Vísir - 26.04.1967, Síða 5
VÍSIR. Miðvikudagur 26. apríl 1967.
5
Lénharður —
Framh. af bls. 8
færustu ieikstjórum Þjóöleik-
hússins, Baldvins Halldórssonar.
Ber sýningin þess óvéfengjanleg
merki, bæöi í heild og frammi-
stöðu einstakra leikara, að hann
hefur unniö þar mikið og heilla-
vænlegt starf, sem lengi mun
gæta. Þá hefur og leikmynda-
höfundurinn, Hallgrímur Helga-
son, ungur maður, leyst hlutverk
sitt af hendi af mikilli prýði,
við hinar örðugustu aðstæður.
Hlutverk Lénharðs fógeta virð
ist fljótt á litið, ekki ýkja marg-
slungiö frá höfundarins hendi.
En það leynir á sér, og nýtur
sín ekki nema það sé túlkaö af
skilningi og nærfærni. Einar H.
Kvaran var allt of mikill rithöf-
undur og mannþekkjari til þess
að draga persónurnar annað
hvort svörtum lit einvörðungu
eða hvítum. Lénharður er ekki
fordrukkinn svoli og fantur;
hann er heimsmaður á þeirra
tíma vísu, og hann hyggur sig
eiga köllun að rækja. Sama er
aö segja um þá sveina hans,
sem nokkuö koma viö sögu —
þótt Lénharður telji þá óláns-
menn, og ekki að ástæðulausu,
eiga þeir sinn drengskap, sam-
anber þann, sem fær Guðnýju
hnífinn, og fyrirverða sig vegna
þess aö þeir vita sig landráða-
menn. Þetta kemst allt mjög vel
til skila fyrir leikstjórn Baldvins
og — frábæran leik Björns
Einarssonar í hlutverki Lénharðs
fógeta Þótt Björn hafi áður
sjaldan eða sama og ekki á leik-
svið komið, mætti halda aö hann
væri lærður og sviðsvanur at-
vinnuleikari, slíkt er öryggi hans
á sviðinu, bæði í hreyfingum og
framsögn Hann dregur upp heil-
steypta mvnd af Lénharði. af
skilningi og nærfærni og etns
og jafnan, þegar vel er leikið,
finnst manni að viðkomandi sé
gerður einmitt í það hlutverk.
Þessi frábæra frammistaða
Björns verður leik hinna á köfl-
um ofviða, enda ekki við öðru
að búast, en þó gegnir furðu hve
sumum þeirra aö minnsta kosti
tekst að halda í við hann. Torfi
I Klofa, leikinn af Áma Kára-
syni, er að vissu leyti ekki ó-
sennilegur, en þó hlýtur áhorf-
endum að finnast að hann eigi
að vera vörpulegri og rismeiri.
Loftur Ámundason leikur Ingólf
bónda á Selfossi; framsögn hans
er víða mjög góð, og hann sækir
sig stöðugt eftir því sem líður
á leikinn, en gervið er ekki gott
dylur ekki að þar er mun yngri
maöur en hlutverkið krefst.
Gyöa Thorsteinsson leikur Guð-
nýju dóttur hans. Gyða hefur
allt útlit til að leysa það hlut-
verk vel af hendi, þokka og
innileik — en hana skortir hið
stórbrotna skap Guðnýjar og
framsögnin er víða hikandi og
feimnisleg. Jón Bragi Bjarnason
leikur Magnús Ólafsson, fríð-
leiksmaður á sviöi, en viðvan-
ingsbragurinn auðsær á leik
hans og framsögn. Bergsveinn
Auðunsson leikur hið vandmeð-
fama hlutverk hins skapmikla,
fíflsdjarfa, drenglundaða en ó-
hyggna kotungssonar, Eysteins
úr Mörk, og vantar aðeins
herzlumuninn — einkum öryggi
í framsögn — til að gera honum
góð ski'l. Brynhildur Ingjalds-
dóttir gerir Helgu konu Torfa
sýslumanns, aligóð skil. Um
sveina Lénharðs, leikna af þeim
Erni Guðmundssyni, Amari
Halldórssyni, Halli Leopolds-
syni, Valdimar Sæmundssyni og
Þórami Þórarinssyni, er fátt að
segja, enda gefa hlutverkin ekki
tilefn! til þess.
