Vísir - 31.08.1968, Page 8
8
VIS IR . Laugardagur 31. ágúst 1968.
VISIR
Otgefandi: Reykjapfent h.t.
Framkvaemdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aöstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Augiysingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aöalstræti 8. Simi 11660
Ritstjóm: laugavegi 178. Slmi 11660 (6 linur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölj kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.__________________
„Óðapólitík"
IJngir Framsóknarmenn hafa nýlega lokið þinghaldi
og birt stjórnmálaályktun í Tímanum. í inngangi
hennar er sagt að Framsóknarflokkurinn hafi í upp-
hafi verið „þjóðmálalegt baráttutæki nýrrar kynslóð-
ar“, en skilja má á framhaldinu að ungu mennirnir
telji að flokkurinn hafi ekki nú upp á síðkastið gegnt
þessu hlutverki sem skyldi, enda tala þeir um nauð-
syn á „endurmótun“ stefnuatriða og starfsaðferða. Þá
er og tekið fram að „höfuðverkefni ungra Framsókn-
armanna á næstu misserum hlýtur að verða, að beita
sér bæði fyrir nauðsynlegri endurnýjun innan Fram-
sóknarflokksins á sviði stefnumála og starfshátta,
auk þess að flokkurinn velji yngri menn til forustu-
starfa“.
Þeir sem hafa fylgzt nokkuð með framlagi Fram-
sóknarflokksins til þjóðmálanna síöustu árin, eiga ef-
laust auðvelt með að skilja það, að ýmsir í þeim her-
búðum séu farnir að sjá að nauðsyn sé þar á „endur-
nýjun stefnumála og starfshátta“. Um stefnumálin er
það skemmst að segja, að þau hafa engin verið, nema
að vinna gegn þeirri uppbyggingu og endurreisn efna-
hagslífsins, sem viðreisnarstjórnin hafði forgöngu um
þegar hún tók við þrotabúi vinstri stjórnarinnar.
Þessu eina stefnumáli sínu hafa forustumenn Fram-
sóknarflokksins flestir reynzt trúir og geta því miður
séð þar talsverðan árangur verka sinna.
Það er því ekkert undrunarefni, að til skuli vera
innan flokksins fjölmennur hópur, sem hefur áttað sig
á því, að það er ekki hlutverk stjórnmálaflokka að
vinna þjóðhagsleg skemmdarverk, jafnvel þótt það
geti aflað þeim fylgis einhverra fávísra sálna um stund
arsakir. Þeir sem hafa gert sér grein fyrir þessu í
Framsóknarflokknum, er eflaust fólk á öllum aldri,
þótt hentugt hafi þótt að láta yngri mennina kveða
upp úr um nauðsyn breyttra starfshátta. En jafnframt
er víst, að sterk öfl innan flokksins vilja engar breyt-
ingar og láta sér fátt finnast um „brölt“ þeirra yngri.
En hvað vilja svo ungu mennirnir? Þeir vilja komast
að sjálfir, og það er kunnugt að sumum þeirra liggur
reiðinnar ósköp á. Þeir eru sannfærðir um eigið ágæti
og halda sennilega sumir að þeir séu fæddir til að
frelsa landið. Þeir segja að flokkshagsmunirnir séu
látnir ráða of miklu á flestum sviðum og flokksvald-
ið sé í höndum örfárra manna. Þetta kalla þeir „óða-
pólitík“. Þeir ætla svo sem að laga þetta, ef þeir kom-
ast sjálfir til valda, og ef til vill er ástæðulaust að
rengja þá um að sá sé ásetningur þeirra. En þeir hafa
alizt upp í flokki, sem kunnur er að því að láta „skef ja-
lausa flokkshagsmuni“ ráða á flestum sviðum og mis-
beita pólitísku valdi allra flokka mest, þegar
hann hefur aðstöðu tíl. Þeir ætla sér kannski að gjör-
breyta siðferðinu í flokknum, og vel sé þeim þá fyrir
það. Vonandi er áhugi þeirra ekki aðeins „óðapólitík“
— b.r '•'"s löngun til þess að komast sjálfir sem
Þ' ^naforráða.
Horfur í Tékkóslóvakíu
aldrei ískyggilegri en nú
I Moskvu varð Svoboda að hóta sjálfs-
morði, ef ekki fengist framgengt, að
Tékkóslovakia fengi að halda sjálfstæði
„að vissu leyti"
— Cernik á óopinberum fundi nteð
fréttumönnum. — Hæfustu sonum
lundsins rúðlugt uð flýju lund
meðun tækifæri er til —
Horfur í Tékkóslóvakíu
virðast verða æ ískyggi-
legri og ekki annað sýnna
en að þar verði allt keyrt
í viðjar ófrelsis og harð-
neskju og margt kemur nú
í Ijós varðandi hinn ljóta
forleik innrásarinnar og
það sem síðar gerðist.
NTB-frétt í gær hermdi, að
Cernik forsætisráðherra heföi á
óopinberum fundi með ríkis-
starfsmönnum, bent þeim á að
láta þaö berast „til gáfuðustu
manna landsins". að þeir ættu
að koma sér úr landi meðan
enn væri tækifæri til. Hann
skýrði frá því á fundinum, að
Rússar hefðu gengiö frá lista
meö nofnum 2000 manna, sem
á að flytja úr landi.
