Vísir - 26.04.1968, Qupperneq 4
Ætla Frank Sinatra og Ava
Gardner að taka saman aftur ?
Þeim var
húrt gift
■ Frank Sinatra ætlar að kvænast aftur fyrrverandi eiginkonu sinni,
Ava Gardner — segir almenningsálitið í Hollywood, og sameigin-
legir kunningjar beggja kinka kolli og segjast lengi hafa haft grun
um það.
■ Hvorugt þeirra hefur þó ennþá fengizt til þess að staöfesta þessar
fréttir. Hvorki hinn 51 árs gamli Frank Sinatra, sem með ein-
hverjum undursamlegum hætti heldur sér enn á toppnum í skemmtana-
heiminum, — né hin 45 ára garnla Ava Gardner, sem eitt sinn var nefnd
fegursta kona heims.
Sá fyrsti: Mickey Rooney, gift
1942, skilin 1943.
• v •••••••■,.............../ •/ •'"/ ••'/•/•'• •////£
Annar: Artie Show, gift 1945,
skilin 1946.
Þeim var
hann kvæntur
Samt er það margt, sem bendir
til þess, að þessi tvö séu að
draga sig saman á ný. Um þau
var eitt sinn sagt, aö milli þeirra
ríkti hin miklaiást, sem skáldin
hafa lofsungið um aidaraðir.
Það var Ava Gardner, sem
Frank Sinatra dansaöi vangadans
við í afmælisveizlu, sem hann
hélt um daginn til heiðurs einum
vina sinna. Alla veizluna sleppti
hann ekki eitt andartak hendi
hennar.
Það var einnig Ava Gardner,
sem rauf kvikmyndatöku mynd-
arinnar „Mayerling" í Austurríki
fvrir nokkrum vikum og flaug
til Miami, þegár hún frétti, að
Frank Sinatra hefði fengið
lungnabólgu. Hún ók beinustu
leið af fiugveilinum til sjúkra-
hússins.
Og þannig mætti lengi telja
upp. ,
lVu eru fjórtán ár liðin síðan
þau skildu, en sagt er, að
þau hafi aldrei getað gleymt hvoru
öðru. Það liðu níu ár, áður en
Frank Sinatra kvæntist aftur
1966 Miu Farrow. Ava Gardner
hefur aldrei gifzt aftpr.
Þegar þau skildu eftir 23 mán-
aða og 12 daga Iangt hjónaband,
sagði Ava Gardner: — Frank er
sá mest aðlaðandi maður, sem ég
hef kynnzt. Hann er einfaldlega
aðlöðunin sjálf holdi klædd og
ekkert annað.
En fjórtán ár eru langur tími
og í'fyrra sagði hún: — Frank
var ástarævintýri lífs míns. Eng-
inn mun nokkurn tíma geta kom-
ið í stað hans. Að vera gift hon-
um var líkt bví að vera þátt-
takandi í glaðværri veizlu, sem
aldrei tók enda. Það var að lifa
og elska á 150 kílómetra hraða
á klukkustund.
'17'arla vérður þó sagt, að Ava
Gardner hafi lifað lífi sínu
að öðru leyti hægt. Frank Sinatra
var þriðji maður hennar. Árið
1942 giftist hún Mickey Rooney,
„barnastjörnunni, sem aldrei
varð fullorðin.“ Það hjónaband
Ava Gardner — nú orðin 45 ára.
entist í éitt ár. Árið 1945 gift-
ist hún Artie Show, sem var ein
hver frægasti persónuleiki síns
tíma. Það entist einnig í eitt ár.
Næst á eftir Frank Sinatra
laðaðist Ava Gardner að Spáni —
Spáni Hemingways, eins og hann
Iýsti landinu. Hún hefur alla tíð
verið hin dæmigerða Hemingway-
stúlka og hún féll fyrir nauta-
bönunum. Fyrst Louis Domingu-
in, Síðan Antonio Ordonez, en
með honum ætlaði hún að lifa
eins og í „Sólin fer sína braut"
— 20 árum eftir að sú bök var
skrifuð.
Frank Sinatra
árs.
nú orðinn 51
Gamt sem áður var það alltaf
andlit Frank Sinatra, sem
hún sá fyrir sér.
