Vísir - 23.10.1968, Blaðsíða 7
▼ ÍSIR . Miðvikudagur 23. október 1968.
7
morgun
útlöild í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
-k Fyrstu ungversku hersveitirn-
ar, sem sendar voru til Tékkó-
slóvakíu, eru komnar heim. Með
frétt ungverska útvarpsins um það
í gærkvöldi, er staöfest að brott-
flutningur hemámsliösins frá
Tékkóslóvakíu er hafinn.
■k í Prag er af ýmsum í Kommún
istafiokknum lagt fast að Dub
cek og öðrum leiðtogum að taka af-
stöðu gegn þeim kommúnistum,
sem fylgja sovétleiðtogum af
mestu harðfylgi, og krefjast réttar-
halda yfir ritstjórum, útvarpsmönn-
um og öðrum, sem hafa stutt um-
bótastefnuna.
k Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins sagði í gær,
aó Bandaríkjastjóm vonaði, að af-
hending á 14 norður-víetnömskum
sjóliðum, sem fram fór í gær.f
leiddi til samkomulags mil'li Norð-
ur-Víetnams og Bandaríkjanna um
skipti á stríðsföngum.
Lending Apollo 7.
— en mikill kvíði
— Afrek þeirra forleikur að þvi, að Bandarikin
sendi mannað geimfar til tunglsins fyrir lok
, næsta árs
• Apollo sjöundi lenti á ætl-
unartíma í gær suðaustur af
Bermuda, og barst fregn um það
rétt áður en blaðið fór í press-
una. Lendingin átti sér stað kl.
11.12, en samkvæmt fyrri frétt-
um hafði verið gert ráð fyrir
lendingu klukkan 11.13. Sam-
kvæmt Reauter-frétt kom hinn
mjórri endi geimfarsins á sjó
-k Tal^maöur í Páfagarði sagði í
gær, aö Jacqueline Kennedy
hafi vel vitað, að hún var að brjóta
lög rómversk-kaþólsku kirkjunnar,
er hún giftist Onassis. í blöðum
á Ítalíu hefir komið fram gagnrýni
á það að hún giftist Onassis,, og
var komizt svo að orði í Rómar-
blaðinu II Messaggero síðastl.
sunnudag, bnlðkaupsdag þeirra:
í dag deyr .Tohn F. Kennedy í
annað sinn.
■A: Mauno Koivisto forsætisráð-
herra Finnlands kemur til Moskvu
árdegis í dag til fundar við Alexei
Kosygin forsætisráðherra Sovétríkj
anna. Kona forsætisráðherrans er
með honum í ferðinni og munu þ&u
dveljast vikutíma í Sotji á Krím-
skaga. Af finnskri hálfu er ferðinni
Iýst sem kurteisisheimsókn.
★ Alekos Panagoulos, 30 ára,
sem sakaður er um a," háfa gert til-
raun til aö myrða á laun George
Papadopoulos forsætisráöherra 13.
ágúst s.I., verður leiddur fyrir rétt
4. nóvember. Hann var handtekinn
skömmu eftir hina misheppnuðu
morðtilraun. Af hálfu grísku stjórn-
inni er því þaldið fram, að fyrrver-
andi grískir stjórnmálamenn séu
flæktir í málið, m. a. Andreas Pap-
andreoa.
-k Með úrsögn ekkju franska
kommúnistaleiðtogans Thorez
úr miðstjórn kommúnistaflokksins,
er augljóst orðið, að klofningur er
í stjórn flokksins út af hernámi
Tékkóslóvakíu.
Wilsón hefir borizt svar Smiths
Fimmtiu flokksmenn Wilsons greiddu
atkvæði gegn honum
• Wilson forsætisráðherra Bret-
lands tilkynnti í gær undir umræð-
unni um Rhodesíu, að hann hefði
fengið formlegt svar Ians Smiths
forsætisráðherra Rhodesíustjórn-
ar við skilyrðum brezku stjórnar-
innar.
Hann lét að öðru leyti ekki í té
neinar upplýsingar um svarið. Við
atkvæðagreiöslu í lok umræðunnar
greiddu um 50 þingmenn Verka-
mannaflokksins atkvæði gegn til-
lögunum, einnig 6 þingmenn Frjáls-
lynda flokksins eða allir, sem við-
staddir voru. bingmenn íhalds-
flokksins sátu hjá við atkvæöa-
greiðsluna.
Gerist það „kraftaverk" 5. nóv. að Humphrey sigri?
Fregt frá New York hermir, að Humphrey haldi áfram að vinna á eftir skoðanakönnunum að
dæma, þótt han sé enn á eftir Nixon — og greinilegt sé, að í „herbúðum demokrata séu menn
farnir að trúa því, að ef til vill rætist spá Humphrtys, að „kraftaverk“ geris I forsetakosningun-
um í nóvember, þ. e. að ' ann verði kjörinn forseti. — Myndin er frá New York, en þar heldur
Humphrey hvern fundinn af öðrum. Þaðan fer hann til Texas.
tókst giftusamlega
ríkti í 20 mínútur
niður og torveldaði sambandið
við geimfarið. og hafði ekki
náðst samband við geimfarana
12 mínútum eftir lendingu, en
áður haföi seinast verið sam-
band við þá, er geimfarið var í
300 enskra feta hæð. Lendingin
átti sér stað 320 km suðaustur
af Berniudaeyjum í 25 km fjar-
Iægð frá flugvélaskipinu Essex,
en þegar geimfarið var búið að
„rétta sig“ á sjónum tilkynntu
geimfararnir, að allt væri í bezta
lagi.