Á fundinum / ar Cernik
spuröur um persónulegt öryggi
ráðherra og svaraöi hann:
ÞaÓ getur enginn ábyrgzt. .
Cernik sagði, að hann og
Alexander Dubcek, flokksleið-
toginn, reyndu aö vera eins mik-
ið saman og þeir gætu, en Rúss-
ar reyndu að hindra það.
I Moskvu voru þeir ekki beitt-
ir líkamlegu ofbeldi. Hann kvaö
Ludvik Svoboda hafa komið
fram af miklu hugrekki við
samkomulagsumleitanirnar og
það var hann, sem bjargaði
landinu frá yfirvofandi vá.
Leiðtogar Rússa sögðu í við-
ræðunum, að þeir myndu „eyði-
leggja landið", ef þeir teldu
nauðsyn bera tii, og héldu því
fram, að þeir hefðu rétt til þess
að hernema landið allt til vest-
urlandamæra þess. Þegar þetta
gerðist risu samningamenn á
fætur og bjuggust til útgöngu,
en Brjezhnev kom viðræðum af
stað aftur.
Það var harmsögulegasta
augnablik viöræönanna,
þegar Svoboda rikisforseti
hótaði að fremja sjálfsmorð,
ef ekki næðist samkomulag
um að landið fengi að halda
sjálfstæði sínu að vissu leyti.
Hann hótaði þessu, er sov-
étleiðtogarnir virtust vera
staðráðnir í að hernema
landið og stjóma þvi sem
eins konar verndarriki.
Aftur lá viö, að samkomu-
lagsumleitanir færu út um þúf-
Brezhnev — forðaði viðræðu-
slitum í Moskvu.
Svoboda — hótaði að fremja
sjálfsmorð.
ur, en Brjezhnev kom þeim aí
stað enn á ný.
Cemik er sagður líða furðu
vel eftir atvikum, svo mjög
sem á hann hefir reynt, en Al-
exander Dubcek úttaugaður, og
hefir hann fengið yfirlið nokkr-
um sinnum seinustu daga.
Samkvæmt heimildum frá
þeim, sem sátu fundinn, er talið
hyggilegast fyrir alla þá, sem
tóku virkan þátt í að efla hreyf-
inguna fyrir auknu frjálsræði,
að fara úr landi.
Cemik á að hafa sagt:
— Sjálfur bý ég ekki við neitt
öryggi. Hvernig ætti ég þá að
geta hjálpað öðmm.
Cernik sagöi frá því, er hann
var fluttur til Moskvu. Viðkoma
var á mörgum stööum. Á sein-
asta staðnum var hinum tékkn-
esku leiðtogum blátt áfram hent
inn f vélina.
„Þúsundára hatur“.
Emil Zatoptek, íþróttahetja
Sovétríkjanna, sagði í gær að
meö innrásinni í landið hefði ást
Tékka á Sovétríkjunum breytzt
í hatur, sem ef til vill yrði ekki
upprætt á þúsund árum.
Fleiri innrásir?
Blaðið Kommúnist i Júgó-
slavíu segir, aö Sovétríkin muni
„trúlega beita hernámsaðferð-
inni í fleiri löndum".
Ftokkur demokrata klofinn
Vafasamt, að Humphrey takist
að sameina hann
Þótt Humphrey sigraði og yröi
valinn forsetaefni demokrata
með yfirgnælandi meirihluta at-
kvæða er flokkurinn klofinn og
að áliti stjórnmálafréttaritara
verður bað meginhlutverk Hump
hreys á komandi tfma, hvort
sem hann verður kjörinn forseti
eða ekki, að sameina flokkinn,
og Muskie varaforsetaefni mun
að sjálfsögðu veita honum sem
hann má.
Eugene McCartliy beið ósigur
meiri en búizt hafði verið við,
en hann fékk þó 601 kjörmanna
atkvæöi. Hann sagði á fundi
með fréttamönnum í fvrradag
(fimmtudag), að hann hefði ekki
tekið ákvörðun um þaö, hvort
hann myndi styðja Humphrey,
en hann kvaöst hafa samráð við
þá, sem litu sömu augum á mál-
in og hann sjálfur. Mun Víet-
namstefna Humphreys — veröi
hann kjörinn forseti — ráða
mestu um afstöðu McCarthys,
og einkanlega er að því kann að
draga innan tíðar, að vopnahlé
verði gert f Víetnam.
Nokkrir óánægðir fulltrúar á
flokksþinginu hafa hótaö að
ganga úr flokknum og stofna
nýjan flokk.
Humphrey virðist bjartsýnn á,
að honum takist að sameina
flokkinn, en ýmsir fulltrúar á
flokksþinginu efast um, að hon-
um takist þaö.
I ræðu þeirri, er Humphrey
flutti til þess að taka viö út-
nefningu, harmaði hann, aó
grípa hefði orðið til slíkra öf
yggisráðstafana sem í Chicago
og einnig harmaöi hann, hve
mikilli hörku var beitt gegn
þeim sem komu saman til þess
aö mótmæla Vfetnamstefnu
stjórnarinnar. Þyrla hefði verið
í notkun til þess að flytja þátt-
takendur á milli.