Vísir - 07.06.1968, Blaðsíða 7
VÍSIR . Föstudagur 7. júní 1968.
7
morgiin
útlönd í morgun
útlönd í röorgun
útlönd í morgun
útlönd
Lík Roberts Kennedys á viðhafnarbörum
/ dómkirkju beilags Patreks / New York
Minmngarguðsþjónusta þar a morgun, en líkið þar næst
jarðsett í Arlington skammt fró gröf Kennedys
heitins forseta
■ Lík Roberts Kennedys
öldungadeildarþingmanns
var flutt loftleiðis til New
York-borgar, þar sem það
nú liggur á viðhafnarbör-
um í Sankti Patreks dóm-
kirkju, en þar fer fram
minningarguðsþjónusta á
morgun, og síðan flutt í
Arlington kirkjugarð fyrir
utan Washington, og jarð-
sétt skammt frá gröf Johns
F. Kennedys forseta, bróð-
ur hins látna.
Um 500 lögreglumenn voru á
veröi við komu flugvélarinnar til
New York. Líkið var flutt f flug-
vél Johnsons forseta. Líkinu fylgdi
til New York ekkja hins látna og
nokkrir nánustu ástvinir aðrir, frú
■ Frétt frá Albany, höfuðborg
sambandsríkisins New York
hermir, að varðgæzla hafi verið
ankin við landamæri Kanada
vegna hótana „byltingarsinna
í Quebec“. um að myrða Johnson
forseta í hefndarskyni fyrir
morðið á Robert Kennedy öld-
ungadeildarþingmanni.
Hringt var til bandaríska ræð-
ismannsins í Montreal og varað
við hættunni. Var sagt, að átta
þjóöemissinnar væru á leið til
landamæranna f bifreið með
„kraftmiklum hreyfli", eins og
þaö var orðað, og fuilyrt, að
þeir væru staðráðnir í að drepa
forsetann, Humphrey varafor-
seta og Nelson Rockefeller rík-
isstjóra sambandsríkisins New
York.
Þótt menn gerðu sér grein fyr-
ir, að um gabb væri verið að
ræða eða hugarburö, þótti rétt
aö fyrirskipa, að landamæraverð
ir skyldu hafa nánar gætur á
öllu, einkanlega við Champlain,
þar sem þjóðvegurinn milli
Montreal og New York liggur
yfir landamærin.
Meðal skilnaðarmanna í Mont
real var litið á aðvörunina sem
hreina fjarstæðu.
Jacequeline Kennedy, ekkja Kenn-
edys forseta, og ekkja dr. Martins
Luthers Kings.
Johnson forseti gaf út tilskipun
í gær þess efnis, að dagurinn á
eftir útfarardeginum, sunnudagur-
inn 9. júni, skyldi vera dagur þjóð-
arsorgar f Bandaríkjunum.
Þegar fulltrúadeild þjóðþingsins
f^ær hafði samþykkt lagafrumvarp
—r sö)]u á skammbyss-
um eftir póstkröfum og sent það
Johnson forseta til undirritunar,
kom forsetinn fram í útvarpi og
hvatti til vfðtækara banns á sölu
skotvopna, og kvað ófarinn aðeins
helming leiðarinnar að markinu
með frumvarpinu.
yWVWWWWWWWWWWWVWWWNAAAAA/y'
Hótað að myrða
Johnson forseta?
Sænskur maður, er þekkti morð-
ingja Kennedvs fyrir nokkrum
árum, og ber honum vel söguna
Sænskur maður, Christian Ek í
Gautaborg, hefir rætt við Göté-
Er hún með-
sek Sirhan?
□ í Los Angeles hefur veriö fyr-
irskipuð leit að ungri konu, sem
sást með morðingjanum Sirhan
Sirhan, rétt áður en hann skaut
Robert Kennedy. Hún ér grunuö
um hlutdeiid,' þar Sem hún'heyrð-
ist hrópa 'f hugaræsingu, Cjr liún
híjóþ út:
Við höfum skotiö hann, við liöf-
um skotið hann.
, 1 síðari f/egn er frekar dregið úr
grun um. að stúlkan sé meðsek
Sirhan, en rétt hafi þótt að
grennslast frekara um hana.
Ekki er vitað hvað stúlkan heit-
ir, en birt hefur verið Iýsing á
henni og er hún talin 23—27 árn.
Haft er eftir lögreglufulltrúa í
Los Angeles, Peter Hagen: „Viö
erum aöeins að leita frekari upp-
lýsinga.
borgstidningen, um Sirhan Sirhan,
morðingja Roberts Rennedys Þeir
voru skólafélagar í Pasadena, í
Kaliforníu á árunum 1957—1961.
Ek kveöst hafa verið skólafélagi
hans og helzti vinur. Þeir voru
í sama bekk í Marshall Iligh School
í einu úthverfi Pasadena.
Hann kveðst minnast Sirhans
sem kyrrláts, geöþekks pilts. Þeir
voru mikið saman af því aö þeir
voru einu útlendingarnir f skölan-
um.
Ek sé'gir þá oft hafa veriö sam-
an í frítínuim og þá hefði hann
kyhnzt fjölskyldu hans. „Hann var
ekki sú manntegund, sem myrðir
fólk — liann var þaö að minnsta
kosti ekki þá, og ég á erfitt með
aö trúa því, að hann sé það nú.
Ek segir hann hafa búið með
móður sinni, bróður og systur, sem
var yngri en hann sjálfur.
' „Hann getur vitanlega hafa
breytzt, en ég á bágt með að trúa
því, það var hægt að ræða málin
við hann. Hann kom vel fram og
mér virtist hann f öllu heiðarleg-
ur“.
Ek kvaðst þegar hafa þekkt hann
á sjónvarpsskerminum og orðið
mjög undrandi, er hann sá og
heyrði, að hann væri sakaður um
morð.
„Ég efaöist dálítið, þvf að sagt
var, að hann væri frá Jórdaníu,
en við mig sagöi hann ávallt, að
hann væri frá Teheran í Persíu.
Isvestija sakaíf
Nato um stríðs-
undirbúning
í málgagni sovétstjórnar, Isvest-
ija, eru Norður-Atlantshafslöndin
sökuð um styrjaldarundirbúnlng á
noröur og suöurarminum.
Blaðið segir mergð herstöðva í
Noregi, Danmörku og íslandi, og
að herafli Noregs og Danmerkur
verði látinn hlfta yfirstjöm her-
stjórnar bandalagsins, ef til árekst-
urs komi.
Dagur íslenzkra hugvitsmanna
sjáið ÍSLENDINGA 0G HAFIÐ
ÍSLENDINGAR
OG HAFIÐ
í dag er dagur íslenzkra hugvitsmanna á sýningunni ÍSLENDINGAR OG HAFIÐ. — Sjáið fisk-
vinnsluvélar, sem íslenzkir uppfinningamenn hafa fundið upp, m. a.: flökunarvélar, hausingavélar,
flokkunarvélar o. fl. — Skoðið íslenzkar vélar og kynnizt þeim, með útskýringum þeirra sem kynna.
TIZKUSYNING KL. 20.30 í VEITINGASTOFU SÝNINGARINNAR
FLOWERS ii,“ “21
Sýningunni lýkur 11. júní. — Sjáið ævintýraheim sjávarútvegsins. — HAFSJÓR AF FRÓÐLEIK —
ÍSLENDINGAR 0G HAFIÐ
k