— í hvert sinn sem ég hélt að
ég hefði hrifizt af einhverjum
manni og beið þess, að hann
kyssti mig, þá var þaö andlit
Franks, sem ég sá í hugskoti
mínu — sagði hún sjálf í blaða-
viðtali nýlega.
Hún sagði einnig: — Ég óska
mér eiginmanns — meir en nokk-
urs annars í veröldinni. Ég er
svo einmana, að hver einasta
nótt er eins og heil vika að líða.
Sú fyrsta: Nancy Barbota, gift
1939 skilin 1951.
Sú þriðia: Mia Farrow, gift 19.
júlí 1966, skilin 16 mánuðum
siðar.
Frank Sinatra og Ava Gardner, þegar þau voru nýgift á leið f brúökaupsferð.
mánuöi og 12 daga. Það var hcnnar þriðja, en annað hjónabandið hans.
Hjónabandið varði i 23
Þetta er ekki hægt
Oft hefur verið á það minnst,
að þrifnaði sé mjög ábótavant
i iðnaði okkar og við fram-
leiöslu, og einnig er afar oft
talað um hversu bágborið hrein
læti sé víða í matsölu- og veit-
ingastööum. Stundum þykja
blöðin vera of haröorð, þegar
þau skrifa um skort á þrifnaði,
en því miður, þá er óþrifnaður-
inn of almennur og mistökin of
mörg, þó að ljóst sé, að margt
hafi áunnizt til bóta.
Ég varð ekki lítiö undrandi,
þegar kona ein sýndi mér plast-
hring, sem var auðsjáanlega
bjól af leikfangabfl, en það
hafði hún fundið á botni Sinalco
flösku, þegar innihaldið var úr
flöskunni. Manni finpst næstum
ótrúlegt að slíkt skuli ske, þar
eð hringurinn var svartur og
því augljós í flöskunni. Maður
getur ekki annað en efazt um,
að ekki geti skeð ýmis önnur
mistök í sambandi viö þrifnað-
inn og þvottinn á flöskunum,
verksmiðjuna og fá aöra flösku,
og fannst mér það virkiiega
höfðinglega boðið. Með öðrum
orðum: Þetta er ekki hægt.
um út frá þvi. Heiibrigðisnefnd
hvetur bíóstjóra til að sópa gólf
in eftir sýningar. Mér þykir
þetta stórfurðulegt að Ieggja
svona fram. Það er alltaf verið
að tala um menntaða, siðaða og
Ipkndt&íGoút
áður en tappaö er á þær aftur.
Það virðist a. m. k. einhvers
staöar vera misbrestur á þvott-
inum og eftirlitinu á honum.
Verksmiðjunni var tilkynnt um
þennan hring, sem fundizt hafði
í flöskunni, og var konunni þá
boðið, að hún mætti koma i
Bréf um þrifnað
„Kæri Þrándur.
Mig Iangar til að biðja þig að
gjöra svo vel að koma þessu
áleiðis til heilbrigðisnefndar.
Ég las í Vísi ddgs. J8. 4. um
poppkornsát og sóðaskap í bíó-
hreinlega þjóð, okkur íslend-
inga. Ég legg til, að okkur öll-
um verði kennd hlýðni og
skylda til að hætta að henda
rusli á góifin. Það gæti hver og
einn farið með bréfin utan af
sæigætinu heim með sér og hent
í ruslafötuna þar.
Það vantar strangar og fastar
reglur í þessum stóru húsum.
Ekki líðst heimilisfólki að henda
rusli á gólfin heima hiá sér.
Ef allir leggiast á eitt um að
gæta hreinlætis, yrðu öll sam-
komuhús tii mesta sóma éftir
stuttan tíma. Ég skora á alla
landsmenn að stuðla að þessu
kjörorði: ÞRIFALEG UM-
GENGNI.
Það þarf líka að kenna okkur
stundvisi, bara að ioka dyrunum
fyrir okkur á réttum tíma. —
Sannið þiö til, við munum mæta
stundvíslega framvegis.“
M. B.
Ég þakka bréfið og tek vissu-
lega undir þá hvatningu, að
umgengnin sé bætt.
Þrándur í Götu.
Ipik- *♦