Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 1
57. árg. - Þriðjydagur 14. nóvember 1967. -- 262. tbl. J—> ■ > M M * Ú r {&*+' ’ j VI Brauzt inn og ætl- aði að kveikja W I Unglingspiltur handtekinn i Skáta- búðinni i gærkvóldi í Skátabúðinni við Snorrabraut var komið að unglingspilti í gær, sem var að gera tilraun til þess að kveikja í búðinni. Tókst verzl- unarstjóranum, sem kom að rétt eftir lokun verzli arinnar, að hafa hendur í hári piltsins og afhenti hann síðan lögreglunni. Hafði verzlunarstjórinn, Þor- grímur Ottósson, þegar hann kom kl. 7 í verzlunina, fundið reykjar- lykt og gengið á lyktina. Kom „Hernámsárin 1940-45## kostuðu 3 millj. krónu „Gala"-kvóld i Háskóla- biói i kvóld Fyrri hluti nýrrar íslenzkrar heimildarkvikmyndar, ' „Hemáms- árin 1940 til ’45“, verður frum- sýnd í Háskólabíói í kvöld við há- tiðlega viðhöfn — með „Gala“- kvöldi eins og tíðkast í mörgum öðrum löndum, þar sem ætlast er til að gestir mæti í dökkum fötum. — Myndin verður sýnd áfram í Háskólabíó og víðar út um land, 30—40 þúsund gestir þurfa að sjá hvom hluta myndarinnar tll þess, að framlei iandi, stjómandi og semiandi myndarinnar, Reynir Oddsson kvikmyndagerðarmaður, hafi fyrir kostnaðinum, en myndin mun hafa kostað um 3 milljónir króna. — Þess má geta, að um 60 búsund manns sáu kvikmyndina „79 á stöðinni“, þegar hún var sýnd. Fyrri hluti myndarinnar hefst á Hvítanesi á Hvalfirði árið 1967, en síðan er sýnt úr mynd sem danskir kvikmyndagerðarmenn tóku á íslandi s umrin 1938 og 1939. Myndin rekur síðan her- nám íslands, en jafnframt eru -"r.dar myndir af gangi stríðsins á meginlandi Evrópu og að nokkru leyti í Afríku, þar sem Þjóðverjar voru þá í mikilli sókn. — Eru Framh á bls. 10. hann þá að 13—14 ára gömlum pilti, sem hafði komizt inn í bak- húsnæði gegnum glugga, og hafði safnað saman bréfarusli, og kveikt í því. Hringdi verzlunarstjórinn á lögregluna, sem kom og tók pilt- inn í sína vörzlu. 70 litra umbúðirnar vinsælar. Mjólkurambúðir héism tíl Bahrein við Persaflóa Sænskir nðilor sýna áhugn á umbáðunum □ Nokkrar reynslusending- ar af 25 lítra mjóikurum- búðum frá Kassagerð Reykja- víkur hafa verið sendar til eyjarinnar Bahrein við Persa- flóa, og fór þriðja og væntan- lega síðasta reynslusendingin nú fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum sem Gylfi Hin- riksson vélfræðingur, for- stjóri Pappírsvara h.f., gaf blaðinu, var fyrsta reynslu- sendingin send um síðustu áramót, og hafa umbúðirnar líkað mjög vel. Danska fyrirtækið Mejerikont oret í Árhus rekur mjólkurbú á Bahrein eyjunni, þar sem mjólk er unnin úr mjólkurdufti frá Danmörku og Mejerikontor- et hafði milligöngu með send- ingu 25 lítra umbúðanna héðan. Gylfi er nýkominn frá fundi í Stokkhólmi, sem setinn var af helztu forsvarsmönnum mjólk- urbúa á Norðurlöndum og tjáði hann blaðinu að Finnar hefðu nú tekið í notkun 25 lítra mjólk urumbúðir héðan og einnig hefðu þeir mikinn áhuga á 10 lítra umbúðurtum. Einnig hafa Svíar sýnt mikinn áhuga á þess um miólkurumbúöum. Hafa um Reykjavík á Elliheimilinu Grund og einnig hefur herinn búðirnar líkað ágætlega og væntanlega verða hafnar reglu- legar sendingar á 25 lítra um- búðum til Bahrein eyjarinnar innan skamms. Þess skal getiö að þessar 25 lítra umbúðir eru notaðar hér í Framh á Dls 10. Litlafell fékk undan- þágu til að losa olíu Enginn sáttafundur i farmannadeilunni Enginn nýr sáttafundur hefur verið boðaöur í farmannadeilunni og deiluaðilar hafa ekki ræðst við síðan á laugardag. Samgöngumála- ráðuneytiö fór fram á þaö i gær við verkfailsnefnd Framannasam- bandsins, aö veitt yrði undanþága um olíuflutninga vegna hins alvar- leea olíuskorts, sem er að skapast víða í sambandi við rekstur raf- magnsveitna, fiskvinnslustöðva og síldarverksmiöja. — Hefur verk- fallsnefndin falilzt á, að Litlafell fengi að losa olíufram sinn á Blönduósi, Sa-öakróki, Fáskrúös- firði og