Vísir - 25.10.1966, Síða 16
HUNDAPESTIN KOMIN í
HUNDABÚ CARLSENS
Kann að þurfa að drepa flesta hundana —
líklega sýktir hundar i Reykjav'rk
Hundapest sú, sem kom upp í
Dyrhólahreppi fyrr í haust er nú
komin upp í hundum á hundabúi
Carlsens minkabana í Mosfellssveit.
Hefur oröiö að lóga þar fjölda
hunda og hvolpa, sem tekið hafa
veikina og hundabúið hefur nú al-
gerlega verið einangrað og verður
beðið átekta og séð hvort nauö-
syniegt reynist að lóga öllum hund-
unum. Þá eru miklar líkur til þess
að hér í Reykjavík séu sýktir hund-
ar, sem voru í fóstri á hundabúinu
fyrir nokkru, en þar sem hér er um
að ræða hunda, sem fluttir hafa
verið inn ólöglega er erfitt að hafa
uppi á þeim. Fyrir helgina lék
grunur á að veikin væri komin upp
á Álafossi, en þar reyndist aðeins
einn hundur veikur og var hann ný-
kominn frá dvöl í hundabúi Carl-
sens, að því er Ásgeir Einarsson
dýralæknir sagði í viðtali við Vísi.
Carlsen minkabani sagði í viðtali
við Visi í gær aö hundarnir
sem heföu tekið veikina væru aðal-
lega hvolpar og eldri hundar, sem
hafa minnstan mótstöðukraft og
hefðu a. m. k. 15 verði drepnir. Get
ur farið svo að drepa þurfi marga
af beztu veiðihundum Iandsins, sem
eru þarna í fóstri.
Páll A. Pálsson yfirdýralæknir
sagði í viðtali við blaðið að þetta
væri sama veikin og verið hefur
Dyrhólahreppi, en þar hafa 12 eða
13 hundar drepizt eða verið lógaö,
en erfitt væri að gera sér grein fyr-
ir hvort samband væri þarna á milli.
Sé líklegast að pestin hafi komið
með hundi til Reykjavikur og þaöan
til Carlsens og austur í Dyrhóla-
hrepp. Ekki hefur tekizt að ná í
upprunalega hundinn og mundi það
líklega aldrei takast. Sá hundur,
sem borið hefur veikina kann að
vera búinn að hafa hana og oröinn
frískur á ný, en hundar geta smitað
Hamrafellið selt til Indlands
fyrir 28 milljónir króna
Samband ísL samvinnufólaga hef-
ur ákveðið að selja stærsta skip
félagsins og um leið stærsta skipið
£ ísl. skipafiotanum, Hamrafell. —
Hafa tekizt samningar um sölu á
skipinu til indverska skipafélagsins
„The shipping Corporation of
India“. Verður skipið afhent hinum
væntanlegu eigendum hinn 20. nóv.
n.k. í Þýzkalandi eða Hollandi.
Söluverðið er 28 miilj. ísl. krónur.
Það sem ráðið mun hafa úrslit-
um um sölu skipsins er, aö undan-
farin tvö ár hefur þaö verið í för-
um fyrir eriend skipafélög, en þaö
mun ekki hafa verið ætlunin meö
rekstri skipsins, er það var keypt
hingað áriö 1956. Ekki munu vera
uppi nernarr áætíanir inoan Sam-
bandsins um kaup á öðru olíuflutn-
ingaskipi, og í fyrradag var flest-
um eða öllum undirmönnum skips-
ins sagt upp starfi, en aðeins
nokkrir af yfirmönnunum munu
sigla skipinu til afhendingarstaðar.
Skipið mun koma hingað til lands
i síðasta skipti undir ísl. fána hinn
8.' nóv. n. k. Mun því síðan veröa
siglt héðan beint til afhendingar-
staðar. Hinir væntanlegu kaupend-
ur munu enn eiga eftir að fá inn-
flutningsleyfi fyrir skipinu til Ind-
lands, en þaö mun aðeins vera tal-
ið formsatriði.
Hamrafellið var eins og fyrr
greinir keypt hingað til lands áriö
1956. Það er stærsta skip, sem
nokkru sinni hefur siglt undir ísl.
fána eða um 16730 brúttólestir að
stærð. Söluverð þess er eins og
fyrr greinir 28 millj. ísl. króna.
Mannlaus hús og hiutir á af-
skekktum stööum bera víða
merki um óþarfar gestakomur.