Þá kemur röðin að bændun-
um. Hlutverk þeirra virðast
yfirleitt í höndum eldri manna,
og sumir þeirra hafa leikið eitt-
hvað úti á landi og með L. K.
— Jón á Leirubakka, leikinn af
Eiríki Jóhannessyni; Ólafur í
Vatnagarði, leikinn af Sveini
Halldórssyni; Bjami á Hellum,
leikinn af Guðlaugi Eiríkssyni
og síðast en ekki sízt Freysteinn
á Kotströnd leikinn af Gesti
Gíslasyni. Og þar skiptir leik —
ekkert hik í framsögn, allir í
essinu sínu, ef svo mætti segja,
nauðþekkja bersýnilega hlut-
verk sín og gera þeim skil sam-
kvæmt því. Freysteinn á Kot-
strönd, vingullinn og væskillinn,
sem höfundur.virðist hafa hvaö
minnsta samúð með, er óvenju-
Iega vel leikinn í þetta skipti,
einmitt fyrir það að ekki er farið
út í neinar ýkjur. Sama má
segja um bændakonumar, Ingi-
rfði ekkju í Hvammi sem er leik-
in af Maríu Vilhiálmsd. og
Snjólaugu á Galtalæk, sem leik-
in er af Líney Bentsdóttur; þar
er um að ræða traustan leik og
sennileghn. Um menn Torfa,
Kjartan Zófóníasson og Jónas
Þór, svo og kirkjufólkið, utan
það, sem þegar hefur verið nefnt
er fátt að segja.
Að lokum þetta — leikstjór/
hefur vandað mjög til þessarai
sýningar og Leikfélag Kópavogc
ekkert til sparaö, að hún mætti
verða sem bezt. Og það er fyllsta
ástæöa til að óska báðum þess-
um aðilum til hamingju með
árangurinn, um leið og Leikfé-
lagi Kópavogs er óskað til ham-
ingju með afmælið.
Loftur Guðmundsson.
INNLENT LAN
RÍKISSJÓÐSISLANDS1967,1.F1
UTBOÐ
Fjármálaráðherra hefur á-
kveðið að nota heimild í
lögnm frá 22. apríl 1967 til
þess að bjóða út 50 milljón
króna innlent Ián ríkis-
sjóðs með eftirfarandi skil-
málum:
SKILMÁLAR
fyrir verðtryggðum spari-
skírteinum ríkissjóðs, sem
gefin eru út samkvæmt
lögum frá 22. apríl 1967
um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til lántöku vegna
framkvæmdaáætlunar fyr-
ir árið 1967.
1. gr. Hlutdeildarbréf láns-
ins eru nefnd spariskír-
teini, og eru þau öll gefin
út til handhafa. Þau eru í
tveimur stærðum, 1.000
og 10.000 krónum, og eru
gefin út í töluröð eins og
segir í aðalskuldabréfi.
2. gr. Skírteinin eru Iengst
til 12 ára, en frá 15. sept-
ember 1970 er handhafa í
sjálfsvald sett, hvenær
hann fær skírteini inn-
leyst. Vextir greiðast eftir
á og í einu lagi við inn-
lausn. Fyi’stu 4 árin nema
þeir 5% á ári, en meðal-
talsvextir fyrir allan láns-
tímann eru 6% á ári. Inn-
lausnarverð skírteinis tvö-
faldast á 12 árum og verð-
ur sem hér segir að með-
fJlllf.
töldum vöxtum og vax.ta-
vöxtum:
Skírteini 1.000 10.000
kr. kr.
Eftir 3 ár 1158 11580
— 4 ár 1216 12160
—- 5 ár 1284 12840
— 6 ár 1359 13590
— 7 ár 1443 14430
— 8 ár 1535 15350
— 9 ár 1636 16360
— 10 ár 1749 17490
— 11 ár 1874 187,40
_ 12 ár 2000 20000
Við þetta bætast verðbæt-
ur samkvæmt 3. gr.
