Vísir

Dagsetning
  • fyrri mánuðurseptember 1966næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    2526272829301
    2345678

Vísir - 15.09.1966, Blaðsíða 5

Vísir - 15.09.1966, Blaðsíða 5
Vf SIR . Fhnmtudagur 15. september 1966. - ™ Nýir söluskiimálar olíufélaganna í meira en tvo áratugi hefur álagning á vörur þær, sem olíufélögin selja, veriö ákveðin af verðlagsyfir- völdum. Segja má, að allan þann tíma hafi álagning á fuelolíu, gasolíu og bílabenzíni verið þannig ákveðin að hún hafi tæplega staðið undir kostnaði við inn- flutning og dreifingu á þessum vörum, hvað þá, að | sala þeirra skilaði eðlilegum hagnaði. Fjármagnsþörf olíufélaganna, til þess að standa undir aukinni sölu og vegna þynningar gjaldmiðilsins hefur hins vegar, svo sem augljóst má vera, aukizt ár frá ári. Stefna verðlagsyfirvalda hefur því óhjákvæmilega leitt til þess, að olíufélögin hafa stöðugt orðið að leita til viðskiptabanka sinna um aukin lán til þess að standa undir auknum innflutningi og hækkandi kostnaði. Við- skiptabankarnir hafa eðlilega talið þessa þróun bæði óæskilega og hættulega. Af þessum ástæðum var svo komið í júlímánuði s.l., að viðskiptabankar olíufélaganna synjuðu um opnun ábyrgða fyrir olíuförmum frá Rússlandi, og hélzt það 1. Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram gegn staðgreiðslu. Ef um félög eða firmu er að ræða, sem hafa minnst 5 bíla eða tæki, er heimilt að selja gegn mánaðarviðskiptum, enda sé greitt auka- gjald, kr. 25.00 fyrir hverja afgreiðslu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. 2. Öll sala til húsakyndinga skal fara fram gegn stað- greiðslu. Ef viðskiptamaður af einhverjum ástæðum greiðir ekki við afhendingu vörunnar skal reikna sérstakt aukagjald, kr. 100.00, fyrir hverja afhend* ingu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. ástand fram yfir miðjan ágústmánuð, en á því tíma- bili höfðu útflytjendur í Rússlandi sent þrjá olíufarma til félaganna, án þess að ábygðir væru opnaðar fyrir þeim samkvæmt gildandi samningum við Rússa, sem olíufélögin hafa tekið að sér að framkvæma í umboði ríkisstjórnarinnar sem samningsaðila gagnvart hinum rússnesku útflytjendum. Til þess að koma í veg fyrir að olíuinnflutningur stöðv- \ aðist, féllust bankarnir loks á, að opna nauðsynlegar ábyrgðir, gegn því skilyrði, að olíufélögin tækju upp nýja hætti, að því er varðar útlán og innheimtu. í sanr j-æmi við þetta hefur nú verið ákveðið, að taka upp í allri olíusölu staðgreiðsluviðskipti, að svo miklu leyti sem mögulegt er. Til þess að hvetja til staðgreiðslu* viðskipta hafa verðlagsyfirvöld heimilað olíufélögun- um að taka sérstakt aukagjald, ef viðskipti eru ekki staðgreidd. Samkvæmt þessu gilda eftirfarandi reglur frá 1. okó- ber n. k.: 3. Önnur vörusala olíufélaganna beint til notenda ska! að jafnaði vera gegn staðgreiðslu. Þó skal olíufé- lögunum heimilt að semja við stóra viðskiptamenn um mánaðarviðskipti, enda greiði þeir sömu auka* gjöld og um getur í 1. og 2. grein. Skulu þeir greiða úttektir sínar fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir út* tektarmánuð. 4. Hafi mánaðarviðskiptamaður ekki greitt skuld sína að fullu fyrir Iok greiðslumánaðar, skal reikna hon- um dráttarvexti, 0.83% á mánuði, miðað við skuld í lok úttektarmánaðar að frádregnum innborgun- um í greiðslumánuði. Jafnframt skal stöðva reikn* ingsviðskipti og hef ja venjulegar innheímtuaðgerðir. Reykjavík, 13. september 1966. Olíufélagið h.f., Olíuverzlun íslonds h.f., ■ Oiíufélugið Skeljungur h.f

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað: 210. Tölublað (15.09.1966)
https://timarit.is/issue/183946

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

210. Tölublað (15.09.1966)

Aðgerðir: