Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 8

Vísir - 14.11.1967, Blaðsíða 8
8 mm VÍSIR UtKefandi: Blaðaútgatan vumuk Framkvæmdastjóri: Dagui Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson AOstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóni: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Askriftargjald kr 100.00 á mánuði innanlands í lausasölu kt. 7.00 eintakið Prents...iðjr Vlsis — Edda h.f. „Völkischer Beobachfer" Islands \ „Dólgslegar hótanir og stríðsögrun“ hljóðaði fyrir- sögn forustugreinar Tímans um daginn. Slíkt orð- bragð er ekki að jafnaði á þessum stað, en oft í áttina. í sömu vikunni mátti lesa forustugreinar með fyrir- sögnunum „Fúkyrðakveðjur“ og „Hræsnin uppmál- uð“. Þessar fyrirsagnir eru dæmigerðar fyrir alvar- lega þróun, sem hefur orðið í stjórnmálaskrifum Tím- ans. Frétj/ir og greinar um stjórnmál í blaðinu bera síaukinn keim af aðalblaði Þýzkalands á Hitlerstím- anum, „Völkischer Beobachter“. Hitlersblaðið var alræmt fyrir margra hluta sakir. Þar á meðal var tvennt, sem nú er farið að einkenna dagblaðið Tímann. Hið fyrra er ströng ritskoðun á staðreyndum, sem gengur svo langt, að málsgrein- ar úr ummælum manna eru bútaðar niður og brotin birt til að gefa ranga mynd. Hitt er hin stöðuga til- vísun til þjóðemistilfinninga. Nýlega birti Tíminn í löngu máli yfirlýsingu og greinargerð frá útvegsmönnum og gætti þess að skera burt alla málsgreinarhluta, sem ekki þóttu hagstæðir. Þannig var m. a. sleppt setningunum „Efnahagsleg velgengni íslenzku þjóðarinnar hefur aldrei verið eins mikil og hraðvaxandi..„Hinn stórbatnandi þjóð- arhagur á þessum árum á fyrst og fremst rætur að rekja til...“ o'g „... og þar með varanlega stórfellda kjararýrnun og jafnvel neyð allrar þjóðarinnar. Verð- ur að vænta þess, að þjóðin taki slíkum ráðstöfunum með skilningi, þótt það kunni að kosta fómir í bili“. Tímanum líkaði ekki þessar setningar og því vom þær skornar úr málsgreinunum. Algengt er orðið í seinni tíð, að Tíminn birti á þennan hátt skorna kafla úr öðr- um dagblöðum og leggi síðan út af rangfærðri mein- ingu. ) Einnig leggur Tíminn oft áherzlu á smjaður fyrir þjóðinni í heild og notar hvert tækifæri til að höfða til æstra þjóðernistilfinninga. Flestir munu hins vegar sammála um, að hæfileg sjálfsgagnrýni þjóðar sé heil- brigð og skortur á henni sé stórhættulegur. Tíminn er vanur að kalla slíka gagnrýni róg. Vísir hefur stund- um birt efni, þar sem gagnrýnt er ýmislegt í fari þj óð-/ arinnar. í haust birtist forustugrein um vinnusvik hér á landi og nýlega önnur um vaxandi ódugnað og ósjálfstæði. Vísir stendur við þessa gagnrýni og mun halda henni áfram eftir þörfum, því að gagnrýni er þarfari en smjaður. Þessa gagnrýni tók Tíminn til meðferðar með ummælum um, að svona væri nú á Vísi hugsað ti! þjóðarinnar. Þessi afstaða Tímans er dæmigerð. Blaðið höfðar til þjóðemisofstækis og stuðlar að því, í stað þess að efla heilbrigða og hóf- lega þjóðernisvitund. Fullseint er orðið fyrir Tímann að taka „Völkischer Beobachter“ til fyrirmyndar, og er líklegt, að blaðið hafi ekki árangur sem erfiði. - ■■■■■■■■ V í S I R . Þriðjudagur 14. nóvember 1967, m'mpnmmmssz æs&msss& 'zzr. 'JaKOBgmmamaBam Framtíð Norður-At- lantshafsbandalagsins Ný skipan rædd á utanrikisráðherrafundinum / næsta mánuði 1 fréttum frá Brussel — sem nú er höfuðsetur Norður-Atl- antshafsbandalagsins — segir, að hinar vestrænu bandalags- þjóðlr Frakka hafi nú náð sam- komulagi við þá um athuganir varðandi framtíðarskipan og hlutverk bandalagsins. „í lok viðræðna hér“, segir i ofannefndum fréttum, „um víð- tækara stjómmálalegt hlutverk, lýstu allmargir fulltrúar yfir, að þjóöir þeirra ætluðu að vera áfram í bandalaginu með breyttu skipulagi og nýrri stefnu eða viðhorfi (new look).