Vísir - 26.04.1968, Page 1
gufuaflstcð
Poul Reumert jarðsettur / gær
Poul Reujnert leikari, var iarð-
settur í gær í Kaupmannahöfn, eft-
ir hátíölega minningarathöfn í
Holmens kirke. Kirk.ian, sem var
skreytt blómum 02 nýútsprungnu
birkilaufi, var þéttskipuð og meö-
al viöstaddra voru konungsfjöl-
skyldan, fulltrúar úr borgarráði
Kaupmannahafnar og fuiltrúar rík-
isstjórnarinnar. Dr. theol Börge Ör
jarðsöng og sagði hann m.a.
Poul Reumert stóð á svið-
inu fengu orðin sérstakt vald, það
var eins og hann talaði beint til
rnanns sjálfs, og þá varð maður
oftlega að viðurkenna, að manns
góða samvizka, var hreint ekki svo
góð.“
Poul Reumert var talinn einn
mesti leikari á Noröurlöndum á
þessari öld, en hann lézt 19. apríl
Jsl., þá 85 ára gamall. Hann var
kvæntur Önnu Borg Ieikkonu, sem
lézt fyrir nokkrum, hau áttu tvo
syni, Torsten og Stefán, sem
býr á íslandi og starfar hjá Flug-
félagi íslands.
Bargestirnir á myndinni til vinstri létu sér hvergi bregða, þótt
á barnum birtist slökkviliðsmaður í fullum skrúða, og barþjónn-
inn hélt áfram störfum, eins og ekkert hefði i skorizt.
Til hægri sést ofan af þaki og niður á götu, en slökkviliðið þurfti
að tengja saman tvær rúllur, svo að slangan næði upp — hvor
rúlla er um 100 m.
58. árg. -
innan skamms
• Nú standa yfir Iokaundir-
búningsrannsóknir á því að
reisa gufustöð til rafmagns-
vinnslu við Námafjall. í því til-
efni ræddi blaðið við Jakob
Björnsson hjá Orkustofnuninni,
og sagði hann, að bygging slíkr-
ar stöðvar hefði lengi verið á
döfinni, og verið gerðar rann-
sóknir í því skyni í Hveragerði
fyrir nokkrum árum.
Þó var af ýmsum ástæðum fail-
ið frá því að reisa slíka stöð f
Hveragerði, þar sem væntanleg
stóriðja krafðist mikill raforku og
byrjað var á Búrfellsvirkjun. Orku
stofnunin og nefnd skipuð af ráð-
herra athugaði möguleika á raf-
orkustöðvum fyrir Norður- og Aust
urland, og kannaðar voru aðstæð
ur fyrir virkjun Laxár og Lagar-
foss.
Við Námafjall eru allt aðrar að-
stæður til byggingar gufuaflsstöðv-
ar en í Hveragerði, og þar er
hægt að reisa slíka stöö af mót-
þrýstigerð, sem vart kæmi til
greina í Hveragerði, vegna þess
að þar er þéttbýli og erfitt um
vik að koma burt 100 stiga heitu
vatni, sem verður til er gufan þétt
ist. Við Námafjall fylgja þessu aft-
ur á móti engin vandræði, því að
þar er hægt að leiða vatnið út í
hraun, þar sem það hverfur í
jörðina.
Verkfræðingafyrirtækið Vermir
M~>- 10. síða.
Afli íslenzku togaranna hefur
verið mjög góður undanfarið og
togararnir selt vel i erlendum höfn-
um. Bezt er þó sala Júpíters, en
hann seldi í gær í Hull 212 tonn
fyrir 20348 sterlingspund, sem er
mjög góð sala. Aflinn var mest
megnis ýsa og þorskur. Skipstjóri
á Júpíter er Markús Guðmunds-
son.
Fjórir íslenzkir togarar hafa
selt afla sinn í þessari viku erlend-
is. Togararnir eru þessir:
Egill Skallagrímsson seldi í
Grimsby á þriðjudaginn 172 lestir
fyrir 12431 sterlingspund, Rööull
í Grimsby sama dag 189 lestir
fvrir 14529 sterlingspund, Marz
seldi í Aberdeen á miövikudag 127
tonn fyrir 9176 sterlingspund, og
svo var það hin ágæta sala Júpi-
ters í Hull í gær. Allar eru sölur
þessar mjög góðar, enda var fisk-
urinn góð vara, nýveiddur á mið-
um togaranna.
