Síða 3
 ||gg|§| < , <■> illi - •"CKIWIIIi ■***«»'■ Leituðu að 2 týndum flugvélum á Snæfellsnesi VÍSIR . Miðvikudar'ir 1. úíní 19G6. björgunar og leitartækja. Slysavarnafélagið í Reykja- vík hefur venjulega meiriháttar æfingar vor og haust. Að þessu sinni var ákveðið að hafa vor- æfingamar með sveitunum vest ur á Snæfellsnesi til þess að kynna starf björgunarsveitar- innar í Reykjavík og efla áhuga á slysavömum úti á landi. Þátttakendumir að sunnan fóru vestur á föstudaginn, seinni partinn, í leiðinlegu veðri, sem hélzt allan tímann. Tjaldbúð- um var slegið upp og æfingam ar hófust síðan á laugardags- morgun. Þá var leitaræfing á landi. Leitað var að tveimur týndum flugvélum. 1 því sam- bandi var þjálfuð meðferð átta vita og landakorts viö leit á landi, og hvernig leit er stjórnað gegnum talstöð. Þessar æfingar fóru fram á utanverðu Snæ- fellsnesi, en veðriö var heldur leiöinlegt rigning og dimmviöri, leitarsvæðinu var breytt nokk- uð og það var hætt viö að ganga á jökulinn eins og ætlað var í upphafi, þar eð þetta var eiginlega nýliðaæfing, en ekki venjuíeg sveitaræfing. Á hvítasunnudag var æfing í því að ferðast- í þoku eftir átta- vita og korti. Sú æfing var á Fróðárheiði. Mönnum var skipt þar í flokka og þeim dreift um heiðina. Þeir fengu svo kort og áttavita, inn á kortið var merkt ur ákveðinn staður, sem fara átti til og síöan urðu þeir að stinga út leiðina á kortinu og ganga hana svo eftir kompás. Skilyrði til þessara æfinga voru eins og bezt var á kosið, blind- þoka yfir heiðinni, en allir flokk arnir komu þó fram á réttum stað. Seinni part hvftasunnudags var svo æfing í sjóbjörgunum með slysavamadeildinni í Ólafsvík Hún fór fram í höfninni í Ólafs vík. — Sams konar æfing var með björgunardeildinni frá Hellissandi f höfninni að Rifi á annan í hvítasunnu. Að öðru Framh. ð bls. 4 Clysavamafélagið stofnaði til ^ björgunaræfinga um hvíta- sunnuna vestur á Snæfellsnesi. Æfingarnar stóðu í þrjá daga og í þeim tóku þátt um 60 manns frá björgunardeildunum í Ól- afsvík og Hellissandi, Akranesi, Hafnarfirði og Reykjavík. Til- gangur þessara æfinga var aö kynna deildimar innbyrðis í starfi og þjálfa menn í notkun Á Hellissandi. Línubyssunni miðað ... Skotlð ríður af ... Voræfingar SSysa varna félagsins: ■? 'M

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.