Vísir - 03.11.1966, Page 4
VI SIR . Fimmtudagur 3. nóvember 1966.
*
77/ innflytjenda hópferöa
eðo áætlunarbifreiða
Innflytjendur hópferða- eða áætlunarbifreiða
eru hér með varaðir við að flytja til landsins
eða láta byggja yfir bifreiðir innanlands án
samráðs við oss.
Sé þess ekki gætt mega eigendur slíkra bif-
reiða eiga von á að verða að breyta þeim á eig-
inn kostnað þegar hægri handar umferð hefst
vorið 1968.
Framkvæmdanefnd hægri handar umferðar
Sóleyjargötu 17, R.
TIL LEIGU
alveg ný 4ra herb. íbúð í sambýlishúsi við
Fellsmúla. Harðviðarinnréttingar, teppi á
gólfum, gluggakappar. Þvottavélar í sameig-
inlegu þvottahúsi. Uppl. í síma 16766 til kl.
5 á daginn.
Lyfjaverzlun ríkisins
Óskar að ráða bílstjóra.
Uppl. á skrifstofunni, Borgartúni 7, föstudag
4. nóv. kl. 2—3 e. h.
M/S GULLFOSS
Vetrarferðir —
Kanaríeyjaferðir
Nýársferð —
Sumarferðir
Uppselt er í næstu vetrarferð frá Reykjavík 12. nóvember. Ennþá eru
möguleikar að tryggja sér farmiða með seinni vetrarferðum og í
Kanarieyjaferðunum. — Eigi er ráð nema í tíma sé tekið —
NÝTT! ^ann desember fer Gullfoss frá Reykjavík í
sérstaka skemmtiferð til Amsterdam og Hamborgar
NÝÁRSFERÐ með viðkomu í Leith á heimleið.
til Dvalið um áramótin í Amsterdam í 4 daga og
« . j í Hamborg í 3 daga - 1 dagur í Leith á heimleið -
Amsteraam Kormg hejm til Reykjavíkur 12. janúar.
17 daga ferð Verð farmiða frá aðeins kr. 5950.00
Innifalið í verði farmiða er fargjald, fæði og þjónustugjald.
Dragið ekki að tryggja yður farmiða í þessa glæsilegu áramótaferð.
Móttaka á farmiðapöntunum i sumarferðir Gullfoss 1967 er hafin
Ferðizt með bílinn og fjölskylduna
Ferðizt þægilega og ódýrt með Gullfossi.
H.F. EIMSKIPAFELAG ÍSLANDS
Iðnaðurinn
Framhald af bls. 9.
allmikið hagræðingarstarf, með
þeim árangri, að verðlag vör-
unnar hefur ekki L^kkað eins
ört og aðrar matvörur á mark-
aðnum í dag.“
HARALDUR JÓ-
HANNSSON, — hjá
Síríusi og Nóa h.f.:
„Við höfum átt í töluverðri
samkeppni við erlenda, inn-
flutta súkkulaðikexið, en okkur
hefur vegnað þar sérlega vel.
Að vísu dró úr sölu súkkulaði-
kexins okkar fyrsta hálfa árið
eftir að innflutningurinn var gef-
inn frjáls, en framleiðsla okkar
á því I dag er jafn mikil og hún
var mest, áður en innflutning-
urinn var gefinn frjáls".
HALLDÓR SIGURÐS-
SON, — verksmiðju
stjóri Teppagerðarinnar
h.f.:
„Fyrir nokkru var innflutn-
ingur á gólfteppum ^jfinn frjáls,
en við höfum sfður en svo farið
illa út úr erlendri samkeppni.
Það hefur a. m. k. ekki borið
neitt á minnkandi eftirspum á
vörum okkar. Við erum sem
sagt mjög bjartsýriir á fram-
tíðina.“
RAFN HAFNFJÖRÐ, —
framkvæmdastjóri Lit-
brár h.f.:
„Hér eru fulltrúar frá sænsk-
um og amerískum bókaútgef-
endum að biðja okkur um að
prenta bækur fyrir þá. Við höf-
um einungis ekki getað komizt
yfir það að taka að okkur slík
verk, vegna þess hve gífurlega
stór þau eru og markaðurinn
er nægur hér innanlands."
VERDMÆTI
VINNINGA:
1.000.000.00
Dodge Dart ’67
Plymouth Valiant ’67
Rambler American ’67
DREGIÐ
8. NÓVEMBER <^j
1966 ^
Verð miðans kr. 100
HAPPDRÆTTÍ
SJÁLFSTÆÐISPLO KKSINS
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ
ÓÐINN
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánu-
daginn 7. nóvember kl. 20:30 í Valhöll við
Suðurgötu.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjómin.
cr^saa