Vísir - 31.08.1968, Qupperneq 9
VÍSIR . Laugardagur 31. ágúst 1968.
ss
9
»
i
t
\
\
\
V
íM
^ýiÍ^iyWÍiiíiMiW^
&*•'***5
;: • '
^!^*.**
--'v
'■:
* < w.vJy.s^vK-:
-
»-'K'4s>í
•• :•<• . v.
li#§i!
LÆKKUN BYGGINGARKOSTNAÐAR
□ Það er eðlilegt að menn velti því fyrir sér í þessu
landi nýbygginganna, hvernig hægt sé að byggja
ódýrt, án þess þó að slaka á þeim kröfum, sem gerð-
ar eru til íbúðabygginga hér á landi. Það á fyrir æði
mörgum að liggja einhvern tíma á lífsleiðinni að
reisa sér þak yfir höfuðið hér á landi og því skyldu
menn ekki leggja hausiim í bleyti, til þess að finna
ódýrustu leiðina út úr byggingarógöngunum.
J^ækkun byggingarkostnaðarins
hefur verið meira rædd síö-
ustu misserin en nokkurn tíma
áður. Sú hreyfing, sem komizt
hefur á umræður um byggingar-
mál vegna Byggingaráætlunar-
innar og framkvæmda hennar
er ekki hvað sízt runnin frá
þessu vandamáli.
Þessar umræður hafa þó frá-
leitt leyst vandann. Hver ein-
staklingur og hvert einstakt fé-
lag eða stofnun, sem við bygg-
ingar.fást, velta byggingarkostn-
aðinum, fyrir sér og hvemig hon-
um megi koma sem mest niöuf
og margir þykjast þeir leysa
vandann í hverju einstöku til-
felli. En heildarrannsókn á bygg-
ingarkostnaöi er ekki fyrir hendi
hér á landi ennþá og verður
kannski seint. Fræðilega verður
því ekki slegið föstu hvort hinn
raunverulegi byggingarkostnaö-
ur sé of hár hér á landi. Menn
hafa hins vegar rétt til þess að
tala um eðlilegan byggingar-
kostnað miöað við núverandi á-
stand, og út frá því er hægt um
vik að dæma um óeölilegan bygg
ingarkostnaö.
10 manna nefndin.
Þetta gerði Vísir á sinum tíma
og olli miklum deilum og blaða-
skrifum, sem síðar leiddu til
þess meðal annars aö iönaðar-
menn kröfðust þess aö skipuð
yrði nefnd til þess að fjalla úm
byggingarkostnaðinn. — Þessi
nefnd hljóp af stokkunum í
fyrra og skipaði ráöherra í hana
tíu menn. Ennþá hefur þessi
nefnd ekki sent frá sér neina á-
lyktun um byggingarkostnaðinn,
en hún mun hins vegar vera bú-
in aö viða að sér nokkrum gögn-
um til rannsókna á. — Nefnd
þessi á ærinn starfa fyrir hönd-
um, þar sem t. d. hliðstæðar
rannsóknir erlendis eru byggðar
á upplýsingum um þúsundir í-
búða, tölulegar upplýsingar um
raunverulegan byggingarkostnað
margra hliðstæðra bygginga.
Það sem gerir slíkar rannsókn
ir hvað erfiðastar hér á landi er
það, hversu mikið af kostnaðin-
um er falinn og ekki hægt aö
gera viðhlítandi grein fyrir hon-
um. Þar kemur einkum til vinna
húsbyggjenda sjálfra við bygg-
ingarnar og hana er erfitt að
meta réttilega. — Þannig mun
nefndin hafa takmörkuð not af
bókhaldi ýmissa húsa, þó að hún
vildi viða að sér gögnum til
rannsókna.
Margir með lausnina!
Og þar sem ekkert ákveðið
hefur komið frá hálfu hins öpin-
bera um byggingarkostnaðinn og
lækkun hans verða menn að
halda áfram aö leggja hausinn
í bleyti hver fyrir sig. Auk þess
eru nú starfandi tvær stofnanir,
sem vinna aö vissu marki á lækk
un á byggingarkostnaði. Fram-
kvæmdanefnd byggingaráætlun-
ar og Einhamar, félag bygging-
ariðnaðarmanna. Þessar stofn-
anir hafa hins vegar hvergi kom-
ið sér saman um hlutina, langt
í frá, eins og ráða hefur mátt
af skrifum þessara aðila í blöð-
um að undanförnu.
