Vísir - 26.06.1968, Page 9
/
VÍSIR . Miðvikudagur 26. júní 1968.
9
er vilji þjóðarinnar?
— Yfirlit yfir tíu fyrstu skoðanakannanir Vísis
íjað er ekki hlaupiö aö því að
segja nákvæmlega fyrir um
afstöðu almennings til ákveð-
inna mála, því aö almennings-
álitiö er oft óútreiknanlegt
eins og veðrið. Og á skömmum
tíma skipast veöur í lofti rétt
eins og afstaða fólks getur
breytzt í einni sjónhending.
Mörgum stjórnmálamannin
um hefur leiðzt þessi óútreikn
anleiki fólks, og einhver kallaöi
almenning því virðulega nafni
„ófreskjan með mörgu hausana'
Það skal tekið fram að það var
ekki íslenzkur stjórnmálamaö-
ur.
Alltaf hafa menn engu að
síður reynt að sjá fyrir hið
óorðna. Fyrr á tíð settu menn
traust sitt á afstöðu himin-
tungla, innyflaspár og svo fram
vegis, en nú er einkum reynt
að styðjast við vísindalegri að-
ferðir eins og skoðanakannan-
ir, þótt atvinnuleysi sé ekki
beinlínis ríkjandi hjá spákonum
og loddurum.
Ýmsar stofnanir, sem fram-
kvæma skoðanakannanir, eru
nú orðnar viðurkenndar stofn-
anir víöa um heim, og menn
byggja mjög á niðurstöðum
þeirra, þótt stundum hafi borið
við að þær væru fjarri sanni.
Reglan er samt sú, að skoðana-
kannanir, þegar þær eru vand-
lega unnar, eru oftast nokkuö
nærri lagi.
Vtiö framkvæmd skoöanakann-
* ana er margt, sem hafa
verður hugfast til þess aö nið-
urstaða náist, sem eitthvað er
á að byggja. Við almenna skoð-
anakönnun er grundvallarhug-
myndin sú, að geröur sé nokk-
urs konar þverskurður af þjóö-
félaginu, þannig að rétt hlut-
fall haldist meðal hinna ýmsu,
stétta, aldursskeiða og eðlilegt
hlutfall sé milli karla og
kvenna.
til þess arna er gert visst
úrtak, sem síðan er leitað til
með spurningarnar. Þetta úrtak
á eiginlega aö vera eins og
„þjóðfélagið í hnotskurn", og
skoðanir þess eiga að endur-
spegla skoðanir heillar ^jóðar.
Vísir hefur nú framkvæmt
10 skoðanakannanir um ýmis
mál og birt niðurstöðurnar.
Þessar niðurstöður hafa vakið
mikla athygli, og þess vegna
er æskilegt að rifja þær upp.
Fyrsta skoðanakönnunin var
birt 12. janúar síðastliðinn, en
það var áður en menn vissu.
hverjir yrðu í forsetaframboöi.
Spurningin, sem þá var lögð
fyrir menn hljóöaði svo: „Hver
viljið bír að taki við embætti
forseta Islands í sumar?“ Það
kom á daginn, aö meirihluti
fólks, eða 57%, hafði ekkert
um málið hugsað og vildi ekki
taka afstöðu til þess, en þeir
sem höfðu velt málinu fyrir sér.
tilnefndu níu þjóökunna menn
sem æskilega frambjóðendur
þar á meðal bæði dr. Gunnar
Thoroddsen og dr. Kristján
Eldjárn.
Cíðan fyrsta skoöanakönnun
in var birt hafa orðið mikl-
ar ' reytingar á framkvæmd
Skoðanakönnunar Vísis. Áöur
náði hún aðeins ti' íbúa Reykja-
víkursvæðisins, siðan var Akur-
eyri bætt við. og nú er svo
komið, að hún endurspeglar
skoðanir allrar þjóðarinnar.
hún nær til allra sýslna og
landshluta.
