Vísir - 26.04.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 26.04.1968, Blaðsíða 3
3 V í S IR . Föstudagur 26. apríl 1968. MYNDSJÁ Wi’ Rækjan er „pilluð“ í höndunum Vinna úr ,rauðagulli' hafsins Karlinna Jóhannesdóttir vigtar réttan skammt fyrir hvern pakka... get meö engu móti skilið hvers vegna rækjuveiðin er skömmtuð, — rækjan er eins og hver annar göngufiskur, og engin hætta á að við skeröum stofninn. Sá sem þetta segir er Böðvar Sveinbjarnarson, framkvæmda- stjóri Niðursuðuverksmiöjunnar h.f. á ísafirði, annarrar tveggja rækjuvinnsla þar i höfuöborg Vestfjarða. Og í ríki Böðvars er sannarlega ekki deyfð eða atvinnuleysi. 50 húsmæður og þrír karlmenn gefa sér vart tíma til þess aö líta upp frá starfa sínum andartak, því nóg er aö gera. Það eru sjö bátar sem sækja á miðin fyrir verksmiðj una, og um leið og rækjan er komin inn í hús er hún ísuð — þá er hæfilegt magn soðiö og síðan fiutt inn á kvennapall til skelflettingar, hreinsunar og loks pökkunar í frystingu eða til niðursuöu. Þaö var "fyrir rúmum þrjátiu árum að þessi verksmiðia hóf starfsemi sfna, eða áriö 1936, og þegar MYNDSJÁIN leit þar inn á dögunum var hálft hundr- að kvenna að búa þetta „rauöa- gull“ hafsins undir frystingu. Og þrátt fyrir alla tækniþróun nútímans er rækian enn skel- flett í höndunum einum í Niður suðuverksmiðjunni h.f. — Ekki vegna þess að hugvitsmenn hafi ekki fundið upp sjálfvirk tæki til þess ama, heldur er hand- fletta rækjan betur unnin, og þótt hún sé þar af leiðandi dýr- ari, þá er hún um leið eftir- sóttari til skreytinga, og síðast en ekki sízt, — veitir fleirum atvinnu. Ekki veitir af. Rækjan flokkuð. Dósirnar merktar og gengið frá þeim til flutnings. #•••

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.