Vísir - 04.08.1966, Qupperneq 16
I
Vifnaleidslur bera
ekki órangur
Ekkert hefur komið fram í vitna
leiðslum rannsóknarlögreglunnar
varðandi mál Jóns Guðna Ingólfs-
sonar, sem upplýst gaeti dánaror-
sökina.
Hefur krufningarskýrslan ekki
enn borizt frá Kaupmannahöfn og
vitnaleiðslur ekki gefið neinar við
bótarupplýsingar.
Vill rannsóknarlögreglan enn
sem fyrr beina þeim tilmælum til
sjónarvotta, að því þegar Jón datt,
að gefa sig fram og ennfremur
aðra þá, sem einhverjar upplýsing
ar gætu gefið um málið.
*
Myndin er frá setningu norræna búfræðimótsins 1 Háskólanum í gær. Það sitja um eitt hundrað búvísindamenn og sérfræðlngar.
Ráðstefnan stendur til 8. þ. m. og eru daglega flutt 5 erlndi og um ræður fara fram um efni þeirra. Myndin er frá setningu mótsins,
en það var sett af Ingólfi Jónssyni landbúnaðarráðherra.
Heiðursfélagi
Leikfélagsins
Fyrir nokkrum dögum var sam-
þykkt á fundi Leikfélags Reykja-
vikur að gera Brynjólf Jóhannes-
son leikara að heiðursfélaga leik-
son leikara að heiöursfélaga, og
var þeirri ákvörðun lýst á afmælis-
degi Brynjólfs í gær.
1 gær varð þessi ástsæli leikari
sjötugur að aldri. Á hann einna
lengstan leikferil að haki núlifandi
leika'ra, og hefur tekið virkan
þátt f starfsemi L. R.
YFIR 100 BUVISINDAMFNN A
NORÐURLANDAMÓTI
Norðurlandabúfræðimótið
kom saman í gær í Háskólanum
og sitja það yfir 100 búvísinda-
menn og sérfræöingar frá öllum
Norðurlöndunum.
Gunnar Árnason búfræði-
kandidat, gjaldkeri Búnaðarfé-
lags íslands, en hann er for-
maður íslandsdeildar samtak-
anna, bauð gesti velkomna, og
þar næst ávarpaði landbúnað-
arráðherra Ingólfur Jónsson
gestina.
Að svo búnu flutti dr. Hall-
dór Pálsson erindi um íslenzkan
landbúnað, fyrr og síðar, til
glöggvunar hinum erlendu gest-
um á þróuninni á vettvangi
landbúnaðarins.
f>ar næst flutti dr. Sturla
Friðriksson erindi um hvað
unnt sé að gera til þess að halda
við gömlum engjum og norskur
sórfræðingur Markhus Pesta-
lozzi talaði um sama efni.
Milli flutnings á ræöum lék
hljómsveit islenzk lög.
í dag kl. 2 flytja erindi E. A.
Jamalinen um jurtasjúkdóma
Frh. á bls. 6.
Bæjarstjórnarmeiri-
hluti á Siglufirði
Handbók um byggingar og skipulag
Fyrir nokkru náðist samstaða milli
Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks um samstarf inn
an bæjarstjómar á Siglufirði og
hafa þessir þrfr flokkar nú myndaö
meirihluta þar, en þessir þrír fyrr-
greindu flokkar hafa yfir að ráða
7 bæjarfulltrúum af 9. Á fundi i
bæjarstjóm Siglufjarðar i gær var
Stefán Friðbjamarson ráðinn bæjar
stjóri, en hann hefur verið fuiitrúi
Siálfstæðisflokksins 1 bæjarstjóm
siðan 1958, nú síðustu árin bæjar-
ritari.
Á fundi bæjarstjómar i gær var
endanlega gengið frá ráðningu bæj-
arstjóra og skipan nefnda og svo
fór fram kosning forseta bæjar-
stjórnar. Forseti bæjarstjómar var
kosinn Ragnar Jóhannesson, en
varaforsetar þeir Knútur Jónsson
og Benedikt Sigurðsson. í bæjar-
ráð voru kosnir eftirtaldir: Knútur
Jónsson (Sjálfstæðisfl.), Jóhann G.
Möller (Aljiýðuflokkur) og Ragnar
Jóhannesson (Framsóknarflokkur).
Á fundinum gerði hinn nýmyndaði
meirihlutl grein fyrir stefnu sinni
í bæjarmálunum næstu árin.
Sklpulagsstjóm ríkisins og Sam-
band fslenzkra sveitarfélaga hafa
sameiginlega gefið út Handbók
sveitarstjóma númer 4 og eru í
henni birt skipulagslög og erindi,
sem flutt voru á ráðstefnu, sem
þessir aðilar efndu til um skipu-
lags- og byggingarmál 29. marz til
1. apríl 1965.
í handbókinni skrifar Páll Lín-
dal, borgarlögmaður um skipulags-
lögin nýju, Zophonías Pálsson
skipulagsstjóri um samskipti bvgg
ingarfulltrúa og skipulagsins og
Sigurjón Sveinsson byggingarfull-
trúi um hina nýju byggingarsam-
þykkt fyrir Reykjavík. Pá er grein
eftir Jón Bergsson verkfræðing um
störf byggingarfulltrúa, Haraldur
Ásgeirsson verkfræðingur skrifar
um byggingarefnarannsóknir,
Gústav E. Pálsson borgarvekfræð-
ingur um steinsteypu og Jóhannes
Zoöga hitaveitustjóri um upphitun
og einangrun húsa. Þóroddur Th.
