Vísir - 26.04.1968, Side 5
5
V f SIR . Föstudagur 26. apríl 1968.
c^iMjyg
Nýr rauðmagi er
herramannsmatur
— Fæst / flestum fiskverzlunum borgarinnar
og kostar 25 krónur kilóið —
jVýr rauðmagi fæst nú í all-
flestum fiskbúðum borgar-
innar og er yfirleitt hægt aö
fá hann hreinsaöan (afhausaö-
an og hreinsaðan að innan) í
verzlunum. Rauðmaginn kostar
25 krónur kilóið og er hann
sannkallaöur herramannsmatur
bæði nýr, steiktur, í hlaupi eða
í súpu.
Rauðmaginn er hreinsaöur
þannig, að hausinn er skorinn
af og fiskurinn er ristur á kvið
inn og hreinsað innan úrhonum.
Þá er bakhveljan skorin af, en
yfirleitt er fiskurinn soöinn með
kviðhveljunni. Rauðmaginn er
nú þveginn vel í köldu vatni og
ef á að borða hann soðinn þá
er vatnið saltað vel og dálítið
af ediki sett í vatnið. Mörgum
finnst fiskurinn beztur með
edikblöndu og heitum kartöfl-
um og er þá lifrin og hrognin yf
irleitt soði., með fiskinum og
borðuð meö.
Bezt er að skera rauðmagann
í sneiðar, áður en hann er settur
í pottinn, en ekki á að sjóða
hann nema í ca 5 mínútur. —
Piparrótarsósa er ágæt meö
rauðmaga, en hún er gerð á
eftirfarandi hátt: 1 bolli af súr
um rjóma er þeyttur saman við
1 tsk. edik og 2 tsk sykur. 2
msk af rifinni piparrót (fæst ný
í nokkrum verzlunum í borg-
inni) er blandaö saman við. —
Hægt er að riota þurrkaða pipar
rót ef ný er ekki fáanleg. Bragð
ið á sósunni, til að finna hvort
hún er mátulega sterk, þar sem
piparrótin er misjafnlega bragð
sterk.
STEIKTUR RAUÐMAGI.
Steiktur rauðmagi er líka
mjög bragðgóöur og er hann
matreiddur á eftirfarandi hátt:
Fiskurinn er skorinn í sneiöar,
sem velt er upp úr krydduðu
hveití. Fiskurinn steiktur í
heitri feiti, þar til hann fær fall
egan Ijósbrúnan lit. Bezt er aö
steikja fiskinn í jurtafeiti eða
olíu. Gott er að borða kapers-
sósu með rauðmaganum en hún
er gerð þannig: Feitin af pönn-
unni er hrærð út í hveiti og dá-
lítilli mjólk bætt út í. Dálítið
vatn eða fisksoö (t.d. soð af
hrognum og lifrum úr rauðmag
anum) er sett út í sósuna. Nokk
ur kaperskorn ásamt ediki og
salti sett aö lokum út í þar til
sósan er mátulega sterk. Borðað
með rauðmaga, steiktum eöa
nýjum og heitum kartöflum.
RAUÐMAGASÚPA.
Fiskurinn skorin í sneiöar, en
látinn hanga saman á brjóskinu.
Stór pottur hálffylltur af vatni
selt, edik og nokkur lárberja
lauf sett út í vatnið. Suðan látin
koma upp og rauðmaginn (ca.
tvö stvkki) settur út í, soðið í
5 mínútur, froðan veidd ofan af.
Soðið af fiskinum sett í pott, ör-
lítið skilið eftir sem hrært er
út í hveitijafning og gerð sósa.
Út í súpuna eru nú settar nokkr
ar mjúkar sveskjur og rúsín
ur og bragðbætt með sykri og
ediki, þar til súpan er mátulega
sterk. Súpan borin fram með
rauömaganum, hveitisósunni og
heitum kartöflum.
RAUÐMAGI í HLAUPI
MEÐ GULRÓTUM.
Pottur hálffylltur af vatni og
vatnið saltað vel. Ediki og 2
lárberjablöðum bætt út í og
suðan látin koma upp. Rauð-
magi skorinn í sneiðar, er settur
út í vatnið og látinn sjóða f 5
mínútur. Soðin gulrót (stór) er
brytjuð í þunnar sneiöar og
síðan er allt sem í pottinum er
látið bíða dátitla stund. 6 blöð
af matarlími eru leyst upp í
vatni og blandað saman við soö
iö í pottinum. ÖUu hellt í stórt
form og látið kólna. Skreytt
með gulrótarsneiðum, steinselju
og sítrónu. Borðar með heitum
kartöflum og góðri sósu t.d. pip-
arrótarsósu eða gúrkusósu, en
hún er gerð þannig:
1 agúrka er flysjuð og skorin
í 6 ræmur eftir endilöngu og
síðan í litla bita, sem soðnir eru
í ediksblöndu örlitla stund. Búinn
til jafningur úr hveiti og smjör-
líki og þynnt út með fisksoði
gúrkubitarnir og ediksblandan
er sett út í og sósan krydduð
eftir smekk og borin fram heit.
Við getum ekki skilið við rauð
magann, nema segja frá grá-
sleppunni en hún er mest borð
uð sigin. Grásleppa fæst nú í
flestum fiskverzlunum og kost
ar 15—25 krónur stykkið. Grá-
sleppan er burstuð vel úr köldu
vatni og bakhveljan skorin af.
Kviðhveljan er þvegin og
skafin. Grásleppan er skorin f
sneiðar, sem fastar eru saman
við brjóskið og soöin í ca. 7
‘mínútur f miklu vatni. Borðuð
með heitum kartöflum og
smjöri.
AUGLÝSING UM
HÓPFERÐARÉTTINDl
Þann 1. júní 1968 falla úr gildi réttindi til hóp-
ferðaaksturs útgefin á árinu 1967.
Umsóknir um hópferðaréttindi fyrir árið 1968
—69 skulu sendar til Umferðarpiáladeildar
pósts og síma í Umferðarmiðstöðinni í Reykja
vík fyrir 15. maí n.k.
I umsókn skal tilgreina árgerð, tegund og
sætafjölda þeirra bifreiða, sem sótt er um hóp
ferðaréttindi fyrir.
23. apríl 1968.
Umferðarmáladeild pósts og síma
Nemandi — Gleriðn
♦
Ungur r eglusamur maður getur gomizt að
sem nemandi í gleriðn .Upplýsingar í skrif-
stofu Ludvig Storr, Laugavegi 15.
Óskum að kaupa
Notaða prentvél (Digul). Ennfremur papp-
írsskurðarhníf. — Tilboð sendist augld. Vísis
fyrir þriðjudaginn 30 apríl merkt „Digull“.
Skrifstofu- og
lagerhúsnæði
til leigu að Vesturgötu 2. Nánari upplýsingar
gefnar í aðalskrifstofunni, Reykjavíkurflug-
velli.
WFTLEIDIR.
SAAAAA/VAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
BCnattspyrnufélagið VÍKINGUR
60 ára afmælisfagnaSur
í Sigtúni laugardaginn 27. aprll. Hefst með borðhaldi kl. 19.30.
\ ' • i
Fjöldi skemmtiatriða, m. a. Ómar Ragnarsson. Annáll. Þjóðlagasöngur — og
hljómsveitin ERNIR.
Aðgöngumiðar fást í Söbecsverzlun og Bólstrun Helga, Bergstaðastræti 48.