Vísir - 23.04.1968, Síða 16
Svanir í stereo
I Lúðrablásarar úr Svani eru um þessar mundir að búa sig
undir sumarfríin eftir annasaman vetur. Undanfarið hafa
meðlimir lúðrasveitarinnar, alls 27 karlar og ein 14 ára stúlka,
1 haft mikið aó gera. Konsert, sjónvarpsupptaka, upptaka á
! stereóplötu, - allt á stuttum tíma. Það hefur því verið tals-
vert tnikið álag fyrir áhugamenn í hljómlistinni, því að þeir fé-
I lagar fá ekki svo mikið sem krónu í eiginn hlut, en verða að
fórna þeim mun meiru sjálfir.
I dag var áætlað að stereóupp
taka þeirra félaga á 5 lögum
færi utan til Englands, og eftir
um það bil 2 mánuöi má vænta
þess að plata þeirra komi á
markaðinn hér heima, eh Fálk-
inn gefur út. Það var Pétur
Steingrímsson, sem stjórnaöi af
mikilli natni upptökunni, að því
er þeir Sæbjörn Jónsson, for-
maður lúðrasveitarinnar og Hall
dór Sigurðssön tjáöu blaða-
manni Vísis í gær.
Þessi plata verður merkileg
fyrir þær sakir að þetta er
fyrsta platan sem hér kemur út
með lúðrasveit frá 1930, en ein
mitt það ár voru Svanir stofn-
aðir. Ekki er vitað hvaða lúðra
flokkur lék á plötunni, og plat-
an mun hvergi vera til nú.
»-»■ 10. síðu.
Islenzk
frímerki fóru
á góðu verði
í London
□ Mikið frímerkjauppboð var hald
ið í Lundúnum sl. föstudag. Þar
voru meðal annars boðin upp is-
lenzk frímerki, sem voru númer
8-16 á uppboðinu. Gott verð fékkst
fvrir merkin, en á hæstu verði
voru seld frímerkin „Hópflug ftala
1933“, sem fóru á £140. Þar var
fyrsta boð £90 en síðan hækkuðu
boðin um 5 pund í hvert sinn unz
komið var upp í 140 pund.
□ Verðið, sem fékkst tyrir hin
merkin var frá 10 punduni og upp í
24 pund. Sérfræðingar álíta að hér
sé um mjög góða sölu á íslenzkum
frímerkjum að ræða, sem sýni hátt
verðgildi þeirra.
□ Þess ber að geta, að í seríunni
„Hð-ríngi ítala“ var verðmesta
merkið gallað, og flest þau frí-
merki sem boðin voru upp, voru á
umslögum, en beir safnanar sem
leggja stund á söfnun slíkra
10. síða. i
— segja forráðamenn Dvalarheimilis aldraðra
sjómanna i upphafi nýs happdrættisárs
■ Nýtt happdrættisár er að
hefjast hjá Happdrætti DAS
og verður starfsemi þess með
Bankaráðs-
maður glataði
10-krónunum
— ekki ráðuneytisstjórinn
□ Nýlega kom í blöðum og sjón
varpi frétt um hvarf á sýnishorni
10 króna penings, sem sleginn hef
ur verið, en ekki ennþá settur i
umferð. Hefur nú komið í ljós, að
umrætt sýnishom glataðist úr
vörzlu Sigurjóns Guðmundssonar
bankaráðsmanns, en ekki Birgis
Thorlacius, ráðuneytisstjóra.
sama sniði og nú er, þ. e. verð
óbreytt, kr. 75.00 á mánuði, og
3000 stórir vinningar frá kr.
5.000.00 upp í kr. 2.000.000.00.
Veitir happdrættið jafnmarga
möguleika til stórhapps og bæði
hin flokkahappdrættin til sam-
ans, og er þó ódýrast.
Verkefni þau sem happdrættiö
vinnur að, að búa í haginn fyrir
aidraöa fólkið, fara ekki minnk-
andi þrátt fyrir byggingar undan-
farinna ára, heldur vaxandi og
kalla á frekari og örari fram-
kvæmdir.
„Um s.l. áramót var hópur hinna
I 67 ára og eldri 15000 manns og
sýnt að um 10% þessa fólks þarf
á elliheimilisvist að halda. Nú eru
á öllu landinu 1050 ellivistarpláss
. og vantar því í dag um 500 elli-
j vistarpláss og áö 5 árum liðnum
I 300 til viðbótar. Bara í Hrafnistu
einni eru nú yfir 300 manris á bið-
lista. Þessi höpur fólks, 65 ára og
eldri, fer hlutfallslega einna mest
vaxandi með þjóðinni”, segja for-
ráöamenn DAS.
Þetta sýnir glögglega þörfina fyr
ir örari framkvæmdir í býgginga-
málum aldraðra um allt land á
næstu árum, en nýlega var lögum
Byggingasjóðs Aldraðs Fólks breytt
á þenn veg að byggingar elliheim-
ila og éllideilda út um land ættu
aðgang að lánum úr þeim sjóði. En
einu tekjur þess sjóös eru 40%
hagnaður Happdrættis DAS.
