Vísir - 03.10.1968, Side 1
NÝ GÖTUHEITI
í REYKJAVÍK
Þrjár nýjar EÖtur hafa fengið
nöfn í Revkiavfk. Eru það götur
við Sundahöfn og nefnast Sunda-
garðar, Vatnagarðar og Klettagarð-
ar. Sundagarðar er framhald Dal-
brautar norðan Kleppsvegar, Vatna-
garðar gata úr Sundagörðum, sam-
hliða Kleppsvegi og gata suöur úr
Vatnagörðum heitir Klettagarðar.
Voru þessi götuheiti samþykkt
á fundi bvggingamefndar Reykja-
víkur. Þar voru ennfremur lagðar
fram tillögur að nýjum götuheit-
um í Breiðholti III, þar sem vest-
ursvæðið héfur endinguna -berg,
noröursvæðið endinguna -hólar og
austursvæðið endinguna -kambur.
Skrifstofustjóri byggingarfulltrúa
tjáði blaðinu í morgun að rætt hafi
verið um það á fundinum að fram
an við endinguna -berg kæmu
mannanöfn t.d. Mánaberg, fugla-
heiti fyrir framan én<jinguna -hólar
t.d. Kriuhólar og sverðsheiti fyrir
framan endinguna -kambur t.d.
Sverðskambur.
3-400 Heirí á
fræðslustigi
í vetur er gert ráð fyrir að hátt við nokkrar unglingadeildir, þar
f 28 þúsund böm verði í bama- og sem áður voru einungis barnaskól-
unglingaskólum landsins i vetur. 1 ar. í A.-Evjafirði verður til dæmis
— Nemendafiöldinn á bama- , í vetur tekin upp full fræðslu-
fræðslustigi var í fyrra 27.475 og skylda, en þar var áður aöeins
er gert ráö fyrir að þeim fjölgi um
3—400 í vetur. — 1 vetur bætast
kennt til fullnaðarprófs.
Tilraun til þess að
ná Surprise út gerð
fljótlega
Enn vinnur tíu manna flokkur
undir stjóm þeirra Péturs Krist-
jónssonar og Bergs Lárussonar að
þvf að bjarga togaranum Surprise
af Landeyjasandi.
Vísaði á sprengi-
efnið, sem hann
ætlaði til ára-
mótanna
„Ég ætlaði að nota sprengi-
efnið um áramótin.“ Þannig var
sú skýrin, sem lögreglan fékk
hjá þjófnum, sem stal sprengi-
efninu og hvellettunum frá Hlað
bæ hf.
Sú skýring þykir ekki beinlin-
is trúleg, en þiófurinn hefur
haldið fast við hana við yfir
heyrslur. Lögreglan handtók
þjófinn á þriðjudag, reyndar
vegna rannsóknar á öðru máli,
en þá iátaði hann við yfirheyrs)
ur, að hafa brotizt inn í vinnu-
skúr Hlaðbæjar. Visaði hann lög
reglunni til, hvar hann hafði
fólgið hýfið fvrir utan bæ.
Var það allt fólgið á einum
stað og hafði ekkert skemmzt.
!0 kg. af snrenpiefni. 540 hvell
hettur, tvelr sprengihnallar og
leiðslur.
Vísir hafði samband við Pétur
Kristjónsson í gegnum talstöö í
morgun og sagði- hann að hann
byggist við að tilraun tll þess að
ná skipinu á flot yrði gerö fljótlega,
eða þegar veður og aðrar aðstæður
leyfðu.
Unnið hefur verið að því að
hrcinsa vélar skipsins, koma á
það taugum og rétta það. Undir-
búningur undir björgunina mun nú
langt kominn, en hins vegar er ekki
hægt að ákveöa það mikið fyrir-
fram, hvenær reynt verður að
draga skípiö út.
Svínakjöt ódýrara en
lambakjöt!
Svínakjötið er nú orðið ódýr-
ara en lambakjötið. Sem dæmi
um það, kostar svínakjöt f heil-
um og hálfum skrokkum 75 kr.
kílóið, en lambakjötlð 79,62 kr.
kflóið í heilum skrokkum. Stafar
þetta á offramleiöslu á svína-
kjöti. Fyrir hálfu öðru til tveim-
ur árum lækkaðl svínafóður
mjög meöal annars vegna hag-
stæðra innkaupa, að því er Vig-
fús Tómasson, sölustjóri hjá
Sláturfélagi Suöurlands hefur
tjáð blaðinu. Fóru menn þá að
rækta svín i stórum stil.
