Vísir - 04.08.1966, Side 11
SíÐAN
Ennþá hamingjusöm
Brosandi og hamingjusöm af-
sanna Carlo Ponti og Sophia
Loren enn einu sinni, aö hjóna
bönd kvikmyndastjamanna
haldist ekki. Nú virðast þau
loksins hafa yfirunniö fiesta
erfiðleika, sem hafa fylgt sam-
bandi þeirra um margra ára
skeið og lifa hamingjusömu
hjónabandi, sem flestir hafa við
urkennt.
Nýlega keyptu þau sér nýtt
hús f sumardvalarbænum
Burgenstok í Sviss, sem er fram
arlega í röð helztu lúxusdvalar
staða þar í landi nú sem stend-
ur.
Og er það það nýjasta, sem
frétzt hefur af þeim hjónakom
unum Ponti og Loren.
Donovan
reykti
Marihuana
Verður oð borga
30 þús. króna sekt
Hinn dáði brezki leikari Dono
van var nýlega dæmdur í 30 þús
und kr. sekt og ástæðan var
heldur leiðinleg og hefur valdið
aðdáendum hans vonbrigðum:
hann var tekinn undir áhrifum
sterkra elturlyfja.
Lögreglan hafði víst komizt
á snoðir um að þessi dáði söngv
ari ætti eitthvað af eiturlyfjum
í fórum sér og kom því að hon
um óvörum f fbúð hans í Lon-
don fyrir nokkra. Aðkoman var
ekki fögur. Donovan, umboðs-
maður hans John Mills, sem er
aðeins 19 ára og 22 ára gömul
stúlka vora þar fyrir og reyktu
marihuana.
Donovan, sem var undir sterk
um áhrifum marihuana fékk æð
iskast þegar lögreglan kom að
og réðist á lögregluþjónana.
„Reykklúbburinn‘‘ var leyst
ur upp og Donovan og John
Mills urðu hvor um sig að borga
250£ í sekt eða úm 30 þúsund
íslenzkar krónur.
Nýgiðtur og ó móti
liésmyndurum
'C'rank Sinatra hefur verið
þekktur að því að láta skaps
munina hlaupa með sig í gön-
ur. En það er skiljanlegt, að
honum geti leiðzt stöðugur elt-
ingaleikur ljósmyndara og blaða
manna við sig — ekki sízt ný-
giftur.
Fyrir skömmu var Frank að
koma út frá næturklúbb í New
York ásamt konunni sinni, Mia
Farrow, þegar fréttaljósmyndari
nokkur tók ljósmynd af parinu.
Frank brást reiður við og tókst
að slá gleraugun af ljósmyndar-
anum.
Um eftirleikinn er ekki vitað.
Frank veifar burtu ljósmyndara um Ieið og Mia heilsar vini.
Sígaunastúlkan C.C.
Á göngutúr í Burgenstock.
.. .
Claudia Cardinale hefur undanfarið verið f Holiyw ood að leika i kvikmyndinni „Tiie Fairy“ en þar
leikur hún Sígaunastúlku og er því hárgreiðsia hennar og klæðnaöur samkvæmt Sígaunasið. Hér er
svipmynd frá kvikmyndlnni, þar sem Claudia hef ur lagt son sinn á bekk — held'.r þungbúin á svip.