Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 16
ÚMki&Uh. n l' 11 I iiTfltifflt' Aðild íslands að EFTA könnuð: Er hætta á ferðum í Strákagöngum? Slysavarnarmenn á Siglufirði senda áskorun til bæjarstjórnar SR í fullum gangi. Fremst er hiö stórvirka færiband, sem flytur afla J skipanna upp í þrær verksiniðjanna. <£_ £ Sá orðrómur hefur gengið manna á meðal, að ef til vill hafi verið rasað um ráð fram, þegar Strákagöng voru opnuð núna á dögunum. Að vísu hefur megináfanganum verið náð, ak- fært er orðið í gegnum fjaílið. ^ En máltækið segir „flýttu þér hægt“. Hefur verið Haförninn hefur flutt 50 jDÚs.tonn til bræðslu — Sildars'óltun á Siglufirði með minnsta móti Síldarflutningsskipið Haföminn hefur nú lokið síldarflutningum tii síldarverksmiðjanna á Siglufirði í bili. Alls hefur skipið flutt rúmlega 50 þúsund tonn til bræðslu. að má með sanni segja, að skip- ið hefur bætt mikið atvinnu á Siglu firði s.l. sumar og skapað miklar atvinnutekjur í bænum. Ennfremur er hlutverk þess sem birgðaskips fyrir síldarflotann á mjöig fjarlægum miðum alveg ómet- anlegt, og vandséð hvernig úthafs- veiðar hefðu verið framkvæmanleg- ar, ef stórra flutningaskipa hefði ekki notið við. Haförninn er 3300 tonn að stærð og eitt stærsta flutn- ingaskip íslendinga. Síldarsöltun á Siglufirði reyndist með minnsta móti s.l. sumar. Alls voru saltaöar 17.599 tunnur. Saltað hefur verið í 5300 tunnur fyrir Sigló-verksmiðjuna, og er það talið nægilegt hráefni fyrir hana til árs- ins. Lokið er nú vinnslu á full- „lagraðri" síld þar, og eru allar horf ur á, að verksmiðjan verði lokuð þar til síðari hluta vetrar, er hin nýja síld verður vinnsluhæf. Nokkur vinna er við söltunar- síldina, en nokkuð af henni er þeg- arfarið á erlendan markaö. gengið nægjanlega frá öryggis- útbúnaði í þessum umtöluðu göngum til að forsvaranlegt sé að opna þau almenningi til um- ferðar? Göngin eru að miklu leyti ófóðr- uð, og því nokkur hætta á grjót- hruni úr loftinu, og ennþá eru lang- ir kaflar í göngunum, þar sem dag- lega hrynur úr lofti. Ennfremur eru göngin óraflýst, en raflýsing mundi auka mjög ör- yggi gangandi og akandi vegfar- enda í þeim. Karladeild Slysavarnafélags Is- lands 1 Siglufirði hélt aðalfund sinn 1. nóv. sl. Á þeim fundi voru þessi mál mjög til umræðu og voru gerð- ar ýmsar ályktanir, þar að lútandi, og er eftirfarandi málsgrein úr á- skorun fundarmanna til bæjar- stjórnar Siglufjarðar: „Fundurinn skorar því á fyrir- svarsmenn bæjarins í bæjarstjórn Siglufjarðar, að þeir geri allt sem í þeirra valdi stendur til að knýja fram, þegar í stað, aögerðir til að fyrirbyggja hrunhættu í jarðgöng- unum, en það telur fundurinn að ekki verði gert með öórum hætti en að fóðra öll göngin og hvetur til þess, að það sé gert án þess að stórslys þurfi til að vekja menn til I hættu á Siglufirði t. d. um nauð- dáða í þessum efnum." syn þess, að sett verði ljós á hæstu Einnig voru gerðar ályktanir um byggingar í bænum (verksmiðju- önnur mál til að draga úr slysa-1 Framh, á bls. 10 Söltunin eystra / siðustu viku: 22 þás. tunnur af Saltað var á flestum stööum eystra síðustu viku og allt fram á sunnudag, en mestur hluti þeirr- ar síldar, sem ' land barst fór