Vísir - 04.08.1966, Síða 5
VÍSIR . Fimmtudagur 4, ágúst 1966.
• morgun titlönd í morgun
lítlönd
dtlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Ekki styrjöld — borgarastyrjöld
Blaðið Politiken £ Khöfn birti í
gær forsíðufrétt um það undir
fjérdálka fyrirsögninni „Ekki
styrjöld — borgarastyrjöld“, að
Q&ir kunnir bandarískir blaða-
mwin bafi í sjónvarpsútsendingu
ráðizt harkalega á yfirstjóm hem-
aðarmála í Bandaríkjunum, fyrir
að villa mönnum sýn varðandi
styrjöldina í Vietnam.
Blaðið segir þá alla hafa mikla
reynslu frá Vietnam og saka þeir
bandaríska hermálaráðuneytið og
bandarísku herstjómina í Saigon
um að blekkja almenning í Banda-
rtkjunum að yfirlögðu ráði í þess-
um málum.
Bla®ð nefnir sem dæmi um
þessa stefnu hið „sífellda hjal um
norflur-vietnamsk ofbeldi", segir í
skeyti £rá Washington til blaðsins,
var nefnt af Malcolm Brówn sem
dæmi um þessa stefnu, en hann var
áður aðalfréttaritari Associated-
Press fréttastofunnar £ Saigon,
Pulitzer-verðlaunaþegi og höfund-
ur bójcarinnar „The New Face of
War“, sem mikla athygli hafi vak-
ið, og heldur Brown því fram, að
styrjöldin sé i raun og veru borg-1
arastyrjöld, og sama halda stéttar-
bræður hans, Jack Foisle frá Los
Angeles Times, Dean Brelis frá|
NBC sjónvarpinu og aðal Saigon-
fréttaritari New York Times, Char-
les Mohr. — Sjónvarpsútsendingin
var frá óháðu sjónvarpsfélagi,
„The National Education Tele-
vision“. .
Var Whitman undir áhríf-
um
í NTB-frétt frá Austen í Texas
segir, að nokkrar líkur séu fyrir,
að Charles Whitman, háskólanem-
inn, sem varð 14 manns að bana,
hafi verið undir áhrifum örvandi
lyfs, er hann framdi ódæðisverkin.
Fundizt hafa • dexedrine-töflur í
fötum hans og hafa læknar þeir,
sem hafa með höndum líkskoðun-
ina, til frekari rannsókna, hvort
leifar lvfsins kunni að finnast í
líkinu. Áður var kunnugt, að æxli
var á heilanum, og segir í einni
frétt, að það kunni að hafa valdið
WHson sigrar enn en
meS naumarí meirihluta
Ríkisstjórn Wilsons sigraði með
52 atkvæða meirihluta viö atkvæða
greiðslu í neðri málstofunni í gær
um tillögu frá íhaldsflokknum þar
sem stjórnin var gagnrýnd fyrir
meðferð sína á efnahagsmálum, en
þetta var helmingi minni meiri-
hlutí en verulegur getur talizt,
þegar um stórmál er að ræða, en
23 þingmenn Verkamannaflokksins
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, og
því er haldið fram af ihaldsflokkn
um, að þeir hafi verið fleiri.
Edward Heath, leiðtogi stjórnar
andstöðunnar, hélt því fram undir
umræöunni, að með nýju efna-
hagsráðstöfunum væri efnahags-
málaráðherranum fengiö meira
vald en dæmi væru til á friðar- og
ófriðartíma, og stappaði nærri
fullu einræði, en George Brown
efnahagsmálaráöherra, kvað heim-
ildimar aðeins gilda til eins árs og
allar gerðir stjórnarinnar væru
jafnan háðar samþykktum þings-
ins.
Bæði Vinnuveitendasambandið
og Verkalýðssambandið hafa hvatt
til þess, að menn bregðist vel við
hvatningu stjómarinnar að styöja
af frjálsum vilja ákvörðunina um
að binda kaupgjald og verðlag.
honum ógurlegum höfuðverkjum.
Gögn þau, sem fyrir hendi eru,
varðandi málið, verða lögð fyrir
rétt í dag í Austen.
