Vísir - 03.10.1968, Side 2
UB£S■Iti.xlU,:f'ÁV«.
V1SIR . Fimmtudagur 3. október 1968.
Islenzkir Ólympiufarar — Óskar Sigurpálsson:
ANNAÐ STÓRMÓTIÐ Á ÆViNNI
44
//
• Árangur Óskars Sigur-
pálssonar lyftingamanns hef-
ur ekki vakið svo litla athygli
íþróttaunnenda undanfarna
mánuði. Óskar hefur ásamt
félögum sínum rutt braut
nýrri iþróttagrein þrátt fyrir
erfiðleika og dómaraleysi.
Auk þess hefur Óskar náð
ágætum árangri og hefur sí-
felit verið að bæta hann. Ósk-
ar var valinn til að fara utan
með OL-landsliðinu eins og
kunnugt er og undirbýr sig
nú fyrir keppnina þar.
„Þetta veröur eiginlega ann-
að virkilega stóra mótið mitt“,
sagði Óskar við brottförina,
„Balticamótið, sem ég tók þátt
I um daginn var þaö fyrsta. Ég:
var þar óheppinn og- meiddist,
og vonandi kemur ekki til slíks'
í Mexíkó“.
Óskar kvað það hafa verið
sérlega lærdómsríkt aö fylgjast
með öllum beztu köppunum í
Baltica-keppninni. og eins hefði
hann sjálfur lært mikið um þaö
hvemig beri að haga sér í
keppni sem þessari.
„Það er undir mörgu komið
með árangurinn í Mexíkó“,
sagöi Óskar, „loftslagið þar er
öðru vísi en menn eiga almennt
að venjast svo að eitthvað sé
nefnt. Það er ekki gott að lofa
neinu um bættan árangur, en
vitskuld reynir maður sitt bezta
til að gera vel“.
Óskar er aðeins 23 ára og er
lögregluþjónn að atvinnu. Hann.
byrjaði að lyfta 16 ára gamall
og er félagi í Ármanni.
Bændaglíma
golfnranna
Golfmenn hafa árlega mót, sem
þeir nefna Bændaglímu. Mót þetta
fer fram um næstu helgi og hefst kl.
13.30 f Grafarholti á 12 teigum
samtfmis. Er búizt við mikilli þátt-
töku.
Strax að lokinnl keppni eða um
19.30 verður hóf í golfskálanum
fyrir kylfinga og konur þeirra.
Þátttaka tilkynnist „bændunum“,
þeim Kristni Hallssyni, sími 32444
og Lárusi Amórssyni, sími 13678,
fyrir föstudagskvöld.
Hjarðvík Suður-
nesjameistari
Njarðvíkingar urðu hlutskarpast-
ir á Suöurnesjamótinu í knatt-
spyrnu, þ.e. í elzta aldursflokknum,
.1. flokki, unnu þeir Víði frá Garði
;í úrslitum með 2:1, skomöu sigur-
markið á síðustu mínútu leiksins.
í 3. flokki uröu Reynismenn frá
Sandgerði sigurvegarar, unnu
Njarðvík með 3:1 í úrslitunum og í
4. flokki unnu Víðismenn Njarðvík
1:0.
Ekki var keppt í 2. fiokki eins og
fram hefur komið í fréttum, en í
,5. flokki haföi Reynir sigrað.
Dóttirin Helga Björk, 3 ára, meö foreldrum sínum, Óskari og Sonju Maríu Carlsen.
miiiiiinmiiiii
BÍLAR
Mikið úrval af notuðum
bílum í öllum verð-
flokkum.
•
Lítið inn í sýningarsali
okkar, Hringbraut 121.
Alltaf eitthvað nýtt.
•
Enn þá getum við selt
nokkra Rambler Ame-
rican ‘68 á gamla verð-
inu — EF SAMIÐ ER
STRAX.
•
Nú fer að verða lítið eft-
ir af Rambler Classic
bílunum notuðu, sem
við seljum án útborg-
unar — gegn skulda-
bréfum.
•
Verzlið þar sem úrvalið
er mest og kjörin bezt.
Rambler-
umboðið
JQN
LQFTSSON HF.
Hringbraut 121 — 10600
Höfum viS sigrazt á minmmáttar-
kemuHnni gegn Dönum i
Leikir HG, sterkasta handknattleiksliðs Dana eru prófsteinn á jbað
Þeð hefur löngum verið draum-
ur íslenzkra handknattleiksunn-
enda að fá að sjá hér leika hið
margumtalaða og þekkta danska
meistaralið H.G. frá Kaupmanna
höfn.
Handknattleiksdeild KR sem á
haustheimsóknina að þessu sinni,
hefur nú tekizt aö fá hingað til
lands þetta lið og kemur það með
alla sína sterkustu menn (og von-
andi veitir ekki af) H. G. hefur
margoft verið boöið að koma tii
íslands en aldrei getað þegið boð
fyrr en nú.
Óþarfi ætti að vera að kynna
þetta fræga liö fyrir íslenzku
handknattleiksfólki og unnendum
íþrótta yfirleitt, svo mikið hefur
verið rætt og ritað um það. Þó er
vert aö geta þess að með liðinu
leika fjórir liðsmenn úr hinu fræga
silfurliði Dana frá síðustu HM-
keppni i Sviþjóð, og þrír af þeim
sem leika með HjG. hér, voru með
danska iandsliöinu sem tapaði fyrir
því íslenzka 10—15 síöastliöið
haust en það var raunár einmeftir-
minnilegasti landsleikur fslendinga
í handknattleik.
Meö H.G. leika t.d. Bent Mor-
tensen, markvörðurinn heimsfrægi,
Vemer Gaard, Gert Andersen,
Gunnar Jiirgens og Carsten Lund,
en hann var í sumar eini Norður-
landabúinn sem valinn var til að
ieika i heimsliðinu á móti heims-
meisturunum, Tékkóslóvakíu. Sam-
anlagður landsleikiafjöldi þessara
manna er 200 leikir.
Meö H.G. eru einnig nokkrir ung
ir og upprennandi handknattleiks-
menn sem leikið hafa fjölda ungl-
ingalandsliðsleikj a.
H.G. hefur 11 sinnum orðið Dan-
merkurmeistari í handknattleik
karla innanhúss, þar af nú þrjú
ár. í röð 1966, 1967 og 1968 og er
liðið talið í algjörum sérflokki i
heim„Iandi sínu og er þó úr mörgu
góðu að velja.
Flest ef ekki öll dönsk 1. deildar-
liðin hafa i ;ikið hér svo og nokkur
2. deildar liðin en þetta sterka lið
hefur aldrei komið hingað fyrr.
Mikið er í húfi fyrir íslenzkan
handknattleik og vonandi tekst
okkar snjöllu handknattleiksmönn-
um að sanna í eitt skipti fyrir öli að
við erum jafn góðir og Danir (ef
ekki betri) í handknattleik og AÐ
VIÐ HÖFUr.I SIGRAZT Á DANA-
MINNIMÁTTARKENNDINNI í eitt
skipti fyrir öll. Þetta lið er tví-
mælalaust það bezta sem Danir
eiga og um leiö STOLT DANSKÁ
HANDKNATTLEIKSINS.
Matreiðslukona
óskast. Þarf að vera vön að smyrja brauð.
Uppl. um aldur og fyrri stcrf sendist augld.
Vísis merkt „Ráðskona 2007“.
Afgreiðslumaður óskasi
Karlmaður vanur kjötafgreiðslu óskast strax.
Sími 52212 og 21093 (eftir kl. 8.30).
Þetta er HG-liðið, sem hingað kemur.