Vísir - 26.04.1968, Blaðsíða 8
S
V f g IR ■ Föstudagur 26. aprfl 1968.
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Sfmar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
f iausasöiu kr. 7.00 eintakiö
Prentsmiöja Vfsis - Edda hf._________
Þjóðin vill efla iðnaðinn
Ungmennafélag Hrunamanna samþykkti nýlega á 60
ára afmælisfundi sínum að hvetja menn til að
styrkja íslenzkan iðnað eftir mætti. Félagsmenn sam-
þykktu að stofna til samtaka ungs fólks um, að hver
legði fram nokkra fjárupphæð til upplýsinga- og
fræðslustarfs iðnaðarins á vegum Félags íslenzkra
iðnrekenda.
Skömmu áður höfðu menntaskólanemar á lands-
þingi sínu samþykkt að skora á almenning í landinu
að taka íslenzkar framleiðsluvörur fram yfir erlendar,
þegar þess væri frekast kostur. Þessar tvær ályktanir
sýna, að þjóðin er að vakna til meðvitundar um gildi
iðnaðarins, og að unga fólkið gengur þar fram fyrir
skjöldu.
Raunar er engin furða, þótt unga fólkið hafi frum-
kvæðið. Sá sannleikur er að renna upp fyrir þjóðinni,
að iðnaðurinn verður í framtíðinni höfuðatvinnugrein
þjóðarinnar. Á hverju ári fjölgar vinnufæru fólki um
margar þúsundir og allir sjá, að iðnaðurinn, einn ís-
lenzkra atvinnuvega, hefur möguleika á að taka við
miklu meiri mannafla í framtíðinni. Þetta snertir unga
fólkið meira en hina eldri, því að það mun byggja land-
ið, þegar iðnaðurinn vdrður meginstoð þjóðfélagsins.
Mörg fleiri dæmi eru um vakningu þjóðarinnar
gagnvart iðnaðinum. í vetur hafa verið miklar um-
ræður um, að taka beri innlendum tilboðum, séu þau
ekki meira en 5—10% hærri en erlend tilboð, og virð-
ist þetta nú vera orðin almenn stefna. Þá hefur hinn
ungi framkvæmdastjóri Landssambands íslenzkra
iðnaðarmanna, Ottó Schopka, skrifað í föstudagsblöð
Vísis undanfarna mánuði greinar um iðnþróunina,
sem hafa vakið almenna athygli og verið endurprent-
aðar í öðrum ritum. Þessar skýru og hnitmiðuðu grein-
ar hafa sannfært margan manninn um, hvílíkt lykil-
mál iðnþróunin er fyrir þjóðina.
Árabilið 1960—1966 var mikii gróska í iðnaðinum
og jókst framleiðsla hans um 4,6% á ári að meðaltali.
Árið 1967 og það, sem af er þessu ári, hefur hins vegar
verið stöðnun og jafnvel samdráttur í iðnaðinum,
eins og í öðrum atvinnugreipum. Þótt illa gangi núna,
ríkir ekki svártsýni eða örvænting í röðum iðnrek-
enda og iðnaðarmanna. Fulltrúamir á ársþingi iðn-
rekenda, sem nú stendur yfir, eru bjartsýnir á fram-
tíðina, m. a. vegna hinnar almennu öldu, sem hér
er að rísc. til stuðnings iðnaðinum.
í næstu viku mun fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík halda þriggja daga ráðstefnu um iðnþró-
anina. Og í sömu viku hefst svonefnd Iðnkynning, sem
standa mun yfir mánuðum saman. Tilgangur hennar
er að vekja athygli þjóðarinnar á íslenzkum iðnaðar-
vömm. Enginn efi er á, að iðnkynningin kemur á rétt-
um tíma, — hljómgrunnurinn hefur aldrei verið meiri
en einmitt nú.
