Vísir - 17.02.1968, Síða 13
V í S í R. Laugardagur 17. februar rSóo.
13
msss
Tllð árlega skákmót í Hast-
A ings olli að þessu sinni niikl
inn vonbrigðum. Boðið hafði ver
ið til mótsins fjórum skák-
meisturum, Stein, Suetin, Hort
og Gheorgiu. Áttu þessi frægu
nöfn ásamt ungum og efnileg-
um enskum skákmönnum, að
vera trygging fyrir jafnri og
skemmtilegri keppni. Jöfn varö
keppnin óneitanlega, en ekki að
sama skapi skemmtileg. Stór-
meistaramir fjórir gerðu allir
jafntefli innbyrðis, um eða inn
an við 20 leiki og unnu síðan
skák og skák af neðri mönnum.
Enginn af fjórmenningunum tók
á sig neina áhættu og eins og
eftir þegjandi samkomulagi uröu
þeir, allir jafnir og efstir með 6
vinninga af 9 mögulegum. Skák-
mótið olli nokkmm úlfaþyt, m.
sl sagöi stjómandi mótsins, F.
Rhoden, af sér í mótmælaskyni
við hin svoköiluðu stórmeistara-
jafntefli. Rhoden féllst þó síðar
á að draga afsögn sina til baka,
en Rhoden hefur unnið ómetan-
legt starf í sambandi við Hast-
ingsskákmótin.
Eins og kunnugt er varð Bent
Larsen efstur í Mallorca-skák-
mótinu, % vinning fyrir ofan
Botvinnik og Smyslov. Þótt Lar-
sen yrði Botvinnik hlutskarpari
að þessu sinni, hafði Botvinnik
ánægjuna af því að sigra Larsen
í skák þeirra. Fer skákin hér á
eftir.
Hvítt: Botvinnik
• Svart: Larsen
lw.«4 Rf6 2. Rf3 e6 3. g3 d5 4.
Bg2 Be7 5. 0-0 0-0 6. b3
Botvinnik velur hér leið sem
hann hefur oft teflt á skákmót-
um í Sovétríkjunum með góð-
um árangri.
6.... c5
Annar möguieiki var 6 ... d4 7.
Bb2 Rc6
7. Bb2 Rc6 8. e3 b6 9. Rc3 Bb7
10. d3 Hc8 11. Hcl Hc7 12. De2
Hd7
Svartur er hér í nokkrum vand-
ræðum. Svarta drottningin á
fárra góðra reita völ og hrók-
urinn á d7 er ekki vel settur.
13. Hedl He8 14. cxd Rxd
Larsen hefur líklega óttazt eftir
14.. . exd 15. Bh3 d4! 16. Re4
Hc7 17. exd cxd 18. Dd2 og
hvítur stendur betur.
15. RxR HxR
15 ... exR 16. d4 Bf8 heföi ver-
iö öruggari leið fyrir svartan.
16. d4 Da8 17. dxc HxHt 18.
HxH Bxc 19. Rg5 h6 20. Re4
Bf8 21. Hd7 f5 22. Rd6?
Hér missir Botvinnik af skemmti
legum vinningsleiðum. T. d. 22.
Rf6t! gxR 23. Dh5 He7 24. BxR
BxB 25. Dg6t Hg.7 26. HxHt
BxH 27. Bxf Df8 28. BxB DxB
29. Dxet
Eða: 22. Dh5! He7 23. HxH RxH
24. Rd6 BxB 25. Df7t Kh7 26.
Bxg!
22.. . BxR 23. HxB Rd4! 24.
HxR BxB 25. Hd7 Bh3? 26. f3
Hd8 27. Hxgt
Hér var Dd2! fljótlegri vinnings-
leið. T. d. 27... HxH 28. DxH
Df8 22. Dxa.
27 ... Kf8 28. Hh7 Dd5 29. Kf2
Ddl 30. Hh8t Kf7 31. HxH DxH
32. Dc2 Dd5 33. Dc7t Ke8 34.
Db8t Kd7?
34.. . Dd8! 35. DxDt KxD 36.
g4 fxg 37. Kg3 h5 38. Kh4 hefði
gefið svörtum meiri von.
35. Dxat Kc8 36. Da6t Kc7 37.
Dc4t! DxD 38. bxD Kc6 39. Bd4
h5 40. a4 Kc7 41. c5 bxc 42.
Bxc Kc6 43. Bb4 Kb6 44. g4
hxg 45. Kg3 e5? 46. e4 fxe 47.
fxg.
Og hér gafst Larsen upp.
FRÁ
TAFLFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Ungur færeyskur skákmaður,
Rubek Rubeksen, er væntanleg-
ur hingað til lands £ boði T.R.