“ Áður hafði verið talið, að ef Frakkland gengi úr banda- laginu 1969, kynnu önnur lönd, einkanlega Noregur og Danmörk, aö fara í þessu að frönsku fordæmi. Manlio Brosio. HARMEL- ÁÆTLUNIN Harmel, utanríkisráöherra Belgíu, lagði hana fyrst fram á fundi utanrikisráðherranna í desember sl., en nærri lá, að af- staða fulltrúa Frakklands leiddi til þess, að athuganir á henni stöðvuðust. Fulltrúar Frakk- lands héldu þvi fram, að það væri tilgangslaust, að halda á- fram athugunum vegna mikils ágreinings um fjórar skýrslur og greinargerðir, er fyrir lægju. En fulltrúar hinna gáfust ekki upp og héldu málinu vakandi og þegar þeir höfðu fengið ný fyrirmæli frá ríkisstjómum sín- um allra fjórtán, létu Frakkar undan. Þeir féllust á, að fram- kvæmdastjóra bandalagsins, Manlio Brosio yrði falið að gera uppkast að áætlun og hafa lok- ið því f seinasta lagi 22. þ. m., og skyldi hann á „engan hátt bundinn hinum fjómm ofan- nefndu skýrslum.“ Og nú er ráðgert að Harmel- tillögumar verði ræddar á næsta fundi utanríkisráðherra bandalagsins, sem verður hald- inn í næsta mánuði, en sérleg nefnd hefur haft þær til athug- unar. Frakkar vilja athafnafrelsi til aögerða pg vilja ekki einu sinni ‘ umræöur um ’slíkt innan vé- banda bandalagsins, og afstaða Bandaríkjanna er ef til vill ekki eins frábrugöin afstöðu Frakka og ætla mætti. Bandaríkjastjóm fór þá fyrst að líta Harmeltil- lögumar hýrara auga, er henni varö Ijóst orðið, að aöeins við- ræðna var krafizt,— ekki sam- eiginlegra aðgerða. Bandarfkja- menn vilja víðtæka samræmingu sjónarmiða, en vilja halda op- inni leið til sjálfstæðra aðgerða hvers landsins um sig. Fulltrúar margra hinna ríkj- anna aðhyllast stefnu, sem gæti orðig gagnleg til þess að sannfæra almenning um, að á- formað væri að NATO yrði ekki einungis hernaðarlegt, heldur færðist starfsemin yfir á stjóm- málalegan vettvang til þess að vinna að betri samskiptum milli austurs og vesturs. Og nú telja þessir fulltrúar líkur fyrir, að slikar tillögur gætu náð fram að ganga — og hafa ekki eins miklar áhyggjur af því ogiýrr, ef Frakkar heltust úr lestinni. Vilja þær þó, eins og sakir standa, slaka dálítið til, varð- andi Harmeltillögumar, gæti það orðið til þess, að Frakkar fæm ekki úr bandalaginu, en verði Frakkar of kröfuharðir munu þessi 14 lönd ekki láta undan, — þótt Frakkar fari. Vaxandi ágreiningur í Alsír um hlutverk byltingarráðs- ins milli Boumedienne og yf irmanns herráðsins { fréttum frá Alsír er sagt frá alvarlegum ágreiningi mllli Bou- medienne forsætisráðherra og Tahir Zbiri ofursta, yfirmanns herforingjaráðsins. Ágreiningur- inn á sér djúpar rætur og er um hlutverk byltingarráðsins G>g um það, að hve miklu leyti alsirsk stefna skuli hvíla á sósíalistí<>k- um stoðum. í byltingarráðinu eiga sæti 26 raenn og var það stofnað í júní 1965 eftir að Ben Bella hafði verið handtekinn, en þremur ár- um áöur var stofnað til sam- taka þeirra, sem nefnast Oudja, þótt ekki kæmu þau í dagsbirt- una strax, en það voru þau, sem steyptu Ben Bella. f þessum samtökum em Bou- medienne forsætisráðherra, að- alleiðtogi, Bouteflika utanrikis- ráðherra, Medeghri innanríkis- ráðherra og Kaid Ahmed Kaid, fjármálaráðherra, svo og FLN- leiðtoginn Cherif Belkacem. — Þessi samtök með Boumedienne í broddi fylkingar horfast nú að sögn í augu við harðnandi andspymu Zbiri og hans manna, sem studdir era af nokkrum verkalýðsfélögum að minnsta kosti, stúdentafélögum og fleir- um, en herinn er sagður klof- inn. Boumedienne.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.