Ottó Schopka:
GILDI
IÐNLÁNASJÓÐS
'C’in af forsendum hraöfara
sóknar í átt til aukinnar iön-
þróunar og alhliöa eflingar iðn-
aðarins er greiður aögangur að
nægilegu fjármagni. Tæknilegar
framfarir og stækkun markaða
kallar á aukið fjármagn og
meiri fjárfestingu. 1 landi, þar
sem fyrirtækin eru yfirleitt lítil
og hafa takmarkaða möguleika
til eigin fjármögnunar ti'I stækk-
unar og uppbyggingar, veröur
að treysta á aðstoð lánsf járstofn
ana f ríkari mæli en í auöugum
iönaðarlöndum. Þar veltur líka
á miklu, að fyrir hendi sé skiln-
ingur rfkisvaldsins á mikilvægi
stofnlánasjóðanna fyrir framtíð-
arþróun atvinnuveganna, og það
leggi sitt að mörkum til efling-
ar þeirra.
Islenzkur iðnaður hefur að-
gang að sérstökum stofnlána-
sjóði, Iðnlánasjóði. sem veitir
ián til nýbygginga, vélakaupa
og hagræðingaraðgerða í iðn-
fyrirtækjum. Sjóðurinn var
'stofnaður árið 1935 en lengst
framan af var hann algerlega
fjárvana og ófær um að gegna
því hlutverki sem honum var
aétlaö. En hin síðari ár hefur
Iðnlánasjóður eflzt verulega,
einkum eftir að farið var 'að
leggja svojcallað iðnlánasjóðs-
gjald á alltfn iðnrekstur I land-
inu, en þáio gjáld rennur beint
til sjóðsins. Nemur það nú um
20 millj. kr. árlega og hefur
vaxið vorulega undanfarin ár,
bæði vegna vaxtar iðnaöarins
og ekki síður vegna hækkandi
verðlags 1 landinu. Ennfremur
hefur framlag ríkissjóð til Iðn-
lánasjóðs verið hækkað veru-
lega, þótt enn vanti talsvert á,
að það nemi jafnmiklu og fram-
lag iðnaðarins til sjóðsins. Ár-
legt framlag ríkissjóðs er nú
10 millj. kr.
í þessu tilefni er rétt að vekja
athygli á því, aö framlag ríkis-
sjóðs til Stofnlánadeildar land-
búnaðarins er jafnhátt og fram-
lag það, sem bændur greiða til
Stofnlánadeildarinnar af and-
virði afurða sinna, og er það
áætlað 17 milljónir kr. á fjár-
lögum yfirstandandi árs. Sama
máli gegnir um Fiskveiðasjóð,
ríkissjóði ber skv. lögum að
leggja sjóðnum til sömu upp-
hæð og sjávarútvegurinn greið-
ir til sjóðsins af útflutnings-
sjóðsgjaldinu. Samtök iðnaðar-
ins, Félag ísl. iðnrekenda og
Landssamband iðnaðarmanna,
hafa um langt skeið borið fran-
óskir um að stofnlánasjóður iðn
aðarins verði látinn njóta jafn-
réttis við sjóöi annarra höfuð-
atvinnuvega landsmanna, w,
enn sem komið er hefur ekki
þótt fært að koma til móts við
þessar óskir.
Þrátt fyrir verulega eflingu
Iðnlánasjóðs að undanförnr,
vantar mikið á, að sjóðurinn
hafi getað satt hið gífurlega
hungur í lánsfé, sem hér rlkir.
Á síðustu 5 árum nam fjárfest-
ing í þeim iönaði, sem sjóður-
inn lánar til, um 2.100 millj.
kr. Á sama tíma jukust útlán
sjóðsins um 222 millj. kr. fúr 28
m. kr. f 250 m. kr.V eða aðeins
rúmlega 10% af fjárfestingunni.
Miðað við síðasta ár námu út-
lán Iðnlánasjððs um 20% af
fiárfestingunni f iðnaði. Til sam
anburðar má benda á, að fjár-
festing f landbúnaði nam það
ár um 535 millj. kr. en ný út-
lán stofnlánasióða landhúnaðar-
ins námu um 147 millj. kr. op
beinir fiárfestingarstvrkir tjl
bænda á fiárlögum ársins um
105 milli. kr. Samtals eru betta
vfir 250 mílli. kr. eða nær helm-
ingur af fiárfestingunni f 1and-
búnaðinum.
