Vísir - 19.01.1968, Síða 3
V í SIR . Föstudagur 19, janúar 1968,
3
Montevago — lagðist í rústir,
SIKILEY
Landskjdlftarnir hinir mestu síðan
Messina var lögð í rústir 1908
\ ðfaranótt mánudags síðast
liðins er einhver mesta
skelfingarnótt af völdum nátt-
úruhamfara á ítaliu, en þá
lögðu harðir kippir nokkra bæi
á Sikiley vestanverðri algerlega
að kalla í rústir. Fréttimar hafa
síðan verið að koma margsinnis
á dag um hörmungamar, en
enn fer fiarri, að öll kurl séu
komin til grafar, enn er fólkið
á landskjálftasvæðinu lostið
skelfingu og þeir flýja sem burt
geta komizt. Upphaflegar á-
gizkanir um að 500 hafi farizt
munu sennilega reynast réttar.
Á annað þúsund hafa meiðzt
mcira og minna, á annað þús-
und manna er enn saknað, tug-
þúsundir eru heimilislr.usir.
Eyðileggingin 02 eymdin af
völdum landskjálftanna er
meiri en dæmi eru til á eynni
síðan 1908, er landskjálftar
lögðu borgina Messina í eyði.
Flóttafólk frá Gibellina.