Vísir - 03.04.1968, Blaðsíða 7
VTS IR . MlðvWnTdagur 3. april 1968.
mcrgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun útlönd 'í raorgim ^útlönd
Skömmu áður en Johnson forseti tók ákvarðanir þær, sem hann boðaði í ræðu þeirrl, sem sjónvarpað var frá Hvíta húsinu, ræddi
hann Víetnamstyrjöldina við Abrams hershöfðingja, aðstoðaryfir hershöfðingja í Suður-Víetnam, en hann er talinn líklegur eftir-
maður Westmorelands, er hann lætur af embntti í maí, og Earle Wheeler, yfirmann hins sameinaða foringjaráðs Bandaríkjanna. -
Creighton Abrams lengst til vinstri, Johnson í miðið, Wheeler t. h.
FORSETI SUÐUR-VIETNAM FELLST
Á STÖÐVUN SPRENGJUÁRÁSANNA
— en hótaði samtimis allsherjar hervæðingu, ef
Hanoistjórnin féllist ekki á samkomulagsumleitanir
Nguyen van Thieu ríkisforseti
Suöur-Víetnam ræddi við frétta-
menn í gær og kvaðst hafa fallizt
á ákvörðun Johnsons Bándaríkja-
forsetá dttkað hætta sprengjuárás-
um á mestan hluta Norður-Vfet-
nams.
En samtímis varaði hann stjórn-
ina í Hanoi við afleiðingum þess,
ef hún gripi ekki tækifærið, sem
hér byðist til samkoimulagsumleit-
ana, — ef hún gerði það ekki myndi
hann fyrirskipa almenna hervæð-
ingu í Suður-Víetnam.
Van Thieu sagði, að Johnson
hefði ráðgazt við sig áður en hann
flutti ræðuna, þar sem hann boð-
aði ofannefnda ákvörðun sína. Van
Thieu lét i Ijós von um, að ákvörö-
unin leiddi til friðar. Þá kvaðst
hann aldrei munu biðja Bandaríkja-
í tilkynningu bandaríska land-
vamaráðuneytisins um takmarkan^
ir á sprengjuárásum á Norður-Viet-
nam er miðaö við 20. breiddar-
baug, og segir i NTB-frétt, að hann
liggi um 20 kílómetrum fyrir norð-
an Thanh Hoa, sem sé 320 km.
norðan afvopnuðu spildunnar og
110 km sunnan Hanoi. Thanh
Hoa er m'kilvæg samgöngumiðstöð
og miklir her- og birgðaflutnirigar
fara þar um, segir í bandarískum
fréttum.
Tilkynpingin í Washington var
birt, eftir að það hafði komiö mönn
um á óvart og valdið kvíða, að á-
rásir voru eerðar miklu norðar en
menn höfðu búizt viö, og skoraði
Fulbright öldungadeildarþingmaöur
á forsetann að gera nánari grein
fyrir ákvöröun sinni.
Greinilegar fréttir hafa ekki bor-
izt frá úrslitum forkosninganna í
Wisconsin, en McCarthy mun hafa
I ■ iiii————l^——
menn um að fara frá Víetnam, en
á þessu ári ætti að vera hægt að
efla svo her Suður-Víetnam, að
Bandaríkjamenn gætu dregiö úr
herafla sínum, ef þeir óskuðu þess.
Loks sagði hann, að ef Banda-
ríkjamenn gætu ekki aukið herafla
sinn í Suður-Víetnam, myndi hann
biðja aöra bandamenn Suður-Víet-
nam, að senda þangaö aukið lið.
ENN LEYND I HANOI...
Enn hvíldi leynd yfir því í gær
í Hanoi hvert svar stjórnarinnar
mundi verða við hvatningu John-
sons, að setjast að samningaboröi,
en það er ekkert óvanalegt, segir
í NTB-frétt, að „nokkur tími líði
þar til Hanoi-stiórnin svarar".
Erlendir sendimenn f Hanoi eru
vantrúaöir á jákvæða afstöðu, þar
sem ekki hefur verið fallizt á kröfu
haft talsveröum mun meira fylgi en
Johnson.
