Vísir - 26.06.1968, Side 1
Ályktun NATO-fundarins:
Haustlitur á gróðri um
mitt sumar
Mjög ískyggilegt ástand er nú
framundan hjá bændum á Norður-
og Austurlandi vegna lélegrar
túnsprettu, kulda og kals í túnum.
Einna verst er ástandið á Norð-
austurlandi, enda hefur þar verið
næturfrost meö snjókomu undan-
farna sólarhringa.
Blaðið hafði samband við Stein-
grím Björnsson bónda á Ytri-
Tungu í Suður-Þingeyjasýslu í
morgun og sagði hann aö hann
myndi ekki eftir öðru eins kali f
túnum þau 30 ár sem hann hefur
búið á Ytri-Tungu.
„Bændur hér eru mjö'g svartsýn-
ir, enda er útilokað að hægt verði
að heyja nóg fyrir næsta vetur. Hjá
sumum bændum eru túnin alger-
lega eyðilögð og ekkert hey að fá.'
Það er vonlaust að byrja að slá
fvrr en eftir 4-5 vikur og er það
mánaði seinna en vanalega. Snjór
er hér ennþá í fjöllum og fsbreið-
an liggur alveg að landinu. Ástand-
ið er heldur skárra hér f innsveit-
unum, en þó eru kýr víöa enn á
gjöf og fé við hús. Á úthögum var
dálítið farið að spretta í hlýindun-
um um daginn, en gróðurinn hefur
fölnað og er nú kominn haustlitur
& lyng“, — sagði Steingrímur enn
fremur. Ekki' mun háfa snjóað f
nótt nema á Hornströndum, en hiti
var 1-6 stig norðanlands en allt að
10 stig hér syðra.
Réttarhlé í
Hæstarétti
Mál Þorvaldar Ara
bibur til haustsins
Réttarhlé hefur verið gert í
Hæstarétti og má gera ráð fyrir,
að það standi fram undir miðjan
september, ef ekki verður brugðið
út af vananum. Hófust þingleyfin
24. júní, eins og ráð er fyrir' gert
í reglugerð frá 1920 um störf Hæsta
réttar.
m~> 10. sfðu
Verkfræðistúdentar vinna þarna að talningunni.
58. áré. - Miðvikudáeur 26. iúnf 1968. - 1
tbl.
Sovétríkin bera fulla
ábyrgð á Berlínarmálinu
Utanríkisráðherrar NATO-land-1 yfirlýsingu sinni, að Sovétríkin
anna lýstu þvf yfir í sameiginlegu | bæru fyllstu ábyrgð á þeim vanda-
TALNINGU HRAÐAÐ ÚTI Á LANDI
telji Reykjavik og Reykjanesskj’órdæmi um nóttina
Talning atkvæba á Suðurlandi allavega hraðað
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma má gera ráð fyrir, að taln-
ingu atkvæða við forsetakosn-
ingarnar verði hraðað eins og
unnt er. VÍSIR hafði I morgun
samband við formenn yfirkjör-
stjórna í Norðurlandskjördæmi
eystra og í Suðurlandskjördæmi,
en formenn yfirkjörstjóma i
Reykjavík og Reykjanesskjör-
dæmi sátu á fundum. Formaður
kjörstjórnar í Suðurlandskjör-
dæmi, Freymóður Þorsteinsson,
sagði, að talning í kjördæminu
myndi hefjast strax um nóttina,
ef atkvæðin frá Vestmannaeyj-
um bærust i tæka tíð.
Freymóður sagði, að eflaust yrðu
atkvæðin frá flestum kjördeildum
komin til Hvolsvallar, en þar fer
talning fram, rúmum klukkutíma
eftir að kjörstöðum væri lokað. En
hann sagði, að erfiðleikarnir væru
samfara atkvæðaflutningum frá
Vestmannaeyjum. Sagðist hann
vilja stinga upp á því, að þyrla
Landhelgisgæzlunnar yrði notuð
við flutninginn, þá gæti talning haf
izt og mundi hefjast strax og færi
fram um nóttina.
Ragnar Steinbergsson formaður
»-> 10. síöu
málum, sem takmarkanir, sem
A.-Þýzkaland hefur sett á ferð-
ir milli V.-Berlínar og V.-Þýzka-
lands, hafl valdið.
Ráðherranir segja í yfiriýsing-
unni, að þeir viðurkenni ekki rík-
isstjóm A.-Þýzkalands og hafi aö-
gerðir hennar því ekki lagalegt
gildi. A.-þýzk yfirvöld hafi skapað
alvarlegt ástand með því að ganga
í þerhögg viö alþjóölega samninga
og gamlar venjur varðandi Berlín.