Djúpavogi. — 1 morgun fjallaði nefndin um undanþágu- beiðni skipafélaga að fá að keyra ljósavélar og að því er einn í verk falisnefndinni tjáði Vísi, var ætl- unin að verða við þeirri beiðni. Sömuleiðis verður leyft að keyra allar vélar sem hafa eitthvert ör- yggisgildi. Þannig lita mjólkurkassarnir út, sem sendir verða til Bahrein. Efnahagsaðgerðirnar væntanlega af- greiddar til efri deildar / vikunni Umræður um málið hefjast að nýju i þingi i dag Efnahagsaðgerðir ríkisstjóm- arinnar eru á dagskrá fundar neðri deildar Aiþingis í dag, en fjárhagsnefnd deildarinnar skil- aði áliti um málið í gær. Klofn- aði nefndin í stjórnarsinna og stjórnarandstæð'nga, sem hvor- ir um sig skiluðu sínu áliti. — Hefjast nú umræður í dag að nýju, en þess er vænzt að málið verði afvreitt til efri deildar nú í vikunni. Leggur meiri hlutinn til, að frum- varpið verði samþykkt, en með þeim breytingum, að gert verði ráð fyrir 3% vísitöluuppbót, sem greið- ist á laun í þrem áföngum, og fjöl- skyldubætur með fleirum en einu bami, elli- og örorkulífeyrir hækki um 5%, án þess að tekjuskattur og útsvar verði greitt af þeirri hækkun. Ennfremur að verðbætur verði greiddar á frystar rækjur og erlendir ferðamenn og útlendingar, sem starfa hér skemur en eitt ár, verði undanþegnir farmiöaskatti. Hins vegar leggur minni hlutinn til, að frumvarpið verði fellt. Blaðið leitaði sér álits forseta neðri deildar Alþingis, Sigurðar Bjarnasonar alþingismanns á vænt- anlegum umræðum í dag, en hann sagði: „Þaö má búast við miklum um- ræðum í dag. Þetta er mál, sem mikill þys stendur út af og miklar umræður urðu um vig fyrstu um- ræðu þess. Að vísu hafa farið fram umræður milii ríkisstjórnarinnar og verkalýðssamtakanna og eftir fyrstu umræðu má heita, að málið sé útrætt. en samt má vænta mik- illa umræðna, þótt ekki sé hægt að segja fyrir um hversu langar þær kunni að verða.“ Tilboð í strandferðaskip- in tvö opnnð í dag Tilboð í smiði tveggja strand- ferðaskipa fyrir Skipaútgerö rikis- son forstjóri Skipaútgerðarinnar sagði Vísi í morgun, hafa öll til- ins verða opnuð í dag, en allmörg boðin ekki enn borizt, en búizt við tilboð munu hafa borizt í smíöi að nokkrir aðiiar muni koma meö skipanna. Að því er Guðjón Teits-1 eigin tilboð á fundinn í dag, þegar tilboðin verða opnuð. — Búizt er við tilboðum frá fjórum innlendum aðilum, en 20—30 tilboðum frá skipasmíðastöðvum í nágrannalönd unum. Nokkurn tíma mun taka að kanna öil tilboðin og því óvíst hve- :iær ákveðnu tilboði verður tekið. Hvert skipanna verður um 1000 lestir að stærð og sérstak- lega smíðað með auðvelda uppskip- un í huga. Fékk raflost við að slökkva á sjónvarpi Sjúkrabíll var kvaddur í gær til íbúöar einnar í bænum, en þar hafði maður fengið rafiost, þegar hann var að slökkva á sjónvarps- tæki sínu. Hann var meövitundar- laus, þegar að var komið, og var fluttur á Slysavarðstofuna, en síð- an var hann fluttur á Landakots- spítala og hafði þá komizt til meðvitundar. 8 ára telpa fyrir bíi Ekið var á 8 ára gamla telpu um kl. 5 á sunnudag, þegar hún var á leiö suður yfir gangbraut- ina á Hringbraut við Kennaraskól- ann Bifreiö á hægri akbraut, sem var á leið vestur Hringbraut, hafði stanzað til þess að hleypa telpunni yfir, en telpan- lenti fyrir fólks- bifreið, sem ók vinstri akrein. — Þrátt fyrir hin nýju blikkandi ljós, sem nú er búið aö setja upp við gangbrautina, sagöist ökumaður- inn ekki hafa gert sér grein fyrir af hverju bifreiðin hafði stanzað á hægri akrein. Hhfði þó ímyndað sér að hún biði þess að komást inn á Laufásveg, og varð ekki var ferða telpunnar, fyrr en hún hljóp í veg fyrir bifreið hans. Telpan skrámaðist í andliti og á handleggj um, en meiðsli hennar voru ekki talin alvarleg. Skall þarna hurð nærri hælum, en nú ætti að vera vorkunnarlaust að komast hjá gang brautarslysum, því ekki eru þær Framh. á 10. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.