Enn vantar talsvert á, að fiú’
ur iöfnuður rfki milli iðnaðar o"
annarra atvinnugreina að bví p’-
varðar lánsfiármasn til fiárfest-
ingar. Iðnbróun framtfðarinnar
mun f vaxandi mæli bvggiast á
preiðum aðganei að ffármagni.
fðplánasióður hefur eflzt veru-
leea undanfarin ár. um bað eeta
allir verið sammála. En betur
má ef duea skal.
Vilja auka ferðamannastrauminn
til Bandaríkjanna
Bjóða sérstök kostakjör — Efnt til kvikmynda-
sýningar hér og kynningar á ferðum vestur
■ Bandaríkjamenn búast við
auknum ferðamanna
straumi til Dandaríkjanna í
sumar og þessu ári, vegna
ýmissa stórviðburða, svo sem
heimssýningarinnar í San
Antonio í Texas, 250 ára af-
mælis New Orleans og jass-
hátíðarinnar þar og fleira, og
leggja þeir sig nú alla fram
við að laða ferðamenn vestur
um haf.
Bjóða þeir sérstök kostakjör
í t.d. lækkuðum fargjöldum (nú
standa yfir samningar við flug-
félög f USA um 50% afslátt á
flugfargjöldum inan USA fyrir
erlenda ferðamenn) og á næst-
unni veröur á vegum Ferðaþjón
ustu USA dreift svokölluðum
„gestakortum", en með fram-
vísun þeirra geta menn fengiö
10% til <40% afslátt hjá vissum
hótelum, veitingahúsum, bílaleig
um. verzlunum, í skoöunarferð-
um og vfðar.
____Bandaríska sendiráðið og Upp-
lýsingaþjónusta Bandaríkjanna
efna hér á landi I þessu sam-
bándi til kynningar á ferðum til
Bandaríkjanna, sem hefst í dag
með kvikmyndasýningu f Ame-
ríska bókasafninu f Bændahöll-
inni, þar sem sýndar verða 4
kvikmyndir — allar um New
York, borg og rfki. Næsta föstu
dag, 26. aprfl, verða sýndar
kvikmyndir frá Washington og
Philadelphia og fleiri stöðum
frægum. Eftir*þessar kvikmynd
ir getur fólk spurt spurninga eft-
ir vild.
Laugardaginn, 27. apríl, verð-
ur kvikmyndasýning í Nýja Bíói
en þann dag fer einnig fram
kvikmyndasýning í Borgarbíói á
Akureyri, og hefjast þær á báð
um stöðunum kl. 2.
Orðinri þreyttur — og aðrir líka?
Hann er óneitanlega dálítiö
þreytulegur — og ekki beint sig
urstranglegur, þessi keppandi
um að verða forsetaefni í for-
setakosningunum f Bandarfkj-
unum í nóvember. Maöurinn er
fvrrverandi varaforseti Banda-
ríkjanna, Richard Nixon, en
fljótt á litið gæti allt virzt leika
í lyndi fyrir honum, þar sem
hann hefur enga keppinauta í
sínum flokki um hnossið (ekki
eins og sakir standa), en þessi
,,eins manns sókn“ er oröin til
breytingarlítil, menn eru orðnir
leiðir og kannski Nixon líka. Og
athyglin beinist að öðru. Að
demokrðtum — þar er óvissan
— og spenningurinn. Athyglin
beinist enn að Eugene McCarthv
og þó enn meira að Kennedv
og svo hefur verið óvissan um
Hubert Humphrev og seinas’
en ekki sízt menn hafa aldrm
verið alveg vissir um, að á-
kvörðun Tohnsons forseta um
að vera ekki í kjöri sé alve"
„ófrávíkianieg" — og bað pf
ekki ólíklegt. að bað muni p''
minnsta kosti örla á ðvissu
margra hugum um þetta ba-
til fiokksbingið er búið að tak"
ákvörðunina um forsetaef’"
flokksins. en það er haldið f á
gúst, f Chicagoborg.