Sigurðsson vatnsveitustjóri skrifar
um vatnsveitur, Ingi 0. Magnús-
son gatnamálastjóri um frárennslis
kerfi og Bárður Daníelsson verk-
fræðingur um brunavarnir. Birt er
Avarp, er Hörður Bjarnason for-
maður Skipulagsstjómar ríkisins,
?lutti við fundarsetningu.
Formála að handbókinni skrifar
Páll Líndal borgarlögmaður, full-
trúi Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga í Skipulagsstjóm ríkisins. Seg-
ir þár m. a. um útgáfuna:
„Skipulagsmál hafa til skamms
tíma ekki notið þess skilnings,
sem þau verðskulduðu, hvorki hjá
valdamönnum eða almenningi.
Meðal annars þess vegna hafa viða
orðið slæm mistök, sem erfitt
verður að bæta úr. Það er hins
vegar hygginna manna háttur að
læra af reynslunni og láta eigin
víti og annarra til vamaðar verða.
Til þess að koma í veg fyrir frek-
ari mistök er eitt virkasta ráðið að
auka fræðslu um skipulags- og
Framh. á bls. 6.
Hvassviðri veldur
truflunum á raflínum
Þórður /ónasson efstur
Gisli Árni og Jón Kjartanssoh fast á eftir
'Hvassviðri gekk yfir Reykjavík Var þessu komið í lag skömmu
Um síöustu mánaðamót
haföi 151 skip fenglð afla á
síldvelðunum eystra, þar af 139
skip 100 lestir eöa meira. Skrá
yfir þessl sklp er innl í blaðlnu
í dag á bls. 6. 28 skip eru kom
in yfir 2 þús. og fimm yfir 3
þús.
Munurinn á þrem efstu skip
unum er mjög lítill, þau
eru öll á sama hundraðinu.
Þórður Jónasson var efstur
samkvæmt aflaskýrslunni þann
30. skipstjóri á honum er Sæ-
mundur Þórðarson, frá Vatns-
leysuströnd. Fast á eftir koma
þeir kunnu aflamenn, bræðumir
Eggert og Þorsteinn Gíslasynir
á Gisla Áma og Jóni Kjartans
syni.
Afli fimm efstu bátanna er
þessi:
Þórður Jónasson EA 3.495
Gísli Ámi RE 3.435
Jón Kjartansson SU 3432
Barði NK 3.076
Ólafur Magnússon EA 3.060
í gærkvöld og olli nokkrum trufl-
unum á raflínum.
Var veðurhæöin mest nálægt
miðnætti og mældist þá 7—8 vind-
stig. 1 mesta hvassviðrinu sló sam-
an lugtarlínu hjá Golfskálanum og
húsalínu við Bústaðaveg þannig að
ljósin ýmist blikkuðu eða fóru af
annað veifið við Bústaðaveginn.
eftir miðnættið.
Var Rafmagnsveitu Reykjavíkur
einnig tilkynnt að loftlínum hefði
slegið saman í Höfðaborginni.
í hitunum undanfarið slaknaði
á rafmagnslínum og er því meiri
hætta á aö þeim slái saman, þegar
hvessir.
Garnaveikin í Borgarfirði:
Er nautgripastofninn í hættu ?
Guðmundur Gíslason dýra
læknir á Keldum hefur sent frá
sér greinargerð um gamaveiki
sauöfjár í Mýrarhólfi, þar sem
hann varar við búfjárflutningum
milli bæja á svæðinu, þar sem
sýkingar hefur orðið vart, og
tilgreinir einnig fleiri varúðar
ráðstafanir.
Vísir skýrði frá því I vor að
gamaveiki hefði orðið vart á 15
bæjum í norðanveröum Borgar
lirði, og jafnframt þeim ráð-
stöfunum sem þá höfðu veriö
ákveðnar af ráðherra í samráði
við sýslumann Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslna, sem voru fyrir
mæli um bann við fjárflutn-
ingum frá sýkta svæðinu í Mýra
hólfi.
Guðmundur tekur undir
þessi fyrirmæli, en leggur jafn
framt áherzlu á nauðsyn bólu
setningar fjár á þessu svæði og
niðurskurð allra sýktra skepna.
— Bendir hann m. a. á þá hættu
sem framtíðarbúskapa í héraði
inu yrði búin ef nautgripa
stofninn næði að smitast og
telur að slíkt verði ekki forðazt
nema öllum varnaraðgerðum sé
beitt til hins ýtrasta. Forðast
beri dreifingu smits milli bæja
eða landshluta með flutningi
á fé eða nautgripum með slátur
afurðu á flutningabílum, eða á
annan hátt, auk fyrrgreindra
ráðstafana.
Þá getur hann þess að þurra
mæði hafi komið upp á Hreins
stöðum í Norðurárdal í fyrra og
tekur mönnum vara fyrir því
að dreifa kindum úr þeim hópi
sem veikin kann ef til vill enn
að leynast á en þurramæði á
byrjunarstigi smitast ef veikt
fé er haft með heilbrigðu í húsi.
i