í salt. — Það sem barst á land i vikunni var yfirieitt úrvalssíld og veiðisvæði er nú mikiu nær landi en nokkru sinni fyrr í haust, eða allt upp undir 50 mílur frá landi. Saltað var í 22.328 tunnur £ vik- unni og nemur heildarsöltunin fyr- ir austan og norðan þá 223.970 tunnum. Mest hefur veriö saltað á Seyðisfirði eöa 45.930 tunnur (fram á iaugardag). Á Norðfirði var búið að salta í 26.320 tunnur og á Raufarhöfn hefur verið saltað í 26.529 tunnur, en þangað hefur engin síld borizt í langan tíma. Á Fáskrúðsfirði nam söltun á laugar- dag 24.565 tunnum. Hæsta söltunarstöðin fyrir austan er Hafaldan á Seyðisfiröi, þar hafði verið saltaö í 11.805 tunnur á laugardag. Bátamir voru byrjaðir að kasta á miðunum fyrir austan í morgun og höfðu tveir tilkynnt um afla í morgun til síldarleitarinnar á Dalatanga. Annar þeirra fékk afla sinn í Breiðamerkurdýpi, en þar hefur ekki frétzt af veiði fyrr i sumar og haust. GETUM EKKIBEÐID ÞESS AÐ EFTA-LÖNDIN GANGI f EBE — segir viðskiptamálaráðherra — Stækkað Efnahagsbandalag verður ef til vill ekki bað sama og nú Fjögurra manna nefnd með fulltrúum allra stjórn- málaflokka hefur verið skipuð til að undirbúa og rannsaka allt, sem máli skiptir vegna hugsanlegr- ar aðildar íslands að EFTA, Fríverzlunarbandalagi Evrópu og vegna hugsanlegs viðskiptasamnings við EBE, Efnahagsbandalagið. — Viðskiptamálaráð- herra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, skýrði frá þessu á // blaðamannafundi í gær. Hann sagði að allur und- irbúningur og rannsóknir vegna þess máls væri svo umfangsmikið, að allur veturinn færi trúlega í það, þannig að umsókn íslands að EFTA yrði í fyrsta lagi lögð fram næsta vor, ef af því yrði. Viðskiptamálaráðherrann gat þess í upphafi blaðamannafundar- ins, að það hefði verið einn liður í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar, sem forsætisráöherra flutti í þingbvrjun, að fullnaðarkönnun yrði gerð á hugsanlegri aðild ís- lands að EFTA jafnframt því, sem viðskiptasamningur við EBE vrði kannaður. — Niðurstaðan af við- ræðum ríkisstjómarinnar um þetta mál hefði síðan orðið sú að óska eftir samráði við stjórnarandstöð- una um málið. Samband var haft við forráðamenn stjómarandstöðu- flokkanna um þetta £ fyrri viku og voru undirtektir þeirra góðar og Framh. á bls. 10. Haföminn við löndunarbryggju SR. Þriðjudagur 14. nóvember 1967. „Regina Maris" kvikmynd- uð á Miðjarðarhafi „Regina Maris“, sem hefur flutt margan þorstlátan landann suöur um höf, er nú að ijúka við vel heppnaða siglingu umhverfis jörð- ina. Þekkt kvikmyndafélag, sem hef- ur einkarétt á að kvikmynda sögur Josephs Conrads (nýlega var gerð mynd eftir sögu hans,' Lord Jim, sem Peter O’Toole i aðalhlutverki), hefur lýst yfir áhuga sínum á að taka „Reglna Maris“ á leigu við kvikmyndatöku á Miðjarðarhafi. Eigandinn, John Age Wilson skipstjóri, telur, aö hann muni taka tilboöi kvikmyndafélagsins: „Félagið býður svo mikið fyrir lánið, að ég get sjálfur siglt skip- inu niður á Miðjarðarhaf og áætl- að mánuð fyrir þá ferð, mánuð fyrir dvölina þar og mánuð fyrir heimleiðina. En sjálf kvikmynda- takan mun fara fram á Miðjarðar- hafinu."

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.