Landvamaráðuneyti Bandaríkj-
anna birti f gær tilkynningu, þar
sem gerð er nákvæmari grein en
áður fyrir takmörkunum á sprengju
árásum á Norður-Vietnam, og eru
mörkin samkvæmt henni um 320
km norðan afvopnuðu spildunnar,
eða nokkru fyrir sunnan Hanoi og
Haiphong, en aðalárásirnar verða
gerðar á skotmörk skammt norðan
afvopnuðu spildunnar. Þaö eru um
78 af hundraði af flatarmáli lands-
ins, sem ekki verða gerðar árásir
á og búa þar 90 af hverjum 100
fbúum landsins.
Áherzla er lögð á þaö atriöi f
ræðu Johnsons forseta, aö til mála
kæmi að stöðva árásirnar algerlega,
ef Norður-Vietnam kæmi til móts
við Bandaríkin, og settist aö samn-
ingaboröi.
stjórparinnar um skilyrðislausa
stöövun sprengjuárása á Norður-Ví-
etnam.
Stöku athugendur eru þeirrar
skoðunar, að stjórnin muni ekki
hafna hvatningu Johnsons alger-
lega, en skilja dyrnar eftir opnar
upp á hálfa gátt, þar til eitthvað
frekara gerist. Enginn vafi er tal-
inn á, að ákvörðun Johnsons að
verða ekki í kjöri muni hafa áhrif
á afstöðu stjórnarinnar. — Útvarp-
iö í Hanoi hefur birt tiikynningu
Tassfréttastofunnar þess efnis, að
Johnson hafi ekki orðið við skil-
yrðum Hanoi-stjórnarinnar.
■ Finn Gustavsen leiðtogi social-
istiska þjóðarflokksins segir að á-
kvörðunin um • að hætta sprengju-
árásunum geti tvfmælalaust orðið
„upphaf aö endalokum Vietnam-
styrjaldarinnar". Þetta sé mikill sig
ur fyrir almenningsálitiö, heima fyr
ir og í heiminum almennt — einn-
ig fyrir þjóðfrelsishreyfinguna í
Suður-Vietnam og þjóðina í N. V.,
en nú sé eftir að vita hverjar und-
irtektirnar veröi f Vietnam, — frá
sjónarhólum í Vietnam skoðað
leiði af því öryggisleysi, að John-
son hafi ákveöið að verða ekki í
kjöri f haust. Það hljóti að vera
Gull- og dollaraforöi Bretlands
minnkaði um 20 milljónir punda í
niarz.
Um þetta var birt tilkynning í
gær frá fjármálaráðuneytinu, en
samtímis tilkynnt, að nokkur hluti
þessa taps hefði unnizt upp sein-
ustu 2—3 daga.
Gullveröið hélt áfram aö lækka
Blað hersins í N.-V. sakar John-
son um að leita stööugt nýrra leiða
til þess að leiða almenningsálitið í
heiminum á villigötur. „Þjóð vor
óskar friðar, en sannur friður fæst
ekki nema þjóðin geti f sannleika
búið við sjálfstæði og frelsi, og um
slíkt geti ekki verið aö ræða, með-
an hún býr við bandarískt of-
beldi.
Sovézkir embættismenn hafa í
einkaviðræðum látið í ljós þá skoð-
un, að ekki geti komið til sam-
komulagsumleita milli ríkisstjóm-
anna í Washington og Hanoi fyrr
en eftir forsetakjörið í nóvember.
vandamál í augum manna f N.V. og
þjóðfrelsishreyfingarmanna, að ný
stefna verði ráðandi í Bandaríkjun-
um eftir kosningarnar. F. G. telur
að Johnson hafi smátt og smátt
skilzt að hann kynni að bíða ó-
sigur í kosningunum, eins og sein-
ustu skoðanakannanir og bendi til.
Geníarsáttmálann telur hann áfram
vera grunn lausnar. Jákvætt sé, að
hryllilegasta hernaöinum í Vietnam ■
sé hætt, en eftir sé að vita hvers
Bandaríkin krefjist, til þess að stíga
lokaskrefið (hætta hernaöaraðgerö-
um).
