Vísir - 23.10.1968, Blaðsíða 9

Vísir - 23.10.1968, Blaðsíða 9
V í SIR . Miðvikudagur 23. október 1968. HVERGI FINNST GRIÐASTAÐUR Veröldin er klofin vegna baráttu tveggja stjórnmálakerfa, og enginn skyldi halda, að hann geti verið yfir jbó baráttu hafinn Það eitt er víst í þess- arí sundurklofnu veröld, að útilokað er að ætla sér að leiða allt hjá sér, hvað annað sem svo' má til bragðs taka. Eftir tuttugu ára kalt stríð ætti ekki að vera þörf á að taka það fram, að mikilvægasta málið á síðari hluta tuttugustu aldar er skipting heims- ins milli kommúnista og and-kommúnista, og að afleiðingar þessarar skiptingar snerta okkur öll. Eigi að síður er nauð synlegt að taka þetta fram, því að þeir sem vilja yfirgefa skipið hafa aftur látið til skarar skríða. Vegna þess að bæði Banda- ríkjamenn og Rússar hafa bak- að sér óvinsældir vegna Víet- nam og Tékkóslóvakíu, hefur talsveröur fjöldi fólks ákveðið aö segja enga afstööu taka til hins mikla áreksturs stjórnmála- kerfanna, sem olli vandræða- ástandinu í Víetnam og Tékkó- slóvakíu. Sams konar hlutur geröist á sjötta tugi þessarar aldar, þeg- ar hópur stjórnmálamanna frá Asíú og Afríku reyndi að halda því til streitu, að til væri nokk- uð, sem kalla mætti ..þriðja heimsveldið“ sem mundi halda sig utan við hinar miklu deil- ur milli austurs og vesturs. — Þetta var ekki til, og mögu- leikinn þess vegna ekki fyrir hendi. Svipað geröist aftur um 1965, þegar Charles de Gaulle varð næstur til að leita að griða staðnum, sem hvergi finnst. Nú er þetta að gerast í þriöja sinn. Það er ungt fólk úr vinstra armi stjórnmálanna, sem leitar að þeim pólitíska griðastaö. sem þeim Nehru og de Gaulle tókst ekkj að finna. Það var útilokað þá, og það er útilokað nú. því að engin þriðja valdamiðjan er til, sem haldið gæti uppi leitinni að út- gönguleið milli kommúnism- ans og vestrænna stefna. Auð- vitað er það mögulegt fyrir ein stök ríki að vera hernaðarlega hlutlaus. Það er mögulegt fyrir þau að eiga viðskipti við báða aðila. Og jafnvel er það mögu- legt — þótt það verði sífellt erfiðara — að þiggja peninga matvæli og stálver af báðum að- ilum. Jgn það er útilokað að vera hlutlaus stjórnmálalega. Þegar öllu er á botninn hvolft, eru tvær leiðir, og aðeins tvær sem nútímaríki geta skipulagt stjórnmála- og efnahagslíf sitt eftir. Önnur þessara er leið Leníns, eins og hún hefur verið tekin upp af hinum 14 kommúnista- stjórnum í heiminum. Sam- kvæmt henni eru allar meirihátt ar ákvarðanir á öllum sviðum fólgnar í hendur öguðum komm únistaflokki, sem lýtur miö- stjórn sinni. Hin leiðin felst i valddreifingarkerfi Vestur- landa, sem byggist á samkeppni milli nokkurra óháðra fjármála og/eða stjórnmálamiðstöðva. Ekkert land er til, sem ekki er tiltölulega auðvelt að skipa niður i annan hvorn þessara hópa. Stigmunur þekkist í hvor- um hópnum um sig, en slíkur munur er minni heldur en hið breiða bil, sem er millj hópanna tveggja. Þrátt fyrir allan ágrein- ing eiga Albanía og Júgóslav- ía meira sameiginlegt, hvað grundvallarskipulag snertir — heldur en þessi lönd eiga skylt er jafnstór og nokkru sinni fyrr. Fram að 21. ágúst var hægt að ímynda sér aö ný tegund kommúnisma væri að myndast í Austur-Evrópu, með hliðsjón af því, sem hafði verið að gerast, fyrst í Júgóslavíu og síðan í Tékkóslóvakíu, ný tegund kommúnisma, se mundi sam- eina grundvallarsetninguna um eignarrétt hins opinbera og hæg fara en stöðuga þróun í átt til valddreifingarkerfis i efna- hagsmálum og