Vísir - 23.10.1968, Blaðsíða 4
Á f ' í ||c'
f S ið ci n j
1
Peter SeBlers og
Ringó Starr sem
faðir og sonur
Trommuleikari bítlanna byrjar
eftir áramótin að æfa hlutverk
sitt í nýrri kvikmynd, sem er ann-
að hlutverk- hans f mynd, þar
sem bítlamir eru ekki allir með.
Kvikmyndin nefnist „The Magic
Christian", eða „Kristni töfra-
maðurinn." Ringo fer með hlut-
verk sonar ríks og valdamikils
manns, sem Peter Sellers leikur.
Bítijlinn mun veria átta vikum
í æfingnr og upptöku.
Kvikmyndahandritið gerði
Terry nokkur Southem, sem einn-
ig geröi kvikmyndina „Candv“
eftir frægri klámsögu. Ringo Starr
fór líka meö hlutverk í þeirri
mynd, og kom þá fyrst fram sem
sjálfstæður leikari.
Bítlamir eru nú í leyfi. Paul
er í Englandi, Ringo f Suður-
Evrópu og George dvelst í Los
Angeles með Jackie Lomax.
JACKIE á að fá
180 herbergi!
Það er mikill munur á því að
vera raunveruleg drottning og að
vera drottning í heimi milljóna-
mæringanna. Þannig hefur Ingrid
Danadrottning aðeins um tuttugu
þjóna. Jacqueline, fyrrum Kenne-
dy, á að hafa 200 þjóna til að
stjana í kringum sig.
Fyrir sex árum keypti Onassis
hina aflöngu ey í Jónahafi úti
fyrir vesturströnd Grikklands.
Fimm undanfarin ár hefur hann
fremst kosið að búa í rauðleitri
höll sinni, sem hann lét reisa þar
mill iskuggasælla pálma- og ólífu-
lunda.
Allur fjöldinn af þjónustulið-
inu býr í lágreistum húskofum
i hæfilegri fjarlægð frá ævintýra-
höll Onassis. í höllinni eru þó að-
eins tuttugu herbergi. Þetta hefur
verið honum þvrnir í auga. Nú
nýverið hefur hann látið skera
tindinn af litlu fjalli í miðbiki
eyjarinnar. Þar hyggst hann reisa
höll, sem hæfir betur manni af
hans tagi. Þar eiga að vera 180
herbergi, með skrúðgörðum, tenn-
isvöllum og sundlaugum, og svo
golfvöllur fyrir utan.
V
Onassis hefur aldrei verið mikið
um einveruna gefið. Hann heldur
stöðugt veizlur og hefur fjölda
gesta. Hann á mikinn fjölda
„strandbifreiða'* með seglþökum.
í þeim aka gestimir um eyjuna
og dást að þessari paradís og
hvíta sandinum, sem fluttur var
með skipum til eyjarinnar, þvi að
upprunalegi sandurinn meiddi On-
assis á tánum.
Milljönamæringar eiga annríkt.
Onassis gcngur þess ekki dulinn.
Megi menn ekki vera að þvi að
sigla út til eyjarinnar, em þeir
fluttir í þyrlum. Hann hefur látið
gera mjög merkilegan flugvöll
með biðskýlum, eins og gerist á
raunverulegum stórflugvöllum.
Þarna eru.einnig vegir, sem gefa
því bezta sem gerist, ekki eftir.
Hin mjög umrædda eyja On-
assis nefnist Scorpious, sem er
eitrað dýr. Onassis hefur ekki
geöjazt alls kostar að því nafni.
Hann hefur látið skíra konungs-
ríki sitt íþöku, eftir hinum fræga
bústað Odyseifs.
Jackie og skipakóngurinn um borð í snekkj-
unni Christina.
122 þingmenn fjarverandi um
ræðu um „hóphjónabönd44 í
danska þinginu
■— konurnar bönnuðu þeim ab maeta!
Poul Dam, þingmaður vinstri-
sósíalista, sem vill breyta hjúskap
arlöggjöfinni og gera hana „frjáls
ari.“
Það hefur vakið nokkra athygli,
að þingmaðurinn Poul Dam hefur
á danska þinginu borið fram frum
varp, sem gerir ráð fyrir gjör-
breytingu á hjúskaparlöggjöf
Dana. Hin nýja löggjöf mundi
opna leiðina fyrir kynvillinga-
hjónabönd og hóphjónabönd,
þannig að hópur karla og kvenna
búi saman og skipti um maka, eft-
ir þvi sem hugurinn girnist. Einn-
ig er gert ráð fyrir giftingu syst-
kina og föður og dóttur o.fl. o.fl.