í London, Parfs og Ziirich, vegna
þess að spákaupmenn héldu áfram
aö setja gull á markaðinn, f von
um aö verða ekki fyrir meira tapi.
Gullverð komst niður í 37 dollara
og 70 cent á gullmarkaðnum f Lond'
on, sem nú hefur verið opnaður aft-
ur. Hið opinbera verö er 35 dollarar
únsan.
Sprengjum varpað á
Thanh Hoa 320 km.
norðan afvopnuðu
spildunnar
„Upphaf að endalokum
Vietnam-styrjaldarinnar"
Gull- og dollaraforði
Breta minnkaði í marz
um 20 milljónir punda
Gullverð hefir lækkað i London, Paris og Zurich
H Josef Brestarisky, varaforseti
Hæstaréttar í Tékkóslóvakíu, sem
hvarf í fyrri viku fannst í gærmorg-
un hengdur úti f skógi. Ekki var
minnzt á það í frétt frá Prag hvort
hann hefði framið sjálfsmorð eða
veriö myrtur.
■I Bandaríkjamenn munu halda
áfram eftirlitsflugi yfir Norður-
Vietnam þótt sprengjuárásum hafi
verið hætt á mestallt landiö (90%).
n Michael Stewart utanríkisráð-
herra Bretlands sagði í fyrradag á
þingi, að Falklandseyjar yröu ekki
afhentar Argentínu, nema meiri
hluti ibúanna óskaði þess.
n Suðvestur Afríkunefnd Samein-
uðu þjóðanna hefir tilkynnt opin-
berlega, að hún ætli inn í Suövest-
ur-Afríku á föstudaginn, kemur
þrátt fyrir bann Suður-Afríku.
n Alec Rose sigldi fram hjá Cape
Horn, syðsta odda Suður-Ameríku
í fyrradag, á 37 feta skútu sinni
Lively Lady. Hann er á heimleið frá
Ástralíu og í hnattsiglingu einn síns
liðs.
n Henry Cabot Lodge hefir verið \
skipaður ambassador Bandaríkj-
anna í Bonn. Hann var tvívegis am-
bassador í Saigon og þar áður að-
alfulltrúi Bandaríkjanna hjá Sam-
einuöu þjóðunum i New York.
H Kosygin forsætisráöherra
Sovétríkjanna er í opinberri heim-
sókn í íran (Persíu). Hann kom
þangað í fyrradag og stendur heim
sóknin í! viku.
n Ólafur Noregskonungur er nú
í Svisslandi f opinberri heimsókn.
H Ákvörðun Johnsons Bandaríkja
forseta, aö hætta sprengjuárásum
á Norður-Vietnam, fær víða ágæt-
ar undirtektir. Per Borten forsætis-
ráðherra Noregs sagði við NTB, að
þetta væru tvímælalaust gleðitíð-
indi. Hann beitir valdi sfnu og á-
hrifum til þess aö reyna að fá endi
bundinn á styrjöldina með sam-
komulagi, og vonar að hinn aðilinn
sýni sama samkomulagsvHja. /
H Gowon hershöfðingi æðsti
maður sambandsstjórnar Nigeríu
hefir hafnað tillögum um vopna-
hlé.
H Áhöfninni á Santa Leonor (sbr.
Vísi í g^pr) var bjargaö.
H Fréttir ffá Prag síödegis í gær
hermdu, að tveir kunnir kommún-
istaforsprakk’ar hefðu látið af störf-
um, og um leiö var tilkynnt, að
Josef Brestansky, varaforseti
Hæstaréttar, en hann fannst hengd-
ur úti í skógi, hefði jframið sjálfs-
morð.
H Laust fyrir síðustu helgi var
hleypt af stokkunum f Japan 27£.
000 lesta olíuskipi —' og er það
systurskip bess, sem hlevfl* var af
stokkunum 21. marz. Félagiö Bulk
Carriers, Bandarikjunum, hefir
samiö um smíði 6 skipa af þessari
stærð. Þetta eru stærstu skip í
heimi. — Þau verða notuð til flutn-
inga á hráolíu frá Kuwait til ír-
lands og siglt sunnan Suður-Afrfku.