Framkvæmd byggingaráætl-
unarinnar hefur sætt mikilli
gagnrýni eins og vera ber, en
því verður þó ekki neitað að þar
er á ferðinni nýjung, sem hvar
vetna eru bundnar við miklar
vonir um lægri byggingarkostn
að. Þetta stórátak í íbúðar-
byggingum hér á landi hefur enn
þá ekki gefið afleita reynslu,
þó aö íbúðirnar í Breiðholts-
hverfi yröu ekki eins ódýrar og
meijh hugéu. Og þar éru ekki
öll kurl komin ti! grafar þar
sem eftir er að reisa meiri
hluta þess húsnæðis, sem upp
haflega var ætlað og Fram-
kvæmdarnefndarmönnum hefur
væntanlega lærzt mikið á
fyrsta sprettinum.
Þannig hafa menn velt þessu
erfiða dæmi fyrir sér, hver i
sínu horni, og lausnirnar eru
nærri jafnmargar reiknings-
mönnunum, en engin algild.
- Og það verður trúlega seint
gefin ,,patent“ lausn til lækk-
unar byggingarkostnaðinum,
hvaö sem öllum rannsóknum og
tilraunum líður. Hér skal að-
eins bent á nokkur atriöi, sem
eru ofarlega á baugi varðandi
þetta stóra spurningarmerki
byggingarmálanna;
lækkun byggingarkostnaöar í
Stöðlun
Ýmsar bollaleggingar' hafa
heyrzt um stölun vissra hluta
til húsbyggip;^ og slíkt myndi
sjálfsagt leiöa til spárnáðar, ef
þaö kæmist á í einhverju mæli.
Hér á landi er nær enginn hlut
ur framleiddur til bygginga,
staölaöur, nema ef vera skyldi
hurðir. Gluggar, innréttingar
allar og annað slíkt er teikn-
að sérstaklega fyrir hverja íbúð,
hvert hús, eða í lægsta tilfelli
húsa„grúppu“. — Það gefur að
skilja, hversu mikill sparnaö-
ur yrði til dæmis að því að eld
húsinnréttingar yröu staðlað-
fyrir fjölbýlishús, svo lítiö
dæmi sé tekið. — Þar með væri
hins vegar tekiö fyrir frumlegar
tiltektir húsbyggjenda sjálfra
og arkitektum yröi þrengri
stakkur skorinn. Slíkt myndi
skapa grundvöll fyrir fjölda-
framleiöslu á eldhúsinnrétting
um hér á landi og miklu ódýr-
Myndin er af stálsteypumótum í notkun.
ari framleiöslu væntanlega en
hingaö til hefur tíökazt. — Við
byggingu húsa framkvæmda-
nefndarinnar í Breiöholti hefur
að vissu marki verið fariö út
fjöldaframleiöslu á mörgum
byggingarhlutum með stórum út
boðum._— Útboð á eldhúsinn-
réttingum u.rðu eitt hiö hagstæö
asta, sem kom út úr því.
Stór verkefni
Menn eru ekki á sama máli
um það, hvort stór verkefni,
eins og Byggingaráætlunin, sé
vel til þess fallin að lækka
byggingarkostnaö. sízt ef hið
opinbera á að standa algjörlega
að slíkum framkvæmdum. Hins
vegar hafa slíkar framkvæmdir
marga augljósa kosti, sem ó-
mögulegt er aö loka augunum
fyrir. Þær hljóta að leiöa til
hagkvæmni í innkaupum, bæði
á byggingarefni og tækjum viö
framkvæmdir. Viö þær er ávallt
hægt að nota fullkomnustu
byggingartækni. Slíkar fram-
kvæmdir hljóta og aö ýta undir
fjöldaframleiöslu og verksmiðju
framleiðslu — og þar meö
fækkun vinnustunda á bygging
arstað. — Framkvæmdirnar í
Breiöholti hafa óneitanlega ýtt
undir nýja byggingartækni hér-
lendis, til dæmis við uppsteypu
húsa og framleiöslu á steyptum
einingum og skapað nokkra
reynslu í þessum efnum.
Hins vegar vilja slíkar fram
kvæmdir hlaða á sig skrifstofu
kostnaði, ekki sízt bar sem hiö
opinbera er annars vegar.
Sjálfstæöar byggingarsamsteyp-
ur væru sjálfsagt heppilegri aö-
ili til þess aö framkvæma slíkt
stórverkefni f framtíðinni og
þyrftu byggingariðnaðarmenn
að taka slíkt til alvarlegrar at-
hugunar. Fyrsta skrefið hafa
þeir þegar stigið með stofnun
Einhamars og þeim áformum,
sem þar eru. á döfinni. ins
vegar má ekki vanmeta hlut
ríkisins, sem hrindir af stað
brautryöje: dastarfi á þessu
sviði með byggingunum í
Bre'ð^f'lti hversu sem til tekst.
Iðnaðarmenn hafa réttilega
10. sfða
eru færar?
ÉinM