Vísir - 03.10.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 03.10.1968, Blaðsíða 7
7 . ESmmtudagHr 3. október 1568. *gun- útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd Götubardagar í Mexíkóborg 9 Mexikó-borg logaöi í óeirð- um í gærkvöldi. Stúdentar voru á ferli, kveiktu í húsum og vörp nön grjóti að Iögreglunni. Óeirö- irnar brntust út eftir að her- menn höfðu skotið á mann- fjöfda, sem safnazt hafði saman tíl fundar á torgi einu í norður- hteta borgarinnar. • Opinberar heimildir hafa skýrt frá því, að minnsta kosti einn maður hafi fallið, þegar hermenn með byssustingi á byssum sínum ásamt skriðdrek- um og þyrilvængjum gerðu á- rás á hina 15.000 þátttakendur í mótmælafundinum. • Margir særðust eða slösuð- ust á einn eða annan hátt í ó- eirðunum, þegar hermenn og leyniskyttur skintust á skotum. Meðal hinna særðu er Jose Hernandez Toledo, hershöfðing- inn yfir hinum 1300 hermönn- um, sem lögðu undir sig há- skólasvæöið ekki alis fyrir löngu. Verður hershöfðingi varafor- setaefni Wallace? % Bandaríska útvarps- stöðin Columbia hefur til- kynnt, að George Wallace frambjóðandi til forseta- kjörs hafi nú loksins valið sér varaforsetaefni. Út- varpsstöðin segir, að fyrir valinu hafi orðið 62 ára gamall hershöfðingi, Lem- ay að nafni. • Lemay var iierráðsforingi í flughernum 1961—65. Hann er sagð ur vera yfirlýstur stuðningsmaður þess, að haldið verði áfram stöð- ugum loftárásum á Norður-Víet- nam, og sömuleiðis er hann ein- lægur fylgismaður beitingar kjarn- orkuvopna. 9 Ekki hafa ennþá borizt fréttir af því, hvort þetta hefur verið staö fest af viðkomandi aðilum, en fram til þessa hafa veriö ýmsar flugu- SexhurafæSing / Bretlandi □ Brezk kona, sem í tíu ár hefur langað til að geta eign azt bam, hefur alið sexbura. Sexburarnir, fjðrar stúlkur og tveir drengir, voru allir á Iífi, er þeir fæddust, en stúlkan, sem fæddist síðust, dó klukkustundu seinna. Móðirin, frú Sheila Ann Thorns, gekk undir hormóna- lækningar í tvö ár, þegar hún hafði leitað læknis, vegna þess, að hún gat ekki eignazt barn. Sexburamir, sem vega frá 0,91 kg til 1,36 kg, fæddust tveimur mánuðum fyrir tímann og voru tekn ir með keisaraskurði. Sjálf fæðing- in stóð aðeins í þrjár mínútur. Fæðingarlæknirinn Margaret Shotton var yfirlæknir sérfræðing- anna, sem aðstoðuðu við fæðinguna, og hún sagði, að of snemmt væri enn að segja fyrir um, hvort nokk- urt þeirra fimm barna, sem enn eru á lífi, mundi komast á legg. I fyrsta lagi eftir hálfan mánuð getum við eitthvað um það sagt, sagði hún. í ágúst var tekið eftir því, að frú Shotton mundi að líkindum ala fimm eða sex börn, og þess vegna var fæöingin vandlega undirhúin og sérfræðingar fengnir til aðstoð- ar. Við fæöinguna var einnig dr. Art- hur Crook, einn helzti sérfræðing- ur Breta í hormónalækningum. Sexburafæðing er að sjálfsögðu afar sjaldgæft fyrirbæri, og talið er að líkur á slíkri fæðingu séu einn á móti þremur milljörðum, en á síö- ustu tímum hafa hormónalækning- ar þó heldur aukið líkurnar. fréttir á kreiki um hugsanleg vara- forsetaefni Wallace. Síðast barst út sú frétt, að kvikmyndaleikarinn frægi John Wayne mundi verða