Ónefndir förusveinar hafa feng-
ið útrás annarlegra hvata sinna
í spellvirkjum á einstæðum kof-
um og mannvirkjum á víða-
vangi. Björgunarskýli og önnur
nauðþurftamannvirki hafa iðu-
lega verið hart leikin, framin á
þeim speilvirki til stórtjóns og
af algeru tillitsleysi við
verkefni sem slíkum mannvirkj-
um er ætlaö.
En slík hervkki gerast ekki
einungis á landi heldur cinnig á
skipum, sem Iiggja útiáSundum
og bíða þess eins að einhver
fáist til þess að nýta þau.
■ Þegar farið var að athuga tog
arann Síríus, sem strandaði á
dögunum innan við Vatnagarða,
kom í Ijós vitni um ófagrar at-
Framh. á bls. 6.
Brotnir björgunarhringir, stólar og aðrir smáhlutir lágu eins og hráviði I brúnni.
nokkurn tíma eftir að þeir hafa ver-
ir veikir.
Sagði yfirdýralæknir að ef fólk
gætti þess nú nógu vel að passa
hunda sína og láta þá ekki hafa
samgang við aðra hunda yrði ef til
vill hægt að útrýma pestinni á ein-
um eða tveimur mánuðum.
-m. ■m. ^ -m. ^■m. •m.
Fór úr buxuninvt
og bjurguði
hestinum
Rétt fyrir kl. 8 í gærmorgun
var tilkynnt til lögreglunnar, að
hestur væri fastur í Hólsá og
kæmist ekki upp úr af eigin
rammleik vegna klakaspanga,
sem voru við bakkana. Voru
lögregluþjónar sendir á staðinn,
en illa gekk að koma hestinum
upp úr. Varð ekkert að gert fyrr
en ungur og vaskur lögreglu-
þjónn, Einar Bjarnason, skellti
sér úr buxunum og óð út í ána.
Gekk hann undir hestinn og
tókst þannig meö aðstoð þeirra,
sem voru á bakkanum, að koma
hestinum upp úr ánni. Þótti
þetta vera hið mesta þrekvirki,
en Einar fór í ána að eigin
frumkvæöi.
I vistarverum skipstjóra og kortaklefanum var allt rifið og tætt og
einsýnt að slíkt hafði ekki gerzt nema af mannavöldum.
Varð undir rúmu tanni
af steypustyrktarjárni
Nýsjálendingur, sem var að
vinna við uppskipun á steypu-
styrktarjámi í Þorlákshöfn á laug-
ardagskvöldið varð undir rúmlega
eins tonns hlassi af steypujámi og
slasaðist alvarlega. Talið er að
hann hafi mjaðmagrindarbrotnaö,
kinnbeinsbrotnað og hlotið fleiri
alvarlega áverka, en hann var flutt
ur til Revkjavíkur með hraði, á
slysavarðstofuna og baðan á sjúkra
hús.
Steypustyrktarjárninu var verið
að skipa upp úr Bakkafossi og var
það flutt á bílum upp að vöm-
geymsluhúsi og híft þar af með
krana. Einhverra hluta vegna lenti
þar eitt búntið á 2. tonn að þyngd,
ofan á G. Steward, en svo heitir
Nýsjálendingurinn.
342 nýstúdentar við Háskólann
— Náttúrufræðikennsla tekin upp
v/ð skólann næsta ár
Á Háskólahátíö veittu 342
nýskráðir stúdentar við Háskól-
ann viðtöku háskólaborgarabréfi
sínu. í deildir Háskólans skipt-
ast þeir sem hér segir: í guð-
fræði 2, í læknisfræði 68, í tann
lækningar 11, í lyfjafræði lyf-
sala 5, í lögfræði 43, í viðskipta
fræði 31, í heimspekideild 145,
þar af 90 í B.A.-nám, 39 í for-
spjallsvísindi eingöngu og 16 í
íslenzku fyrir erlenda stúdenta,
í verkfræði 30 og í B.A.-nám í
verkfræðideild 7.
Sagði rektor í ræðu sinni
lútandi kennslu að athugunum á
skipan náttúrufræðikennslu við
Háskólann verði haldiö áfram.
„Er það eindregin ósk mín og
von, að næsta haust geti sú
kennsla hafizt“. Sagði rektor, að
athugun um skiptingu milli nem-
enda stærðfræðideildar og mála-
deildar í menntaskólunum í
haust leiddi í ljós að vænta má
á næstu ámm mun fleiri stúd-
enda úr stærðfræðideildum en
Framh. á bls. 6.