Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 12

Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 12
( 12 íi^sa VI SIR . Þriðjudagur 14. nóvember 1967. -itóaiíaaflsii Ég heyröi ekki frekari orðaskil. Það fór um mig ískaldur hrollur og mér fannst sem hjarta mitt hætti að slá. Svo kom Fabienne aftur, og var 'nú kát og hress. „Sem betur fór haföi ekkert komið fyrir hann ... bíllinn bilaði eitt- hvað eins og venjulega. Ég hefði átt að geta sagt mér það sjálf ... sagði hún. Andartaki síöar bætti hún viö, eins og hún þættist vita að ég heföi rennt í grun £ hvemig allt var í pottinn búiö: „Þetta er und- arlegt ... ég er alltaf svo hrædd um að ég kunni að missa hann!“ Ég tók á því, sem ég átti til og spurði eins og mér kæmi svarið í rauninni ekkert við: „Hefurðu verið ástmey hans lengi?“ „Síðan í júlímánuði. Við biöum með það þangað til fólkið úr fanga búðunum var komið heim aftur.“ Ég gat ekki látið vera að hrósa henni fyrir þá staöfestu að láta ekki undan fyrr, en hún tók ekki eftir hæðnishreimnum í rödd minni, það var auðheyrt á svari hennar. „Það skal töggur til að verjast Stan í næstum þv£ ár“, sagði hún. „Eins og þér hafið séö, þá er hann ákaflega aðlaðandi. Þér jfljót iö að hafa veitt athygli brosi hans ... dálltið mæðulegt, eins og hann hafi fengið sig fullsaddan á líf- inu, og vekur með manni einlæga löngun til að hughreysta hann. Þér eigiö það líka til að brosa þannig...“ Fallega sagt! Hún var farin aö þéra mig aftur, ef til vill ósjálf- rátt eöa þá ráöin vísbending til mín... hver ég væri, eöa öllu heldur hver ég væri ekki. „Ég vona að yður hafi ekki kom ið þetta beinlínis á óvart“, mælti hún enn. „Við vorum ekkert að minnast á það aö fyrra bragði, töldum víst aö yður yrði það ljóst áður en langt um liði“. Ég hlaut að vera orðin meir en lítið skilningssljó, fyrst ég gat1 ekki gripið hvað Pierre var að fara með dylgjum sínum. Eða að þar hefur sannazt sem endranær, : að ástin blindar augu manns. „Þér hafið þegar komizt yfir mikilvægasta hluta arfsins", varð mér að oröi. „Já, er þetta ekki furðulegt... móðir mín hefur gert meira fyrir mig látin, en á meöan hún var á lífi“. „Hafið þér þá ástæðu til að i álasa henni?" Hún hikaði, en mælti svo og mat hvert orð: „Maöur verður að kynnast fólki til þess að geta lagt fæö á það. Ég kynntist móður minni aldrei svo náið, að ég fengi ástæðu til að álasa henni. 1 rauninni lét hún mér allt í té — nema sjálfa sig. Með öðrum orðum, minna en ekki neitt!“ Ég breytti um umræöuefni meö því að spyrja, þótt ég væri búin að vita svarið um skeið: „Voruð það ekki þér, sem áttuð hugmynd ina aö því, að ég yrði fengin til aö leika þetta hlutverk?" „Jú, jú — vitanlega var það ég“ svaraði, hún hiklaust. „Stan er til lftils nýtur nema við skákborðiö og í rekkjunni. Ég valdi yður meira að segja í hlutverkiö". Það kom mér á óvart. „Kvöld nokkurt, þegar ég var á gangi um Champs-Elysées, var sem ég sæi vofu speglast í búðar- glugga. Það voruö þér, sem stóð- uð við gluggann og virtuð fyrir yður kvenfatnað, sem þar var til sýnis. Þér minntuð mig svo sterk lega á móður mína, að við sjálft lá að ég rétti yður höndina og ávarpaði yður. En svo áttaði ég mig á því, aö vangasvipurinn var eilítið frábrugðinn. Auk þess vor uð þér svo glæsileg og róleg. Þótt ég vissi að þama hlyti að hafa verið um misskynjun að ræða veitti ég yður eftirför heim undir hið ríkmannlega hótel þarna í grennd. Um nóttina, þegar ég var að berjast við að sofna, kom mér svo allt í einu þetta snjallræði í hug. Ég vakti Stan, sem tók þessu fjarri fyrst, en lét svo tilleiðast að athuga máliö, fyrst og fremst fyrir þrábeiðni mína, en ekki að hann tryði mér til hlítar. Þegar hann hafði snætt kvöldverð í hótel inu í því skyni að geta virt yöur fyrir sér, var hann aftur á móti sannfærður“. Eftir þetta felldum viö talið að mestu, skiptumst aðeins á fáum hversdagslegum orðum á meðan við biöum þess að