fyr- ir valinu, en hann hefur hershöfð- ingjatign í varaliði bandaríska hers- ins. Sá orðrómur var þó borinn harðlega til baka, og skýrt frá því, að Jolin Wayne væri ákafur stuðn- ingsmaður Nixons. Blaðamenn hraktir frá Tékkóslóvakíu Nokkrum erlendum blaðamönnum í Prag hef- ur verið neitað um land- vistarleyfi. Þetta er al- mennt túlkað sem bein að- gerð gegn fréttamönnum vestrænna landa í Tékkó- slóvakíu. Einn fréttamaður hefur þegar yfir gefið landið, og aðrir hafa á prjón- unum ráöagerðir um aö fara að dæmi hans. Brezkur biaðamaður, sem dvalizt hefur í Tékkóslóvakíu og skrifað um atburðina þar frá fyrstu dögum innrásarinnar, kveðst hafa fengið það svar, er hann fór fram á að fá dvalarleyfi sitt fram- lengt, aö hann yrði að fá meðmæla- bréf frá tékkneska utanríkisráðu- neytinu. Þessar takmarkanir virðast að- eins eiga við um fréttamenn frá að- ildarríkjum Atlantshafsbandalags- ins. Upp á síökastið hafa ýmsir aðilar í Tékkóslóvakíu látiö í ljósi óánægju yfir greinum, sem birzt hafa í vest rænum blöðum. Þetta hlýtur að stafa af auknu eftirliti Sovétmanna, því að frá innrásinni til þessa hafa fiestir erlendir fréttamenn getað skrifað alveg eftir eigin höfði. Fundur með Rusk og Grómíkó í stöðvum S.Þ. • Bandaríski utanrikisráðherrann, Dean Rusk, og hinn sovézki starfs bróöir hans, Andrej Grómíkó, hitt- ust til viðræðna í stöðvum sovézku sendinefndarinnar í byggingu Sam einuðu þjóðanna. • Samtal þeirra stóð yfir í um það bil eina klukkustund, og fjall- aði, að því sagt er, aðallega um á- standið í löndunum fyrir botni Mið jaröarhafs, Þetta er fyrsti fundur- inn með svo háttsettum mönnum frá stórveldunum, síöan innrásin var gerð í Tékkóslóvakíu fyrir sex vikum síðan. • Þessi fundur er talinn gefa til kynna, að áhugi sé ríkjandi hjá báðum aöií’um í þá átt, að komizt veröi hjá fullum vinslitum, þrátt fyrir innrásina í Tékkóslóvakíu. Nixon segir banda- ríska flotann úreifan Richard Nixon, forsetaefni repúblikana, segir Bandaríkin dragast aftur úr í siglingum.. 9 í ræðu hefur Nixon for- setaframbjóðandi repúblikana í Bandaríkjunum borið fram ásakanir gegn Johnson for- seta og Stjórn hans fyrir að hafa vanrækt verzlunarflota landsins og þannig lagt grundvöllinn að því, að árið 1970 verði Sovétríkin mesta siglingaþjóð heims. Þetta kom fram í ræðu, sem Nixon hélt í Norfolk, en þar er helzta flotahöfnin á norður- strönd Bandaríkjanna. e Nixon benti á, að fiskveiði- floti Sovétríkjanna er þegar sá stærsti í heimi, og Rússar hafa nú tekið forustuna á sviði haf- rannsókna. Hann sagði ennfrem- ur, að yrði hann kjörinn forseti mundi hann sjá til þess, að Bandaríkjamenn næðu aftur for- ustu á þessum sviðum. 9 Það er vitaö mál, að banda- ríski verzlunarflotinn hefur nú um iengri tíma átt í erfiðleik- um, og hefur að miklu leyti ver- ið háður ríkisaðstoö í einni eða annarri mynd. 1938 BERKLA VARNADAGURINN 30 VINNINGAR S.Í.B.S. 30 ÁRA Berklavarnadagurinn er á sunnudaginn. 30 glæsilegir vinningar í merkjahappdrættinu. Blað og merki dagsins seld um land allt. 30 VINNINGM 20 Blaupunkt ferðaútvarpstæki 10 Blaupunkt sjónvarpstæki

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.