Vísir - 04.08.1966, Blaðsíða 3
VIS IR . Fimmtudagur 4. ágúst 1966.
5
a Austurstræti og Lækjargötu er vinsælast þeim, sem vilja
fylgjast með götulífinu og túristar taka þaðan myndir f gríö og erg.
Sól i hádegisstað.
Þær brugðu sér í hádegisveröarhléinu út undir
vegg á Iðnaöarbankanum tll þess að sleikja sól-
skinið.
HÁDEGISVERÐ-
ARHLÉ í SÓL-
SKINI
Tíminn í hádeginu er lika not-
aður til aö verzla... þá eru
fáir á ferli.
Hitinn mælist 15 stig, áfram-
haldandi blíða og sumarveður.
Miðbærinn fyllist af fólki á leið
heim í mat, aðrir notfæra sér
hádegisverðarhléið til þess að
fara út og sóla sig.
Svo hægist um smástund og
púls miðbæjarins slær ekki
eins ört.
Á bekkjunum hjá Iðnó situr
fólk í löngum röðum og slappar
af, í skjólinu fyrir norðanátt-
inni, og fullt er í issölunni i
Lækjargötunni.
Issalan i Lækjargötunni fylltist.
þaðan komu þessar tvær.
Hjá Iðnó sat fólkið f röðum, stúderaöi andalífiö og ræddi landsins gagn og nauðsynjar.
Á Amarhólnum taka unglings
stúlkumar í garðavinnunni sér
smáhvíld og draga upp nestið,
sem þær borða meðan þær flat-
maga á grænu grasinu. Upp við
stalla teyga skrífstofustúlkur
Sambandsins i sig sólskinið og
við fótskör Ingólfs Amarsonar
situr áhugasamur túristi og blaö
ar í korti yfir Reykjavík.
Svo er hléið búið og æða-
sláttur miðbæjarins verður aft-
ur örari, þegar léttklætt fólk
hraðar sér aftur til vinnu á há-
sumarsdegi.
Vetrarkápan verður allt of helt
í sólskini sem þessu.
\
V