jafnvel, að lok- um, á stjórnmálasviðinu. Innrásin f Tékkóslóvakiu hef ur gert þessa von að engu. Að- eins í Júgóslaviu er enn verið að gera raunverulega tilraun til að gera kom. lúnismann frjáls lyndari og jafnvel þar á enn éft- ir að koma á daginn, hvort Rúss ar muni láta þessa tilraun af- skiptalausa, og hvort tilraunin heppnast virkilega, þótt svo fari, að Rússar haldi að sér höndunum. Unz frjálslyndari menn taka við völdum í Moskvu eða unz hið ólíklega gerist og Júgóslövum heppnast tilraun sín án þess að þeir taki tillit til Moskvuvaldsins, þá er sú stað- reynd fyrir hendi, að öll hin raunverulegu iýöræðisríki ver- innrásin í Tékkóslóvakíu hefur gert. Hún hefur einnig komið fólki til að minnast þess hvar þungamiðja valdsins liggur í hvoru hinna miklu valdakerfa. Hún liggur í Amerfku og Rúss- landi, og þar mun hún verða svo lengi sem þessi tvö lönd viðhalda núverandj yfirburðum sínum á sviði efnahags- og hernaðarstyrks. Ekkert land er algerlega óháð öðru hvoru þessara ríkja. Annað hýert land byggir að töluverðu leyti á öðrum hvorum þessara DUBCEK hlýðni. — kúgaður til KOSYGIN — sendi skrið- dreka til að stöðva þróun mála f Tékkóslóvakfu. við nokkurt hinna and-kommún istisku ríkja. Dagsatt er, að mörg ríki í hinum and-kommúnistíska hluta heimsins byggja efnahagskerfi sín á valddreifingu, án þess að um slíkt sé að ræða í stjórn málum þeirra, það er að segja: þau eru kapftalísk ríki en ekki lýðræðisríki. Þetta^ er svolítið, sem róttækir menn á Vestur- löndum ættu að kitla samvizku sína meö eins og tvisvar daglega fyrir morgunverð. En þetta koll varpar ekki grundvallarmunin- um milli hinna tveggja hc' .s- hluta Það sem Rússar hafa gert við Tékkóslóvak'u gerir bað deginum Ijósara, að munurinn DE GAULLE — fremur sam- starf við kommúnistríkin held- ur en Ameríku. aldar eru hin and-marxistísku riki handan við hina miklu markalínu. JJeyndin sannai það, að vald- dreifing í stjórnmálum en hún er það sem gerir Iýðræði mögulegt, vex bezt úr jarðvegi efnahagskerfis, þar sem vald- dreifing ríkir. Þetta eru ef til vill chki fullgildar sannanir, en þetta er það, sem við verðum að láta okkur nægja að hafa í höndunum. Það sem innrásin í Tékkó- slóvakíu minnir fólk á er að svona er grundvallarskipting heimsins í dag. Hún hefur gert að engu þá skoðun de Gaulles hershöfðingja, að munurinn milli kommúnista og and-komm únista í Evrópu sé ekki eins mikilvægur eins og niismunur- inn milli Evrópumanna og Ameríkana. Aðalmálið á næstu tuttugu árum er ekki frá hvaöa meg- inlandi maöur kerhur eða hvern hörundslit maður hefur Aðal- málið er þaö hvort hinna tveggja kerfa, miðstjórnarkerfi Leníns eða vestræn valddreif- ing. f'est fólk mun búa við eft- ir eina kynslóð frá þvi I dag. Aftur erum við komin að kjarna málsins. Þetta er ekki það eina sem JOHNSON — Bandarikin sýna á sér tvö andlit. risa iðnað sinn, fjárhagslega að- stoð, tækniráðgjöf, og sem síð- asta skjól, hernaðarvernd. Lín- umar liggja annaðhvort til Moskvu eða Washington. Þetta er ekki heimurinn eins og viö gætum hugsað okkur hann bezt an, en þetta er heimurinn okk- r Hann mun ekki breytast fyrr en einhyer ný valdamiðstöð er orðin að veruleika í Evrópu Japan eða Kína, sem getur leyst' af hendi sama verkefni. Þetta hefur ekki gerzt ennþá. Og þang að til það gerist, er þaö tilgangs laust að fyrirlíta gang mála í veröldinni, eins og þaö mundi vera að líta hornauga þá stað reynd, að jörðin gengur i kring um sólu. T íkur benda til þess, að tvær ríkjandi