Þaö eru nú allar horfur á því,
að fjöldamorð þessi verði til þess
að hraða lagasetningu, sem tor-
veldar mönnum að kaupa vopn
og skotfæri í Bandaríkjunum.
Charles Whitman.
^ Á undangengnum 3 mánuö-
um hafa komiö yfir 6Ú0 land-
skjálftakippir í Tasjkent. — Er-
lendum fréttamönnum hefur nú
aftur verið leyft að koma til
borgarinnar.
^ Brezka stjórnin hefur mót-
mælt sprengjuárás, sem
gerð var á þorp í Suður-Arabíu
(sambandsríkinu) og voru mót-
mælin send Egyptalandi og
Yemen.
heims-
horna
milli
4 Verkfall bankamanna í írska
lýðveldinu (Eire) stóð 12 vik-
ur og voru þeir 5000 talsins,
sem í verkfallinu voru. í einni
frétt, sem birtist þegar verkfall-
ið hafði staðiö nokkrar vikur,
sagði að öll viðskipti gengju
furðu greiðlega, þrátt fvrir verk
fallið.
^ Einum af 9 háskólafyrirles-
urum, sem nýlega voru kyrr-
settir í Salisbury I Rhodesíu var
sleppt úr haldi nýlega, og fékk
hann að fara til Jóhannesar-
borgar, en hinum var sagt, að
þeir yröu að vera farnir úr
landi í gær (miövikudag). Ekk-
ert var sagt um, aö þeim hefði
veriö sleppt úr haldi.
^ Brezkur fréttaritari, Bruce
Cleland, símar frá Jakarta í
Indónesíu, að í opinberri skýrslu
sem hann hafi fengið afnot af,
sé haldið fram, að tala þeirra,
sem teknir hafi verið af lífi,
skotnir eða hálshöggnir, á und-
undangengnum 10 mánuðum sé
komin yfir milljónarmarkið. —
Þeir, sem unnu hryðjuverkin,
voru yfirleitt ungir menn, 18
—25 ára. Cleland segir, að 150
menn hafi unnið að því að afla
gagna til skýrslugerðarinnar.
^ Marina Porter, ekkja Lee
Harvey Oswald sem myrti
Kennedy forseta, er nú flutt frá
Dallas til Greenville í Texas,
ásamt manni sínum Kenneth
Porter og börnum úr báðum
hjónaböndum. „I Dallas leiö mér
eins og ég byggi I glerhúsi",
sagði hún.
ATVINNA
STARFSMENN VANTAR
á Kleppsspítalann. Uppl. gefur forstööukona i síma 38161.
UNGUR MAÐUR
með stúdentsmenntun vanur skrifstofustörfum óskai eftir vinnu á
kvöldin og um helgar. Margt kemur til greina. Uppl. í síma 36887
eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld.
HEIMILI — VINNA
Stúlka (um 35 ára) óskast, góð og reglusöm sem vildi taka að
sér að stjórna léttu og fallegu heimili til frambúðar Hátt kaup.
Tilboö ásamt upplýsingum og síma sendist blaðinu innan 3 daga
merkt „Framtíð 808“.
STULKA óskast
til afgreiðslustarfa strax. Simi 21837 kl. 6—9 í kvöld. ísborg
Austurstræti 12.
VANTAR MANN
til lagerstarfa. — Bananasalan Mjölnisholti 12.
Eftir loftárás á brú yfir fljótið Cau, 30 km norðaustur af Hanoi, en árás þessl var gerð um miðjan júlí
VANUR BIFREIÐARSTJÓRI
óskar eftir aö aka leigubíl Uppl. í síma 31176 eftir kl. 8 I kvöld.
ATVINNA ÓSKAST
Dugleg og ábyggileg kona óskar eftir atvinnu frá 9—5. Kvöld-
vinna gæti komið til greina. Er vön ýmsum störfum. Uppl. í síma
18728 eftir kl. 8 í kvöld og næstu kvöld.
BÓKHALD
Tek að mér bókhald og útreikninga fyrir fyrirtæki og verktaka.
Uppl. í síma 22722.