3. gr. Við innlausn skír-
teinis greiðir ríkissjóður
verðbætur á höfuðstól,
vexti og vaxtavexti í hlut-
falli við þá hækkun, sem
kann að hafa orðið á 'vísi-
tölu byggingarkostnaðar
frá útgáfudegi skírteinis
til gjalddaga þess (sbr. 4.
gr.). Hagstofa Islands
reiknar vísitölu bygging-
arkostnaðar, og eru nú-
gildandi lög um hana nr.
25 frá 24. apríl 1957. Spari-
skírteinin skulu innleyst á
nafnverði auk vaxta, þótt
vísitala byggingarkostnað-
ar lækki á tímabilinu frá
útgáfudegi til gjalddaga.
Skírteini verða ekki inn-
leyst’að hluta.
4. gr. Fastir gjalddagar
skírteina eru 15. septem-
ber ár hvert, í fyrsta sinn
15. september 1970. Inn-
lausnarfjárhæð skírteinis,
sem er höfuðstóll, vextir
og vaxtavextir auk verð-
bóta, skal auglýst í júlí
ár hvert í Lögbirtinga-
blaði, útvarpi og dagblöð-
um, í fyrsta sinn fyrir
júlílok 1970. Gildir hin
auglýsta innlausnarfjár-
hæð óbreytt frá og með 15.
sept. þar á eftir í 12 mán-
uði fram að næsta gjald-
daga fyrir öll skírteini, sem
innleyst eru á tímabilinu.
5. gr. Nú rís ágreiningur
um framkvæmd ákvæða 3.
gr. um gi’eiðslu verðbóta á
höfuðstól og vexti, og skal
þá málinu vísað til nefnd-
ar þriggja manna, 'er skal
þannig skipuð: Seðlabanki
Islands tilnefnir einn
nefndarmanna, Hæstirétt-
ur annan, en hagstofu-
stjóri skal vera formaður
nefndarinnar. Nefndin fell-
ir fullnaðarúrskurð í á-
greiningsmálum, sem hún
fær til meðferðar. Ef
breytmg verður gerð á
grundvelli vísitölu bygg-
ingarkostnaðar, skáí nefnd
þessi koma saman og
ákveða, hvernig vísitölur
samkvæmt nýjum eða
breyttum grundvelli skuli
tengdar eldri vísitölum.
SIculu slíkar ákvarðanir
nefndarinnar vera fullnað-
arúrskurðir.
6. gr. Skírteini þetta er
undanþegið framtalsskyldu
og er skattfrjálst á sama
hátt og sparifé, samkvæmt
heimild í nefndum lögum
um lántöku þessa.
7. gr. Handhafar geta
fengið spariskírteini sín
nafnskráð í Seðlabanka Is-
lands gegn framvísun
þeirra og öðrum skilríkj-
um um eignarrétt, sem
bankinn kann að áskilja.
8. gr. Innlausn spariskír-
teina fer fram í Seðla-
banka íslands. Eftir loka-
gjalddaga greiðast ekki
vextir af skírteinum, og
engar verðbætur eru
greiddar vegna hækkunar
vísitöiu byggingarkostn-
aðar eftir 15. september
1979.
9. gr. Allar kröfur sam-
kvæmt skírteini þessu
fyrnast, sé þeim ekki lýst
hjá Seðlabanka Islands
innan 10 ára, talið frá 15.
september 1979.
10. gr. Aðalskuldabréf
íárisins er geymt hjá Seðla-
þanka íslands.
Spariskírteinin verða til
söíu í vioskiptabönkum,
bankautibúum, stærri
sparisjóðum og hjá nokkr-
urn verðbréfasölum í
Reykjavík. Yakin er at-
liygli á því, að spariskír-
teini eru einnig seld í
afgreiðslu Seðlabankans,
Ingólfshvoli, Hafnarstræti
14. Salan hefst 28. april.
Apríl 1967.
SEÐLABANKI ; ■
ISLANDS