Vísir - 03.11.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 03.11.1966, Blaðsíða 1
VISIR 56. árg. - Fimmtudagur 3. nóvember 1966. - 252. tbl. Hafnarverkfall tefur af- greiðslu íslenzkra skipa Hafnarverkfall í London hefur tafiS ferðlr íslenzkra skipa og a. m. k. eitt, Laxá, hefur verið um kyrrt i London þann tíma, sem verkfalliö stóð yfir en það leyst- ist á mánudagi Taiaði blaðið í gær við Tóm- as P. Óskarsson hiá Jöklum h.f. sem tjáði blaðinu að begar verk- fallið skall á þann 21. okt. hafi Vatnajökull verið langt kominn með að losa í London. Hafi verk- fallið verið bundiö við eina „dokk“ en ekki verið almennt og hafi það eingöngu verið bundið við los- un á frakt en ekki lestun. Hélt Vatnajökull áfram áætlun- inni til Rotterdam og losaði af- ganginn í London í bakaleiðinni og var væntanlegur heim í gær frá Hamborg. „Sem betur fer urðu eng in vandræði fyrir okkur í sam- bandi við verkfallið“, sagði Tóm- as. Þegar blaðið talaði í gær við Halldór Friðriksson hjá Hafskip, sagði hann að Laxá væri búin að vera í London frá miðvikudegin- um 26. okt. „Það átti e. t. v. að byrja á henni á morgun, sagði Halldór, og við vonum að hún losni þarna á föstudagskvöld". Sagði Halldór ennfremur að seint gengj með afgreiðslu skipanna, en mörg bíða eftir afgreiðslu. Laxá var með síldarmjölsfarm til London og verður ekkert tjón í sambandi við hann fyrir skipafélagið en hins vegar kostar töfin á afgreiðslu skipsins engan smáskilding dag- lega. Eftir því sem blaðið fregnaöi mun hafnarverkfallið ekki hafa valdið neinni truflun hjá öðrum skipafélögum. Brunaverðir að starfi í Kjörgaröi í gær. (Myndir: B. G.), Húsvörður Kjörgarðs brennur inni — Olíusót fró einangrunurplasti skemmir vörur fyrir milljónir Húsvörðurinn í Kjörgarði, Ólafur Friðbjarnarson, Stóragerði 13, brann inni í kjallara Kjörgarðs við Laugaveg í gær, þegar eldur brauzt út í húsinu, rétt fyrir klukkan fimm í gærdag. — Hann hafði smá- skonsu til umráða inn af geymslunni, þar sem eld- urinn brauzt út. Fannst hann liggjandi utan við dyr skonsunnar, sem var læst, þegar eldurinn hafði verið slökktur. Ólafur heitinn hafði þann sið um þetta leyti dags að halda sig í skonsu sinni til að hvílast. Ekki liggur fyrir vitneskja um, hvort hann hefur verið að forða sér út eða hvort hann hefur verið að reyna að komast inn í skonsuna til að bjarga þar einhverju. Tryggingafulltrúar viröa fyrir sér sótfallin húsgögn í Skeifunni í kjallara Kjörgarös. Annar maður, viðskiptavinur húsgagnaverzlunarinnar Skeif- unnar, sem er f kjallara húss- ins við hliðina á geymslunni, átti í erfiðleikum við að komast út, vegna kæfandi reyks og hita frá geymslunni. Þegar eldurinn brauzt út, var margt manna í húsinu. Mikinn reyk lagði þég- ar í stað um allt húsið, og áttu margir í erfiðleikum við að komast út vegna hans. í morgun þegar tíðindamaöur Vísis fór á brunastaðinn, voru rannsóknarlögreglumenn, elds- vamareftirlitsmenn og skoðun- armenn viðkomandi trygginga- félaga að rannsaka eldsupptök og tjónið. — Magnús Eggerts- son, rannsóknarlögreglumaður, sagði að greinilegt væri að elds- upptökin hefðu verið í einangr- unarplasti, sem var geymt í geymslu í kjallaranum. Ekki \ hefði þó tekizt að upplýsa enn méð hvaða hætti kviknað hefði í plastinu. Einangrunarplastið var notað til að einangra hæð, sem verið er að byggja ofan á húsið. Skoðunarmenn tryggingafé- laganna, sögðust ekki geta met- ið að svo komnu máli, hversu mikilli upphæð tjónið nemur á vörum viðkomandi verzlana, en þó mætti búast við því að það næmi milljónum króna. Mest hefur tjóniö líklega orðiö í Skeifunni. Sagðist eigandinn ekki vilja né geta sagt til um hvað tjónið væri hjá sér. Hann vildi segja það eitt, að hann heföi trvggt langt undir því sem tjónið næmi. Mest hefur tjónið verið af reyk, sem lagði um allt húsið, en minna af eldi og vatni. Hef- ur svart olíusót dreifzt um allt Framh. á bls. 6 Sæmileg línuveiði vestra, en treg hjó Faxaflóabótum Haustvertíð á línu hefur nú víð- ast hvar staðið mánuð eða svo og aflinn hefur oftast verið heldur rýr, en þó öllu skárri hjá vestan bátum, það er Breiðafjarðarbátum og á Vestfjörðum. Akranesbátar hafa mikið sótt vestur undir Jökul og í Jökultungur en sáralítið fengið á nærmiðum. 4 bátar róa með línu af Skaga og er efsti báturinn, Keilir, kominn með 65 lestir í 16 róðrum. Aflinn hefur mest farið upp í 6 tonn um daginn. Frá Keflavík róa 4 bátar með linu og hafa fengið þetta upp í 5 tonn í róðri. Fékk logandi eldspýtu haus upp í augað Norskur skipverji varð eftir i Reykja- vik vegna þessa óhapps Dagiega er kveikt á þúsund- um Grýtueldspýtna hér á landi. Ósjaldan hefur það komiö fyrir, að brennisteinninn hefur hrokkið logandi af og sviðið brunagöt á skyrtur, eyðilagt nykmsokka o. s. frv. Hins veg- ar kemur það ekki oft fyrir að slíkt hafi valdið áverka á fólki. Einn slíkur atburður gerðist þó í síöustu viku. Norska skipið M.S. Havlyn lá hér við bryggju við sementslosun, þegar einn skipverjann Konrad Eriksen henti það óhapp að fá logandi brennistein i augað. Taiaði blaðið í morgun við Konrad Eriksen, sem dvelst á Hótel Skjaidbreið meðan augað er að jafna sig. Blindaðist hann á vinstra auga í byrjun, „en ég get séð ofuriítið núna“, sagöi hann í viðtalinu. Segir Konrad, að læknar segi sér, að sárið á auganu stafi af cldspýtu, en sjálfur segist hann aðelns hafa skynjaö „eitthvað heitt“, sem hafi lent í þvi. Gefa læknarnir honum von um það, að hann fái að fara í næstu viku héöan, en það er undir þeim komið, hvort hann getur farið héðan með Havlyn, sem losar nú á Austurlandshöfn um. Framh. á bls. 6. Norðmaðurinn Eriksen á hótoli sínu í morgun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.