Er málið kom til umræðu 1 ,þing-
inu, sátu 122 þingmenn heima og
munu eiginkonur þeirra hafa bann
að þeim að láta sjá sig á þingi
við slikar umræður, og jafnvel tal
ið þá mundu spillast af deilum
um þetta mál.
Umræðurnar voru forvitnilegar.
Fulltrúi jafnaðarmanna, Kjeld 01-
sen, ræddi um, að kynvillingar
yrðu að eiga kost á aðgangi að
fbúðum og herbergjum, eins og i
þeir þyrftu. Þingmaður íhalds-
manna, frú Hanna Budtz, spjall-
aði nokkra stund um mormóna
og múhameðstrúarmenn. Önnur
frú, Merete Björn Hanssen, taldi
áhuga fólks á giftingum hafa vax
ið í seinni tíð og vitnaði til talna
í því efni.
Þá kom Kai Moltke, sem dott-
ið hefur út úr ýmsum flokkum.
Hann minnti á kynvillu á bökk-
um Dónár fyrir allmörgum öld-
um. Svo fór þar að fólki fækk-
aði, svo að við landauðn lá. Aðrir
ræðumenn vitnuðu í Grundtvig og
fleiri fræga menn. Flestir töldu
frumvarpið, sem til umræðu var,
algerlega óframkvæmanlegt og
siðferðislega eyðileggjandi fyrir
hina dönsku þjóð. Þeir, sem ekki
fundu því allt til foráttu, fluttu
þokukenndar ræður, sem lítt'
skildust.
Pannig blæs ekki byrlega fyrir
hinn djarfa Poul Dam, enda hef-
ur hann naumast vænt þess.
Sjónvarpið dauft
Nu hafa sjónvarpsáhorfendur
fengið smjörþefinn af vetrardag-
skránnl, og eru skoðanimar
mjög skiptar og fólk misjafn-
lega ánægt. Margir em mjög
óánægðir yfir að hafa misst af
Dýrlingnum og Harðjaxiinum,
og telja þeir að þessa þætti
hefði mátt sýna, þegar börn
væru farin að sofa, svo að þaö
sjónarmiö, að þessir þættir
heföu slæm áhrif á börn, ætti
ekki við rök að styröjast.
Hins vegar hafa ýmsir þættir
verið teknir upp í vetrardag-
skrá sem lofa góðu. Ti! dæmis
lofar Saga Forsyte-ættarinnar
góðu og einnig framhaldsmynd
in Melissa.
Hið eina af innlendu efni sem
ánægju hefur vakið til viðbótar
því sem fyrir var, er þáttur
Jóns Múia. Efni af léttara tag-
inu sem þessi þáttur, ætti aö
geta fest rætur ef alúð verður
í lögð. Byrjunin lofar góðu.
í heild er dagskráin heldur
dauf, og finnst manni að meöan
sjónvarpsdagskráin er ekki
lengri en hún er, sem kannski
er nógu langt, þá eigi þættir eins
og um Michelangelo lítið erindi
nn i miðia kvölddagskrána.
Slíkur báttur getur vart átt er-
indi til fjöldans, þó slíkt efni
fylli ailar kröfur um menningar-
iegt sjónvarpsefni. Menningin
verður bara að vera þannig úrí
garði gerö, að fók nenni að
njóta hennar.
Almennt virðist skoðunin vera
að meira innlcnt efni vanti. Það
vantar meira af íslenzkum þátt-
um í ýmsum dúr. Sem dæmi
má nefna þáttinn um erlend
málefni sem oft er mjög fróð-
legur og kryfur ýmis mál líð-
andi stundar til mergjar. Væri i
ekki hægt aö kryfja til mergjar í
á hliðstæðan hátt ýrnis innlend J
málefni. Ef vel væri á haldið \
myndi slikt vafalaust verða vin- í
sælt. t
íþróttafréttir hafa verið mikl- '
ar og góðar að undanförnu, sem J
á að nokkru leyti rætur að rekja i
til Ólympíuleikanna. Sjálfsagt i
er að leegja áherzlu á þetta efni
enda á það marga aðdáendur. ^
Aimennt má um sjónvarpið \
segja, að of lítið varð um jákvæð t
ar breytingar við tilkomu vetrar- /
dagskrár, og er hin vinsæla uppi 1
staða dagskrárinnar einungis I
vegna þeirra þátta, sem voru t
búnir aö hasla sér völl. /
Þrándur í Götu.