valdamiöstöðvar muni halda áfram að ráða í ver- öldinni í langan tíma. Þess vegna skiptir r rlega miklu máli fyrir þá, sem hugsa um stjórnmálafrelsi sitt, hvernig stórveldin tvö munu haga við- skiptum sínum við smærri ríki, hvort á sínu áhrifasvæði. Þetta felur í sér tvær aðskildar spurningar. Hin fyrri er sú, við hvaða skilyrði Bandaríkin og Rússland muni láta land fara yfir markalínuna, sem skil- ur að kerfin án þess að reyna að koma í veg fyrir það Síðari spurningin er um það. hversu vítt stjórnmálalegt valfrelsi land getur vonazt eftir að búa við innan þeirra takmarka, sem fólgin eru f þeirri staöreynd að viðko.nandi Iand tilheýrir öðru valdakerfinu en ekki hinu. „Pravda" svaraði spumineunni af hálfu Rússa 26. september stutt og laggott og tók af öll tvímæli. Kommúnistaríki hefur frelsi til að aöhafast vissa hluti, sagði < greininni í .Pravda“ én bað hefur ekki frelsi til áð að- skilja sig frá kommúnismanum. Þetta má gera ráð fyrir, að þýði, að jafnvel þótt kommún- NEHRU — hélt sig geta farið milllveginn. istískir kjósendur höfnuðu hin- um eina lista frambjóðenda, sem flokkurinn leggur ram fyr- ir kosningar. sem í alla staði er óliklegt, mundi flokkurinn beita því valdi, sem nauösynlegt væri til að halda áhrifum sínum. Þetta er framúrskarandi hroka full hótun, og ákaflega ólík af- stöðu Ameríkana. Þeir segja, að þeir muni ekkert gera í því að hindra kommúnista í að taka viö völdum í and-kommúnist- ísku landi ef sú breyting á sér stað samkvæmt lýðræöislegum stjórnarháttum. íhlutunin í Dómínikanska lýðveldinu og Víetnam er ekki ósamræmanleg þessari staðhæfingu: Banda- ríkjamenn sendu herlið inn í þessi Iönd, vegna þess áð þeir héldu því fram, að kommúnistar væru að reyna að ná þar völd- um með herafla og án samþykk- is meirihluta ibúanna. Auðvitað leyfist manni að velta því fyrir sér. til hvers Bandaríkjamenn mundu í rauninni grípa ef meiri- hluti ítala eða Frakka kysi kommúnistastjórn til að taka við völdum. Það gæti svo farið að þeir stæðu ekki viö loforð sitt um að halda að sér höndum. En a.m.k. er fyrirheitið svona í höfuðdráttum, það er hið rússn- eska ekki. Hvort sem er eru ekki mörg lönd líkleg til að taka þá áhættu, sem er samfara því að hverfa frá einu kerfinu til annars. Mikilvægasta prófið er, hversu vítt stjórnmálavalsvið meðlimir hvors kerfis hafa. fyrir utan að segja algerlega skilið viö kerfið. Svarið er fremur einfalt, hvað flest and-kommúnistísk lönd viðvíkur. Þau geta haft stjórnir allt frá því lengst til hægri til töluvert yfir til vinstri og eins og dæmi er til í Frakk- landi geta kommúnistar tekið þátt í samsteypustjórn. — án js að Bandaríkin hreyfi nein- um mótmælum. Tjetta gildir ekki alls staðar. Það er fullkomlega sann- gjörn gagnrýni á hendur Banda- ríkjamönnum, að i hlutum Asíu og S.-Ameríku hafi þeir verið fúsir til að ljá siðferðilegan (eða fremur siðlausan) stuðning einræðisherrum. sem aðhyllast hægri-öfgastefnur, og veita þjóðum sínum alls ekkert stjórnmálafrelsi. En þessi ó- hreina stjórnmálastefna er á- kaflega ólík því að senda skrið- drekaheri yfir landamæri. Með því að gera innrás í Tékkó- slóvakíu hafa Rússar gert það ljóst, að þeir muni ekki láta neitt ríki í bandalagi kommún- ista víkja á neinn mikilvægan hátt frá hugmyndum Rússa um. hvernig stjórna á komm- ínistarlki. Dubcek var sannar- lega ekki að brevta grundvallar- atriðum hins kommúnistíska kerfis í Tékkóslóvakíu. Hann 13. sfða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.