Vísir - 03.10.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 03.10.1968, Blaðsíða 5
V f’S I R . Finuntudagur 3. október 1968. Fjármál heimila og þjóð- félagsfræði fvær skemmtilegar nýjurtgar i Náms- flokkum Reykjavikur i vetur N* fara Námsflokkar Reykja- ■wfcir að hefja starfsemi sioa og er ástæða til J>ess að benda konum á ýmis efni, sem þar verða á kennsluskrá — sum í fyrsta sinn. Félagsfræði er eitt þessara efna og fjármál heimila annað. Auk þess verður haldið áfram með flokkinn foreldra- fræðsla, sem varð mjög vinsæll í fyrra. Þær konur, sem hafa áhuga á að fræðast, komast út fyrir veggi heimilisins og ræða ýmis hugðar efni eða skapa sér ný, hafa góða aðstöðu til þess f námsflokkun- um. Kennsla er skipulögð á þann veg að hún fer fram á kvöldin, sem er til hagræðis fyr- ir þá, sem bundnir eru viö vinnu eða heimilisstörf, að degi til. Kennslustundirnar eru einu sinni til tvisvar í viku. Til þess að gera nemandanum auðveld- ara fyrir eru tveir kennslutfm- ar oft hafðir saman á kvöldi og t.d. leikhúskynning og kynning á íslenzkum bókmenntum eru hafðar sama kvöld, ef einhverjir eru svo áhugasamir um listir, að þeir vilji láta innrita sig i báð- ar greinamar. Þetta fyrirkomu- lag sparar sporin og tímann, sem fer f það að komast á kennslustað. Þaö mælir einnig með námsflokkunum að kenn- arar í erlendum tungumálum eru yfirleitt af viðkomandi þjóðernum og kennslan fer fram á málinu sjálfu sér- ■staklega fyrir þá, sem lengra eru komnir. Kennslan er einnig lff ræn eins og í leikhúskynning- unni, félagsfræðinni og f flokkn- um um fjármál heimila, þar sem umræður fara fram og spurningar og svör milli kennara og nemenda. Ekki sízt mælir það með námsflokkunum, að þeir eru ódýr tómstundaiðja þar sem innritunin í hvem flokk fyrir sig kostar ekki nema 250 kr. fyr- ir allan veturinn. Enginn er of gamall né ungur til að leita fræðslu og í náms- flokkunum blandast hinir ólík- ustu aldursflokkar saman báðum að gagni. Þá er að ræða nánari tilhög- un hinna ýmsu greina. Kennari flokksins, Fjármál heimila, er Eiríka Friðriksdóttir, hagfræðing ur og kennsla í þessum flokki fer fram á miðvikudagskvöldum. Fyrir áramót verður hagnýt heimilishagfræði kennd, hvem- ig eigi að verja peningunum til heimilishaldsins sem bezt. Eftir áramót er hins vegar hugsað að láta umræður fara fram. Efni það sem verður til umræöu og kennt í flokkunum er annars þetta: Ráðstöfun þjóðartekna og heimilin, hlutfallsleg skipting neyzlu, fjárhagsáætlun heimil- anna, einfalt heimilisbókhald, í- búðarkaup, lestur hústeikninga og samningsgerð, innréttingar, kaup varanlegra húsmuna, athug un verðs, gæöa og magns. Loka- atriði — athugun athugasemda nemenda og umræður. Ýmislegt annað verður einnig tekið til um ræðu í þessum skemmtilega og nýstárlega flokki. Fóstrur annast foreldrafræðsl- una að einhverju leyti fram að jólum. Meðal þess, sem veröur kennt og fjallað um eru Ieik- föng bama, föndur og söngleikir, sem má koma upp t.d. i barna- boðum öllum til ánægju. Eftir jólin kennir Margrét Margeirs- dóttir