1 sambandi við komu Rubeks
gengst T.R. fyrir 7 umferða Mon
rad móti. Leiknir verða 36 leik-
ir á 1 y2 tíma og skal skákinni
síðan lokið á y2 tíma. Mótið
hefst 20. febrúar og er öllum
meistaraflokksmönnum T.R.
heimil þátttaka. Þátttaka í mót-
inu tilkynnist stjórn T.R. sem ,
allra fyrst.
Nokkur atriði varðandi
ir
Jóhann Sigurjónsson. /
7.V.V.V.V.V.V.V.,.V.VAV.VAV.V.V.V.,i
Vegalengd sú, sem bifreið fer
frá því ökumaður skynlar skyndi-
lega þörf á hemlun og þar til hún
hefur numið staðar, er kölluð
stöðvunarvegalengd.
Stöðvunarvegalengd bifreiðar er
misjafnlega löng eftir aðstæöum
Auðvelt er að gera sér grein fyrir
því, aö stöðvunarvegalengdin eykst
viö aukinn hraða bifreiöarinnar, en
minnkar við minni hraða bifreiðar.
Sem dæmi má t.d. nefna, aö stöðv-
unarvegalengd bifreiðar sem ekið
er með 70 km. hraða á klst. eftir
þurrum malarvegi er GGl/2 m, en
sé hraði bifreiðarinnar aftur á
móti helmingi minnl, eða 35 km á
klukkustund, er stöðvunarvega-
lengdin „aðeins“ 21 m.
Stöðvunarvegalengd = viðbragðs-
vegalengd + hemlunarvegalengd.
Stöðvunarvegalengdinni er venju
lega skipt £ tvo hluta, þ.e. við-
bragðsvegalengd og hemlunarvega
lengd. Viðbragðsvegalengdin er
raunverulega mælikvarði á við-
bragðsflýti eða snarræði öku
manns. Allir ökumenn vita aftur á
móti, að það eru margvisleg og
margs konar atriði, sem hafa áhrif
á snarræði þeirra. Þreyta, áfengis-
nautn o. fl. sljógvar öll skilningar-
vit og dregur stórlega úr athygl-
inni, sem aftur dregur stórlega úr
snarræði ökumanns. Þekking
manna á umferðarreglum og gott
likamlegt ástand þeirra, eykur snar
ræði og athvglisgáfu og minnkar
þar með viðbragðsvegalengdina. At
huganir eftir árekstra hafa leitt í
ljós, að alít að 9 sek. geta liðið
frá þvi ökumaður skynjar hættu
og þar til hann stígur á fóthemil.
Gott líkamlegt ástand ökumanna,
ásamt hugariafnvægi þeirra minnk-
ar þvi viðbragðsvegalengdina.
Hemlunarvegalengdin er aftur á
móti mælikvarði á hæfni og út-
búnað bifreiðarinnar og ástand
vegarins. Ýmis augljós atriði hafa
áhif á hemlunarvegalengdina og
má þar m. a. nefna hraða ökutæk-
isins, er hemlun hefst, halla vegar-
ins, gerð hemlabúnaðar, tala þeirra
hjóla sem hemlað er, gerð hjól-
barða etc. Nú á þessum tíma árs-
ins eru það einkum þrjú atriði, sem
ökumenn ættu að athuga gaumgæfi
lega varðandi hemlun og hemlunar-
vegalengdir. Eitt þessara atriða á
reyndar bæði við vetrarakstur og
sumarakstur, en það er hraði öku-
tækisins.
Með auknum hraða ökutækis-
ins eykst hemlunarvegalengd, en
hún minnkar, sé hraði ökutækis-
ins minnkaður. Sem dæmi má
nefna, að sé bifreið ekið með hraö-
anum 70 km. á klst. er hemlunar-
vegalengd hennar undir ákveðnum
kringumstæðum 49 m, en sé hrað-
inn minnkaður um helming, niður
í 35 km á klst., en aðrar aðstæður
haldast óbreyttar minnkar hemlun
arvegalengdin í 12,25 m.
Samband hraða bifreiðarinnar og
hemlunarvegalengdar hennar ættu
ökumenn því ávallt að hafa í huga.
Ástand vegar hefur mjög mikil
áhrif á hemlunarvegalengdir bifreið
ar, sem eftir honum ekur. Auðvelt
er að gera sér í hugarlund, að bif-
reið stöðvast á skemmri vegalengd
á þurru malbiki en t.d. ísuðum
+ 10. síðu.
Greinileg hemlaför á þurru malbiki. Góöur ökumaður metur
rétt vegalengd þá, sem nauðsynleg er til að stöðva bifreiðina.
f