Vísir - 03.10.1968, Qupperneq 3
4vv V}
Síldartunnurnar liggja undir skemmdum í næturfrostunum og á mánudag var fallinn hné'
Ú'-Ziá
■
Bílar á kafi í snjó framan við lögreglustöðina. Yzt til vinstri
sér á nefið á „Svörtu Maríu“ þeirra Siglfirðinga, en hún fer
ekki langt í þessu.
llia^Síf ......
Gaman, gaman, segja krakkarnir og ösla snjó og hlæja, en uppi við húsvegg hfma kindur í
kró, nýkomnar af grasgrænum afréttum.
Septemberblíðan varð helzti
endaslepp. Fannfergiö lagðist
yfir iðjagræn tún og engi. —
Afrétturinn, sem gangnamenn
smöluðu í sumarblíðu og steikj
andi hita fyrir fáum dögum er
nú þakinn djúpum snjó og níst-
andi hríðin skekur líf úr hverju
strái.
Bændum þótti góður sumar-
aukinn, þessir sólskinsdagar f
september. Þeir fengu þurrk á
hrakiö heyið. Kartöflumar tóku
aftur við sér í görðunum, eftir
kalt sumar. — Samt varð vetrar
forðanum naumast komið f hús
fyrír þetta snemmbæra haust-
hret.
Norður á Siglufirði liggja
síldartunnur í löngum röðum
undir skemmdum. Saltendur
eiga í erfiðleikum meö aö verja
þær frostinu. Og á mánudag
máttu þeir moka hnédjúpum
snjó af bryggjum sínum.
Vegferð var ströng um göt-
urnar á Siglufiröi. Bílar sátu
fastir í sköflum. Hríöin gægðist
á glugga og hlóð upp hrönnum
fyrir dyrin. — Varla sér á dökk-
an díl í fjöllum og er æöi kulda-
legt um aö litast þar nyröra. —1
Uppi á heiðum áttu margir í
erfiðleikum meö farartæki sín,
enda höfðu fáir búizt til vetrar-
ferða, þar sem lagt var af staö
í sumarblíðu. Menn muna varla
slíkt fannfergi í byrjun október
og vona aö veturinn verði ekki
allur eftir þessu.
V f S TR . Fimmtudagur 3. október 1968.
VETUR HEILSAR
Trén sveigja sumargrænar greinar sínar undan snjónum og
laufin fölna á einni nóttu.