Talsmaður geimferðastjórnarinn-
ar sagði, að sovézkur togari hefði
verið núlægur á þessum slóðum, og
hafði hann verið í nánd við Essex
dögum saman.
í frétt frá Kennedyhöfða var sagt
að með hinni vel heppnuðu ellefu
daga geimferð sinni hefðU geim-
fararnir þrír rutt brautina að því,
að Bandaríkin sendu mannað geim-
far til tunglsins fyrir lok næsta
árá. Var þetta haft eftir Samúel C.
Philips, fr&nikvæmdastjóra geim-
ferðaáætlunarinnar.
Fyrsta læknisskoðun á geimför-
unum fór fram þegar eftir að þeir
voru komnir um borð í Essex og
ýtarleg greinargerö um skoðunina
á þeim var boðuð. Yfirmaður hinn-
ar læknisfræðilegu deildar geim-
ferðastofnunarinnar, Charles Berry
læknir, sagði, að hljóðhimnur geim-
faranna hefðu ekki beðið neitt tjón
af völdum þrýstings þótt þeir hefðu
ekki haft hiálmana á hiifðum sér
meðan geimfarið fór gegnum gufu-
livo'f 'arðar.
Mikill kvíði ríkti, þegar sam-
bandið við geimfarana rofnaði, er
geimfarið var í um 100 metra hæö,
og mönnum flaug í hug, að fallhlíf
hefði bilað, eða geimfarið brotnað
er það kom niöur á hafflötinn. Millj
ónir sjónvarpsnotenda voru þátttak
endur í áhyggjum þessum og kvíða
í nær 20 mínútur, en þegar geim-
förunum tókst að koma Apollo á
réttan kjöl tilkynntu þeir að allt
væri í Iagi. Loftskeytasamband
milli þeirra og Essex komst þegar
16 mínútur voru liðnar frá hinum
opinbera lendingartíma (11.12).
Johnson forseti sendi geimförun-
um heillaóska- og þakkarskeyti og
vottaði þeim aðdáun sína og banda-
rísku þjóðarinnar.
Tilkynning hefur verið birt þess
efnis, að skoðanir á geimförunum
þremur, Schirra, Eisele og Cunn-
ingham, hafi leitt í ljós, að heilsufar
þeirra sé í bezta lagi eftir geim-
ferðina.
Nú aðeins 3 of
brezku sexbur-
unum á líffi
Enn einn af scxburunum brezku
lézt í gær og eru nú þrír á líf! og
heilsast þeim vel.
Nýtt sjólfsmorð í
Vestur-Þýzkalandi
í Bonn var tilkynnt í gærkvöldi,
aö embættismaöur í efnahagsráðu-
neytinu hefði framið sjálfsmorð.
Áður haföi verið tilkynnt, að lík-
ur v„ru fyrir, að Liidke sjóliðsfor-
ingi, einn þriggja háttsettra liðsfor-
ingja, sem aö undanförnu hafa fund
izt skotnir, hefði verið njósnari.
Norsk-sovézk kvikmynd
um Friðþjóf Nanserr
Frumsýning var í gær í Moskvu á
norsk-sovézku kvikmyndinni „Bare
et liv“. sem fjallar um líf Friöþjófs
Nansens, hins heimskunna heim-
skautafara og mannvinar.
Byrjað var að vinna að kvik-
myndinni fyrir tveimur árum.
Á'horfendur á frumsýningunni voru
um 1200 og tóku þeir því með
miklum fögnuði, er tilkynnt var
að ágóðinn af frumsýningunni yrði
látin renna í „Víetnam-sjóðinn“.
Kvikmyndin fjallar um Nansen
sem vísindamann og heimskauta-
fara og hin miklu mannúðarstörf,
sem hann vann, m. a. um hjálpar-
starfsemi hans í hungursneyðinni
í Sovétríkjunum um 1920.
Olíuskipsbruninn
á Norðursjó
— Lestar voru tómar, en vegna gass i þeim
var skipið eins og „fljótandi sprengja"
íbúum baöstaðarins Eastbourne á
Engiandi var tilkynnt í gær að
ekki væri frekari hætta af spreng-
ingum í norska olíuskipinu, sem
eldur kom upp í á Norðursjó s.l.
sunnudag eins og getið hefir verið
í fréttum, en þrjár sprengingar
urðu í hinu brennandi skipi áður
en það var dregið til lands skammt
frá bænum.
Skipið heitir Stitakund og er
24.000 lestir. Þrír af áhöfninni fór-
ust en franskir togarar björguðu
öðrum skipsmönnum, 32 talsins.
Skipið er nú á grunni 1 y2 km. frá
Beachy-höfða skammt frá East-
bourne. í fyrradag héldu menn, að
öll hætta væri hjá liðin, en í gær-
morgun vöknuöu íbúar Eastbourne
við mikTa sprengingu, og var hún
í vélarrúmi skipsins, og kviknaði
í út frá henni. Skipið var ekki með
olíu í lestunum, en vegna gass í
þeim var skipinu líkt við „fljótandi
spreivgju".