Surprise selur afla sinn í Grims-
by í dag, en á mánudag eða þriðju-
dag selur Úranus um 200 lestir í
brezkri höfn.
Mjög góður afíi
togaranna!
— Júpiter seldi 212 tonn fyrir
rúm 20 t>úsund pund
Flateyingar komnii
aftur út í eyna
Verða t>ar i sumar og leggja aflann jbar á land
17 karlmenn og 3 stúlkur
fluttu um miðjan þennan mánuð
út í Flatey á Skjálfanda og hyggj
ast dveljast þar yfir sumarið.
Flest þetta fólk eru Flateyingar,
sem setzt hafa að á Húsavík,
en eins og kunnugt er flutti allt
fólk úr eyjunni í fyrra, og lagð-
ist hún þá í eyði.
Mennirnir róa úr eyjunni á 5
vélbátum, 6 — 10 tonna stórum, en
auk þess eru í Flatey 13 trillubát-
land í Flatey og verka hann
en að undanförnu hafa þeir
eingöngu stundað hrognkel.saveið-
ar. Aflaverðmæti þeirra í heild
nemur nú um 400 til 500 þús.
um.
Töluverður ís er nú á sundinu og
gamla höfnin full af fs, en Flatey-
ingar rða og leggja upp í nýju
höfninni, sem var gerð í fyrra og
hitteðfyrra. Þeir urðu fyrir nokkru
netatjóni af völdum ísreks í síð-
ustu viku.
Ákvörðun um
STORSKEMMDIR
SÖGU BRANN í
ÞEGAR „GRI/LIÐ" /
GÆRDA G
■ Áttatíu manns varð af hádegismatnum sínurn
í gær, þegar eldur kom upp í Grillinu á Hótel Sögu
um kl. 13.30, eða einmitt um það leyti, sem fólkið
ætlaði að setjast til borðs.
■ Þilið á bak við „griIl“-ofninn í eldhúsinu þar
uppi á 8. hæð hótelsins var alelda, þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang, en eldurinn barst eftir loft-
ræstingargöngum upp í loft og þaðan upp í þak.
„Við sáum reykinn úr þakinu,
áður en okkur barst kallið.“
sagði Gústaf Guðjónssón, varð
stjóri hiá slökkviliðinu. „Við
vorum allir komnir út í bíla
og reiöubúnir, þegar bað barst,
og vorum við með fjölmenn-
asta móti, því að heil vakt var
hjá okkur á reykköfunaræf-
ingu, cinmitt þegar þetta
gerðist.“
Öllu starfsfólki hótelsins og
öðrum nærstöddum bar saman
um það, að það hefði verið að
þakka snörum viðbrögðum
slökkviliðsins, hve skemmdir
uröu litlar af völdum eldsins,
sem þykir að Iíkindum hafa
stafað út frá hitunartækjunum
í eldhúsinu, en það hefur þó
ekki verið rannsakað aö fullu
ennþá.
Þaðan barst eldurinn eftir
loftventlum í gegnum tvö timb
urloft ,en innréttingin er þarna
öll úr timbri, og síðan upp f
lóftræstingargat á þakinu. Uppi
á loftinu eru rafmótorar og loft
„kanalar" .og urðu nokkrar
skemmdir á „könulunum", en
mótorarnir sluppu að mestu, en
þeir knýja lyftur hússins og
fleira.
55 slökkviliðsmenn unnu aö
slökkvistarfinu með 3 dælubíla
og einn stigabíl og þurftu þeir
að draga slöngur og útbúnað
upp á 8. hæð. „Tók tiltölulega
stuttan tíma að koma tækjunum
fyrir og tengja slöngurnar,
vegna þess hve mannmargir
við vorum.“ sagði Gústaf, er
frétamaður Visis injiti hann eft
ir gangi slökkvistarfsins.
10. sfða.