Stan kæmi heim. Ég var utan við mig, tilfinningar mínar allar á ringulreið og ógerlegt fyrir mig að hugsa skipulega. Framkoma Fabienne var svo eðli- leg afstaða hennar svo sjálfsögð, að mér var ofaukið að mér fannst, gagnvart æsku hennar var ég dæmd til að lúta í lægra haldi, ég var farin að kröftum og ^áræöi, gömul og þreytt. Klukkan var rúmlega hálf eitt, þegar Stan kom heim. Hann var í sólskinsskapi, þrátt fyrir töfina og tók að skýra okkur nákvæmlega frá biluninni, það var flókið mál og tók hann drykklanga stund að gera því þau skil, sem hann taldi viðhlítandi. „Þessi bíll er að’ gera mig vitstola“, sagöi hann að lok- um. „Það er ein af raunum fá- tæklingsins að verða að kaupa notaða bílskrjóða. Sannarlega tími til kominn>að maður þurfi ekki að horfa í hvern skilding". Þegar hér var komið sögu, bauö Fabienne Stan góða nótt með kossi og lýsti yfir þvl að hún væri farin upp að hátta. „Hún veit allt“, I sagði hún glaðlega, „svo okkur er ; óþarft að látast...“ j Stan varð vandræðalegur á svip inn, blimskakkaði á mig augunum og fór allur hjá sér. „Þú þarft ekki að láta þér bregöa", sagði ég. „Þegar á allt er litið, er það nokkurn veginn víst, að Elizabeth er ekki lengur á lífl". Hann áttaði sig og brosti. „Ég get ekki álasað sjálfum mér fyr- ir neitt I þessu sambandi. Dóttirin gerði jafnvel enn harðari hríð að mér en móðir hennar forðum, og viö værum komin I hjónaband, ef það hefði komið opinberlega fram að Elizabeth væri látin. En leikur þinn I hlutverki hennar er svo fullkominn, að við sjálft liggur aö þaö veki með mér sektarkennd ...“ „Mér mundi falla betur, að þú værir aldrei I neinum vafa um að leikur er ekki annað en leikur". Stan hleypti brúnum. „Ég hlýt að viðurkenna, þér til hróss, að þú veitir mér ekki neina aðstoð hvaö það snertir. Hingað til hef ég veriö vantrúaður á allar sögusagnir um tvlfara, álitið þær uppspuna, en þú hefur fengið mig til að skipta um skoðun. Það er því ekki nema eðlilegt, að þaö valdi mér áhyggjum og heilabrotum endrum og eins“. Ég lét í ljós, að mér þætti fyrir því, en hann vildi bersýnilega eyða málinu og brá á glens. „Láttu þér það I léttu rúmi liggja. Ég venst því fljótlega, að halda framhjá vofu Elizabethar I návist hennar ...“ Ég spurði, eilítið hikandi: „Finnst þér þessi telpa svo töfrandi?" Hann hristi höfuðið. „Hún hef- ur ekki hjartalagið hennar möður sinnar, því miður, en önnur við- komandi líffæri hennar eru dásam leg. Og við erum mjög samrýnd.' „Hún virðist tilbiöja þig“, mælti ég enn. „Já... já. Hún var hrein mey, þpgar við kynntumst, og þú veizt hýe stúlkur'binda mikla tryggö við þann, séiti' fýrstur svalar kynþörf þeirra. Jafnvel alla ævi, á hverju sem veltur síöar... og hún er á þeim aldri, þegar ást og ástríöa verður ekki aðskilið. Það verða tv£ vegis straumhvörf á ævj konunn- ar, um tvítugt og fertugt... þeg- ar dyr lífsins opnast þeim, og þeg ar hurð sígur aftur aö stöfum.. 136.800.- 'mmrnm ' EVEN !F WE PIDN'T HIT HfM — MAVBE HE DROPPEP THE PACK , , . WITH THE r MDNEV IN rr, from L fright / / „Dreifið ykkur og leitið I nágrenninu.“ „Jafnvel þótt við höfum ekki hitt hann, hefur hann kannski sleppt töskunni með laonagrelðslunum af hræðslu." ’BltAlttSAM RAUDARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 LAUQAVEGI METZELER Vetrarhjólbarðamir koma snjó- negldir frá METZELER verk- smiöjunum. BARÐHMN Ármúla 7. Sími 30501. HJÓLBARÐASTÖÐIN Grensásvegi 18. Sími 33804. AÐALSTÖÐIN Hafnargötu 86, Keflavík. Slmi 92-1517. Almenna Verzlunarfélagið Skipholti 15. Slmi 10199. SPARIfl OG RfRiRKOFN Eldhusið, sem allar húsmœður dreymir um Hagkvœmni. stílfegurð og vönduð vinna á öllu. Skipuleggjum og gerum yður fast verðfilboð. Leitið upplýsinga. Sölubörn óskast Hafið samband við afgreiðsluna Hverfisgötu 55. VISIR |j Knútur Bruun hdl. Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Simi 24940.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.