fræðilegt efni um upp- eldismál og þá fara fram um- ræður og spurningum svaraö. Einnig verður eitthvað rætt um barnasálfræði. Þjóðfélagsfræðina kennir Björn Stefánsson, sem er nýkom inn frá námi í Svfþjóð. Ungt fólk hefur sýnt þessum málum mik- inn áhuga að undanfömu, en ekki veitir þeim eldri af að fylgj ast meö þeim ekki sízt til þess að verða ekki algjörlega utan- gátta þegar þessi áhugamál ung- dómsins ber á góma. Leikhúskynninguna, sem ver- ið hefur vinsæl undanfarin ár annast Vigdís Finnbogadóttir kennari að þessu sinni og er hún á mánudögum. Þá verður enn einu sinni tekin upp kennsla í sænsku og hinir málaflokkarn- ir halda áfram. Til gamans má geta þess að í spænsku eru nem endur komnir á fimmta ár og ættu nú að vera tunguliprir á þetta suðræna mál. Einnig eru framhaldsnemendur f þýzku, sem ræða þýzkar bókmenntir fullum fetum. Of langt yrði að rekja öll námsefni námsflokkana en um 1 hjá skólastjóranum Ágústi Sig- l / urðssyni. Kennslan fer fram í ] Mliðbæjarskólanum. ' Meira en fjórði Ifí hyer miði vinnurHi i Dregið 5. október Dragið ekki oð endurnýja Vöruhappdrætti SÍBS HannyrBanámskeici er haldið á vegum Hannyrðabúðarinnar á Lauga- vegi 63. hófst 1. október. Myndflos, glitsaumsteppí, svo sem „Sofðu rótt“ „Vetrarfer<*“, landslagsmyndir, Krýningin o.m.fl. Ryateppi, smymateppi ásamt fleiri handavinnu, sem fæst í búðinni. Innritun í verzluninni daglega. SÓLBRÁ Laugavegi 83. Kuldaúlpur á skólabörn. — Unglingafatnaður — Leik- föng í úrvali. Aðvörun til húseigenda Vegna síendurtekinna kvartana viljum við hér með ítreka aðvörun okkar til húseigenda við auglýsingum ýmissa réttindalausra aðila um húsaviðgerðir, og benda húsbyggjendum á að leita upplýsinga hjá samtökum byggingar- iðnaðarmanna. Meistarafélag húsasmiða, Trésmiðafélag Reykjavíkur. FRAMLEIÐENDUR: TIELSA, VESTUR-ÞÝZK GÆÐAVARA OG JÓN PÉTURSSON HÚSGAGNA' FRAMLEIÐANDI [□lalglálalslalálÉilEÍIalaEIsÍEÍIalálliIálála ál ál m E1 ei B1 B1 B1 BLDHUS- Bllálálálálálálálálálálálálálá % KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI % STAÐLAÐAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI OG ÖLL TÆKI FYLGJA % HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR ODDUR HF UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN KIRKJUHVOLI SÍMI 21718 og 42137 FULLKOM1Ð SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNlNGAR FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA ÚRVAL AF ÁKLÆBUM LAUGAVEO 62 - SlM110625 HEIMASlMI 63634 BÖLSTRUIM Svefnbekkir í úrvali á verkstæðisverði TÆKIFÆRISKAUP Höfum nýtengið ROTHO hjólbörur, kr 1185—1929, v-þýzk úrvalsvara, eirmig úr- val af CAR-FA toppgrindum, þ. á m. tvö földu burðarbogana vinsælu á alla bíla Mikið úrvai nýkomiö af HEYCO og DURO bíla- og vélaverkfærum, stökum og I sett um, einriig ódýr blöndunarfæki, botnventlar og vatnslásar. Strokjárn kr 405. — Málningarvörur. — Allar vörur á gamla veröinu. — Póstsendum INGÞÓR HARALDSSON H/F, Grensásvegi 5, simi 84845. -.Í3B • .F-Mar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.