Vísir - 11.09.1968, Side 3

Vísir - 11.09.1968, Side 3
VíSIR . Miðvikudagur 11. september 1968. ' 3 »V>AAAAA/V>AA/WWWWWWWW^/WW\^VW\AAA/WVWWVW\AAAAAAAAAA/WWV^AAA<WAAAAAAA/\AA/VW\/W\AAAAAAA/\AAA/* rjýrasta kvikmynd, sem gerö héfur verið, ér kvikmyndin um Kleópötru, drottningu Egifta lands, en sii mvnd kostaði um tvo og hálfan milljarð islenzkra króna, nánar til tekið krónur 2.394.000.000.00. Á næstunni verður varla gerð svo dýr mynd á Islandi, svo að hér verða menn að sníða sér stakk eftir vexti, og notast við það sem til fellur. Tveir ungir áhugamenn um kvikmyndagerð hafa nú hle.ypt Mjófilmuklúbburinn Smári 2.394.000.000.00 kr. eða 2.394.00 kr. YNDS af stokkunum kvikmyndaklúbbi, þar sem þeir hafa undirbúið að- stöðu fyrir aðra með sama á- hugamál með það fyrir augum, að þeir geti komið saman og unnið að eða rætt hugðarefni sitt. Myndsjáin fór og heimsótti þessa tvo menn, sem heita Jón Axel Egilsson og Skúli Ámason, þar sem þeir voru að leggja slð- ustu hönd á fráganginn í húsa- kynnum klúbbsins að Langholts vegi 27. Húsakynnin eru I bíl- skúr, sem þeir félagar hafa end- urbætt, svo að þar inni er orðið vistlegt. Þeir hafa komið fyrir sýningarklefa og tjaldi, borðum, þar sem aðstaða er til að klippa myndir og vinna að þeim, og þar að auki borðum og stólum, þar sem menn geta setið og spjallað saman eða lesið í kvik myndaritum. „Þetta hefur lengi verið mín tómstundaiðja", sagði Jón Axel, „og klúbbnum höfum við Skúli komiö upp til að aðrir geti tek- ið þátt 1 þessu áhugamáli okkar. Til þess að menn fái inntöku þurfa þeir ekkert að hafa nema áhugann. Hér fá þeir aðstöð- una.“ Skúli tekur undir þetta. Viö spyrjum, hvort ekki sé dýrt að setja upp heilt kvikmynda- ver. „Þetta kemur smám sám- an. Við leggjum núna fram þau tæki, sem okkur hefur tekizt að eignast, en ætlunin er, að klúbburinn eigi í framtíðinni sín tæki.“ Fyrirtækið heitir „Mjófilmu- klúbburinn Smári", og orðið mjó filma gefur til kynna, að félags menn fást einkum við að gera mynd á 8 mm filmu eða 8 mm Super. Báðir eru þeir Jön Axel og Skúli aö gera leiknar myndir. Þeir fá kunningjana til að leika og nota aðeins það sögusvið, sem engu þarf að kosta upp á. „Það eru fjölmargir", segja þeir, „sem eiga 8 mm kvik- myndatökuvélar, en fæstum dett ur í hug að dytfa eitthvað að myndum sínum og klippa þær — þessir menn fá ekki nema hálfa ánægju út úr kvikmynda gerðinni. Hér gerum viö hlut- ina á annan hátt.“ vv5bUI1Il vu kjxvuxi iiivuuai iiiui 11111a Skúli Árnason í kvikmyndasýningarklefanum, sem er búinn sýningarvél af fullkomnustu gerö. Jón Axel við klippiborðið að dytta að myndinni, sem hann er að gera. Sjálfur leikur hann a hlutverkið í henni, og til að falla betur inn í það hefur hann látið sér vaxa skegg. V / / i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.