Fundurinn samþykkti ákvarðanir
þríveldanna, þ.e. Frakklands, Bret-
lands og Bandaríkjanna, sem ásamt
Sovétríkjunum þera fulla áþyrgð á
Berlín og Þýzkalandi í heild, en
þær miða að því að tryggja frjáls-
ar samgöngur til og frá Berlín.
Fyrsta sporíð til afvopnunar tekið
í Reykjavík
Ráðherrafundi NATO lauk i gær, eftir lengsta
samfellda fund i s'ógu samtakanna
■ Fyrsta sporið á opinberum vettvangi að af-
vopnun Evrópu var ef til vill tekið hér f Reykjavík
í gær. Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins,
samþykktu ályktun í fundarlok í gær, þar sem
gert er ráð fyrir, að dregið verði gagnkvæmt úr
herstyrk Atlantshafsbandalagsins og Varsjár-
bandalagsins. Með þessari ályktun hefur afvopnun
Evrópu verið hreyft á þann hátt, að Varsjárbanda-
lagið getur, ef það hefur áhuga á, gert ráðstafanir
til viðhæðna við Atlantshafsbandalagið. Ráðherrar
NATO-landanna hafa með ályktuninni lýst yfir
vilja sínum til þess að slíkar viðræður eigi sér
stað milli hernaðarbandalaganna, en enginn tími er
tilnefndur.
Þetta er mjög flókið og um-
fangsmikið starf, þar sem
trygging yrði að fást fyrir því,
að valdajafnvægi Evröpu rask-
aðist ekki viö afvopunina. Því
var gert ráð fyrir því f sam-
eiginlegri yfirlýsingu ráðherr-
anna, að áfram yrði unnið að
þessari athugun og ekki leitað
eftir viðræðum að fyrra bragði
við Varsjábandalagið fyrr en
athugunin er lertgra komin.
Mjög erfitt reyndist að fá
alla utanríkisráðherranna til að
fallast á sameiginlegu yfirlýs-
inguna og dróst fundurinn í gær
mjög á langinn vegna þess.
Fundurinn hófst kl. 10.30 i gær-
morgun, en þá hafði nefnd starf-
að að því að samræma þær
skoðanir, sem fram höfðu kom-
iö á fundinum daginn áður. í
fyrstu var gert ráð fyrir þvi,
að fljótlegt yrði að ganga frá
yfirlýsingunni. Var jafnvel gert
ráð fyrir því, að fundinum lyki
fyrir hádegi. Sú varð þó ekki
raunin á, heldur dróst hann
til kl. 3.40 og var hann þá
orðinn lengsti samfelldi fundur
utanríkisráðherra f sögu NATO.
Mestum erfiöleikum við aö
ganga frá ályktuninni ollu
Frakkar. Þeir gátu ekki fallizt
á ýmislegt það, sem snerti af-
vopnun Evrópu, sem og yfir-
lýsingu vegna ástandsins á
Miðjarðarhafi. Lauk fundinum
svo, að þeir skrifuðu ekki undir
nokkrar greinar sameiginlegu
yfirlýsingar fundarins og álykt-
unarinnar.
Umfangsmikil athugun hefur
farið fram af hálfu aðildarlanda
NATO um möguleika gagn-
kvæmrar afvopnunar Evrópu.
jr
Vlotæk umferðartalning framkvæmd
Oft hefur verið kvartað yfir um
ferðarljósunum í höfuöborginni.
Eru þau mjög í ósamræmi við þá
miklu umferö, sem hér er. Hafizt
hefur verið handa við að lagfæra
þau og hófst undirbúningurinn i
gær. Um 12 verkfræðinemar viö
Háskóla íslands sitja í bifreiðum
viö gatnamót, þar sem umferðar-
Ijós eru og telja þær bifreiöir sem
aka þar um. Verður síðan reynt að
stilla ljósin eftir þeim niðurstöðum
sem þeir gefa. Talningin hefst kl.
7 á morgnanna og stendur til mið
nættis, og mun verða talið í tvo
daga. Fyrir hægri breytinguna voru
fengnir hingað nokkri enskir sér-
fræðingar og var þá umferðarljós-
unum breytt, en því miður hafa
umferðarljósin ekki samræmzt
hægri umferöinni enn. Ljósin eru
talsvert breytileg, en þau eru stillt
frá kl. 7—10, síðan frá 10—4 og
að lokum 4—7 dag hvern. Geta
því hæglega um 15 bifreiðir ekið
yfir gatnamót á einum tíma dags-
ins, en aðeiris 6 á öðrum.