Fyrir hægri-breytinguna geró
Vísir tvívegis könnun meðal
fólks á fylgi hennar. t fyrra
skiptið var það um svipað
leyti og rætt var á þingi
um hvort rétt væri að fresta
breytingunni en í síðara
skintið var spurt skömmu fvrii
H-dag. þegar fyrirsiáanlegt var.
að ekki vrð' hvikað frá fyrir
hugaðri breytingu
Á þessum tíma höfðu skoö-
anir fólks breytzt allmikið. os
hægri-umferðin virtist eiga
minna fylgi aö fagna eftir þvi
sem H-dagur nálgaðist.
"’.r fer á eftir listi yfir niu
skoðanakannanir. sem Vísir het
ur t, og eiga töflurnar að
skýra sig sjálfar. Vert er aö
vekja athygli á þvf. að siðasta
könnunin um afstöðu manna til
Atlantshafsbandalagsins nær til
allrar þjóðarinnar í heild.
29. janúar
Teljið þér rétt, að minkaeldi verði
leyft hér á landi?
Svör alls. 181, 91 kona og 90 karlar
Meö ........... 48 eða 27%
Móti.......... 105 eða 58%
Veit ekki .... 28 eða 15%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með ................. 31%
Móti................. 69%
5. febrúar
Teljið þér rétt, að taka upp hægri
umferð í vor?
Svör alls 181, 91 kona og 90 karlar
Með ........: 81 eða 45%
Móti........ 92 eða 51%
Veit ekki ... 8 eða 4%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með ...............47%
Móti................. 53%
13. maí
Eruð þér hlynnt(ur) hægri.
breytingunni?
Svör alls 163, 81 karl og 82 konur
Með ......... 50 eða 31%
Móti ........ 89 eða 54%
Veii ekki .... 24 eða 15%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með ................. 35%
Móti................. 65%
12. febrúar
Teljið þér rétt, að leyfa sölu á
áfengu öii hérlendis?
Svör alls 181, 91 kona og 90 karlar
Með ......... 84 eða 46>/2%
Móti ........ 84 eða 46*Á%
Veit ekki .. 13 eða 7%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með .................. 50%
Móti................. 50%
26. febrúar
Teljið þér rétt, að leyfðai séu sjón-
varpssendingar frá Keflav.flugv. jafn-
hliða sendingum ísl. sjónvarpsins?
Svör alls 180, 82 karlar og 98 konur
Móti takmörkun 107 eða 59*72%
Með takmörkun 47 eða 26%
Óákveðnir 26 eða 14*/6%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með takmörkun ........... 31%
Móti takmörkur .......... 69%
21. maí t
Viljið þér láta leggja landsprófið
niður, breyta því eða halda því?
Svör alls 163, 81 karl og 82 konur
Halda óbreyttu .. 29 eða 18%
Breyta........ 77 eða 47%
Leggja niður .... 9 eða 6%
Óákveðnir .........48 eða 29%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Halda óbreyttu............ 25%
Breyta ................... 67%
Leggja niður............... 8%
10. júní
Viljið þér, að íslendingar gerist
aðilar að Fríverzlunarbanda-
laginu, EFTA?
Svör alls 163, 81 karl og 82 konur
.Með aðild .. 53 eða 32%
Móti aðild .. 13 eða 8%
Óákveðnir .. 97 eða 60%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með aðild .............. 80%
Móti aðild.............. 20%
18. júní
Eruð þér hlynnt(ur) því, að tekin
verði upp þegnskylduvinna hér
á landi?
Svör alls 163, 81 karl og 82 konur
Með ........... 77 eða 47%
Móti........... 47 eða 29%
Óákveðnir .. 39 eða 24%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með .............:.. 62%
Móti................. 38%
24. júní
Eruð þér fylgjandi því, að islend- ingar segi sig úr Atlantshafsbanda-
laginu á næsta ári?
Með aðild . 51%
Móti aðild . 19%
Óákveðnir . 30%
Með prósentutölu þeirra, er afstöðu
tóku í málinu, lítur taflan svona út:
Með aðiíd . 73%
Móti aðild . 27%