Vísir - 24.05.1968, Síða 3
ITt S I R . Föstudagur 24, maí 1968.
3
Sumar sem ræður úrslitum
Jón Sveinsson með tvo væna. Myndin er tekin í fyrrasumar,
þegar fyrstu fiskarnir skiluðu sér eftir að hafa verið eitt ár
í sjó. Sá stærri vó 9 pund.
, . * * *
¥ >%# .> y ^
. ,.z- ■
Tjað verður sumarið í sum-
ar og næsta sumar sem
skera úr um hvort fiskiræktin
í Lárvatni verður arðbær eða
ekki. Þá fer að koma í Ijós hve
mikið af laxaseiðunum, sem við
höfum sleppt niður í' vatnið skil
ar sér aftur eftir dvölina í sjón
um, sagði Jón Sveinsson raf-
virkjameistari, £~en er fram-
kvæmdastjóri fiskiræktarfélags-
ins Látravíkur h.f.
Það er þó ekki aðeins Jón
Sveinsson og hinir 190 hluthaf-
ar í fiskiræktarfélaginu, sem
bíða í eftirvæntingu eftir árangr
inum, heldur allir þeir, sem á-
huga hafa á fiskiræktarmálum,
en þeir eru orðnir margir og
fer sífellt fjölgandi. Ef starfsemi
Látravíkur tekst vel, bætist ný
atvinnugrein við okkar einhæfa
atvinnulíf, en hluthafarnir í
Látravík eru þvi næst sann-
færðir um aö tilraunastarfsemi
sú sem þeir hafa ráðizt í muni
gefa góðan arð í framtíðinni og
að fiskirækt eigi eftir að verða
meginatvinnuvegur hér á landi.
Mikið fé hefur verið lagt í
framkvæmdir og eldi seiða við
Lárós á Snæfellsnesi, eða yfir
7 milljónir króna, sem sýnir, að
hluthafarnir eru bjartsýnir og
eru ekki að gera þetta „svona
bara upp á grín“.
Ef tilraunin tekst vel hjá
okkur er enginn vafi á því að
margir munu koma á eftir, því
að það eru hundruðir staða allt
umhverfis landið, þar sem hægt
er að finna jafnheppilegar að-
stæður til fiskeldis eins og í
Lárós.
Um 250 þúsund seiðum hefur
veriö sleppt í Lárvatn frá upp-
hafi, en það er fyrst í sumar,
sem búast má við að verulegur
fjöldi laxa skili sér aftur eftir
dvöl í sjó. Ef árangurinn verður
eins góður og reynsla sl. árs
gaf tilefni til að halda, er ekki
fjarstæðukennt að 40—50 þús-
und laxar, 4—15 pund að
stærð muni ganga upp í vatnið í
sumar en verði svo. er þegar orð
ið ljóst að laxarækt getur orðið
mjög þýðingarmikill atvinnu-
vegur hérlendis.
;.?>• - - -W
Sjórinn ber með sér ýmis næringarefni, þegar hann fossar
inn í lónið.
Myndin er tekin við stórstreymi og fossar sjór inr i vatnið. Fremst er laxagildran, sem lax-
inn er veiddur í, þegar hann gengur upp í hið 160 hektara lón.
OGREIDDIR l
REIKNINGAR *
LATIÐ OKXUR INNHEIMTA...
Það sparar yður t'ima og óþægindi
INNHEIMTUSKRIFSTOFAN
Tjarnargötu 10 — 111 hæð — Vonarstrætismegin — S'imi 13175 (3l'mur)