Næstu verkefni Hrafnistu, þegar
létt hefur verið af mestum skuldum
og lóð lagfærð, eru byggingar lít-
illa sjálfstæðra íbúða fyrir görnul
hjón sem geta hugsað um sig sjálf
og sótt mat i eldhús Hrafnistu. Er
einnig mjög mikið spurt um þess
ar íbúðir og beðið eftir fram-
kvæmdum.
„Sfórmál og
VELJBÐ ÍSLENZKT — Umf. Hruaiamanna vill styrkja ísl. iðnað:
Hver félagi gefur Félagi íslenzkra
iðnrekeada 25-100 kr.
■ Á 60 ára afmæli Umf.
Hrunamanna, 17. apríl sl.
hélt stjórn félagsins fund, þar
sem samþykkt var ályktun til
að hvetja menn til að styrkja
íslenzkan iðnað eftir mætti.
I ályktun fundarins segir
m. a.:
„Iönaðarárið nefnum við sam-
tök þess fólks, sem með undir-
ritun sinni binzt samtökum um
eftirfarandi:
1. Aö leitast við í eitt ár,
eða frá 1. 5. ’68 til 30. 4. ’69,
að stuðla með öllum hætti að
auknum íslenzkum iðnaði...
2. Til áherzlu á vilja okkar og
samstöðu, málefninu til stuðn-
ings, leitum viö samstarfs við
Félag íslenzkra iðnrekenda ...
3. Við Ieggjum fram eftir efn-
um og ástæöum viö undirskrift
25.00, 50.00, 75.00 eða 100.00,
sem óskipt afhendist Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda Ssamt meö-
limaskrá. Óskast fé þessu varið
til upplýsinga og fræðslustarf-
semi varðandi innlendan iönað
og til útgáfu á þátttakenda
skirteinum og kvittunum handa
væntanlegum styrktarmeðlim-
um.
4. Viö álítum, að miðað við
árferði og ástand í efnahagsmál-
um, sé frambærilegt, að almenn-
ingur tjái hug sinn og vilja á
þennan hátt, ef vera mætti til
hagsbóta íslenzku fjölskyldunni,
en svo viljum við nefna okkar
litlu þjóð.
5. Ennfremúr látum við okkur
skipta allar íslenzkar fram-
leiösluvörur á neytendamark-
aðnum til sjávar og sveita ...“
Þessi ályktun er mjög í anda
þeirra hreyfinga, sem nú eru
uppi í Bretlandi og Danmörku
til dæmis, og hafa þar lagt mik-
ið af mörkum til að efla fram-
leiðslu landa sinna.
Birnan senn ísl.
„rikishorgarí
?
HTLA BIRNAN var hálf vegalaus „farþegi“ í tvo sólarhringa á
Reykjavíkurflugvelli en í gær sögðum viC frá henni á forsíðu og
vakti myndin af henni mikla athygli. Skátamir í Hafnarfiröi, eig-
endur hennar, fluttu hana suður í Fjörð ' gær eftir aö munnleg
leyfi höfðu fengizt og var hi'n sett í 6 fermetra búr, og var strax
í gærkvöldi orðin hin spakasta og ánægðari með lífið en í iitla
trékassanum. „Við vonum að hún veröi innan skamms orðin is-
lenzkur rikisborgari“, sagði einn af forystumönnum skátanna við
Vísi i morgun, en þeir hafa í hyggju að leyfa bömum landsins
að sjá birnuna litlu cinhvem tíma á næstunni og er ekki örgrannt
um að talsverð eftirvænting sé ríkjandi hjá börnunum, enda ærið
fátt sem hægt er að «ýna börnura hér á landi af dýrum sem þessum.
stjörnur
vefrarins"
Islenzkur skemmtihátfur
fluttur i sjónvarpinu
„Stórmál og stjömur vetrarins"
nefnist íslenzkur skemmtiþáttur i
umsjá Flosa Ólafssonar Ieikara,
sem íluttur verður í sjónvarpinu
annað kvöld, síðasta vetrardag.
Þáttur þessi tekur um þaö bil
klukkutíma og koma fram í hon-
um auk Flosa Ólafssonar, Sigríður
Þorvaldsdóttir, Kristín Anna Þór-
arinsdóttir, Árni Tryggvason, Egill
Jónsson og fleiri. Stjórnandi er
Þrándur Thoroddsen, og tónlist
annast Magnús Ingimarsson. Mynd
in er tekin skömmii áður en upp-
taka á einu atriðinu hófst í gær í
sjónvarpssal, og á myndinni eru
þau Kristín Anna Þórarinsdóttir og
Egill Jónsson.
„500 VANTAR PLÁSS Á
ELLIHEIMILUM í DAG"
uaagur
aprfl 1968.