Óvíst er, hversu lengi svfna-
kjötið verður svo ódýrt. Innflutt
fóður hefur nú stórhækkað
vegna innflutningsgjaldsins.
Nýjar matsreglur um gæði kveða
á um skrokkþunga og fituþykkt.
Nú verða framleiðendur aö halda
niðri bæði þunga og þykktinni,
eigi þeir að fá gott verð fyrir
vöruna. Hinga til hefur islenzkt
svínakjöt verið talið of feitt.
Lögregluþjónninn liggur
þungt haldinn
Harður árekstur slökkviliðsb'ils,
sjúkrabils og lögreglubils
• Harður árekstur varð milli
lögreglubifreiðar og dælubíls
slökkviliðs og sjúkrabíls annars
vegar á gatnamótum Hofsvalla-
götu og Hringbrautar í gærdag.
Við áreksturinn kastaðist iög-
regluþjónn og fangi hans, sem set
ið höfðu aftur í lögreglubílnum, út
úr bifreiðinni og skullu þeir í göt-
una.
Mennirnir voru fluttir meðvitund
arlausir á slysavarstofuna, komu
þeir þar fljótlega aftpr til meðvit-
undar. Meiðsli fangans reyndust
vera minni háttar, en hins vegar
hafði lögregluþjónninn hlotið mik-
ið höfuðhögg. Erfiðara er fvrir
lækna að sjá fyrir afleiðingar slikra
meiðsla, fyrr en einhver tími hefur
liðið frá því slík slys verða. Var
lögregluþjónninn fremur þungt hald
inn I morgunn og með sótthita.
Bílarnir voru allir á leið vestur á
Seltjarnarnes vegna brunakalls.
Kom lögreglubíllinn suður Hofs-
vallagötu og rakst aftarlega á dælu
bílinn um leið og sá ók vestur yfir
gatnamótin. Hélt dælubíllinn áfram
ferð sinni á brunastað, en sjúkra-
bíllinn, sem hafði fylgt fast á eftir
honum, lenti á vinstri hlið lögreglu
bifreiðarinnar og varð sá árekstur
miklu harðari.
Grunaður
um
ávísanafals
Maður nokkur var handtekinn í
verzluninni að Laugavegi 105 f
gærdag, grunaður um að hafa falsað
tékka að upphæð 4000 kr. Við yfir-
heyrslur sagðist maðurinn hafa
fengið ávísunina hiá drukknum
manni á veitingasfað einum i borg-
Inni. Málið er * frekari rannsókn
KRISTJÁN VAR ENDURKJÖRINN
Þingi BSRB lauk kl. 4
Þingi BSRB lauk kl.
fjögur í nótt með stjórn-
arkjöri. Litlar öreyting-
ar urðu á stj^rninni.
Kristján Thorlacius var
endurkjörinn formaður
með 86 atkvæðum, en
nótt
Björgvin Guðmundsson
h’.aut 55 atkvæði.
Fyrir tveimur árum var Krist-
ián Thorlacius kiörinn með 81
'1*'-'' "-V on *• '^.pircn^r' tekk
41. Hefur bilið milli arm-
anna í BSRB minnkað nokkuð.
Að öðru levti hafði verið gert
samkomulae milli Framsóknar-
og Alþýðubandalag.' oianna ann-
ars vegar og Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokksmanna hins vegar.
Voru 5 kiörnir f stiórn frá hvor-
um. en stiórnina skipa ellefu
menn.
Þingið gerði vmsar álvktanir
um kiaramálin. Mælt var með
uppsögn samninaa og farið fram
á fullan samningsrétt. hað er
ver'-fallsrétt opinberra starfs-
manna c1-!nnlaesmálum var vís-
að til milliþinganefndar, en um
þau höfðu komið fram róttækar
tillögur.
t stjórn BSRB eru nú þessir:
Kristján Thorlacius, formaður
Sigfinnur Sieurðsson. 1. varafor-
maður Guðrún Blöndal. Ágúst
Geirsson. Einar Glafsson. Guð-
ión Baldvinsson, séra Bjarni
Jónsson, Guðlaugur Þórarins-
son. Kjartan Ólafsson og Valdi-
mar Ólafsson.