Vísir - 23.10.1968, Blaðsíða 13
V í SIR . Miðvikudagur 23. október 1968.
Flugslys á Islandi
vestan hafs
og
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
atbugasemd frá forstöðumanni
loftferðaeftirlitsins:
„1 Vísi laugardaginn 12. þ. m.
er á öftustu síöu birt rammagrein
er segir að flugslys hér (á landi)
séu margfalt fleiri en erlendis.
Að vísu hefur blaðamanni þeim
er fregnina skrifaði þótt vissara
að ljúka fyrirsögninni með spum-
ingarmerki.
Tilefni þessara skrifa mun vera
það, að fréttamaður blaðsins
hringdi til mín undirritaðs og
spHirðist fyrir um hve margir hefðu
'látizt í flugslysum hér á land síð-
»an árið 1927. Ég tjáði honum að
flug hefði ekki byrjaö hér á landi,
fyrr en 1928 og að núverandi
yfirstjóm flugmála hefði ekki verið
sett á fót fyrr en árið 1945.
Ég tjáði honum einnig að lrtið
. væri hér gert að því að gera alls
konar „statistic" um ýmis efni,
til þess værum við of fáliðaðir við
okkar störf, en öll „statistic" er
tímafrek, nema unnin sé með vél-
um og þess háttar.
Það er alger misskilningur að
skrifstofa loftferðaeftirlitsins hafi
engar skýrslur tnn flugslys hér á
landi sem mark er takandi á. Það
hafa verið gerðar skýrslur um öll
flugslys (meiri háttar) hér á landi
frá árinu 1945. Hitt sagði ég, að
ekki væri sanngjamt að birta tölur
1 um flugslys, nema hægt væri um
leið að birta tölur um flogna far-
i þegakilómetra, þá fyrst kæmi sú
rétta hlutfallstala slysa i ljós, sem
mark væri takandi á.
Sem betur fer hafa dauðaslys í
, flugi ekki verið ýkja mörg og til
} þess nú að friða að einhverju
blaðamann þann, sem reit fyrr-
nefnda grein skal ég upplýsa eftir-
farandi.
, 1 flugslysum í reglubundnu at-
; vinnuflugi hér á landi hafa farizt
48 farþegar á 21 y2 ári. Þar af er
; tala farþega i tveimur flugslysum,
annars vegar 21 farþegi og 20 far-
þegar. Flugslysin em að tölu fjögur
á þessu tímabili. Á sama tíma hafa
5 farþegar látið lífið í öðm at-
vinnuflugi, heldur en reglubundnu.
Flugslysin eru að tölu tvö. Á þess-
um tima hafa 25 nianns látið lífið í
kennslu- og æfingaflugi. Flugslys-
in eru að tölu þrettán.
Það er alveg rétt að við islend-
ingar erum 1000 sinnum færri en
Bandaríkjamenn. Kemst því blaöa-
maóurinn að þeirri furðulegu nið-
urstöðu að ef 30 þúsund farþegar
hafa látið lífið í flugslysum i
Bandaríkjunum, megi ekki fleiri en
30 farþ^gar hafa farizt hér á landi
og gerð er úr því æsifregn.
Griðnstaður —
B>- > 9. síðu.
var aðeins að reyna að auka
frjálsræði þar, og þar með aö
reyna að gera stjómarfarið öfl-
ugra. Hann fékk rússneskan
her á hálsinn fyrir þessar til-
raunir sínar1. Það er ekki hægt
að láta sem maður sjái ekki
þennan mun. Grundvallarvalið
í stjómmálum það sem eftir er
af þessari öld er milli þessara
tveggja stjórnmálakerfa um
skipulagningu lifnaðarhátta í
löndunum. Bf aðgerðir Rússa
í Tékkóslóvakíu eru vísbend-
ing um það, sem þeir hafa
í huga fyrir lönd, sem hneigj-
ast aö kerfi þeirra — þá er
valið ekki erfitt.
(Þýtt úr „The Economist").
íslendingar eru meöal fremstu
flugþjóöa í heimi, miðað við flogna
farþegakílólnetra og fólksfjölda.
Tölur og alls konar „statistic"
segir ekki ávallt allt, þótt stundum
sé mjög skemmtilegt að fást við
slikt, sérstaklega ef menn kunna
með það að fara.
Að lokum: Ég bauð fréttamanni
að koma á skrifstofu loftferðaeft-
irlitsins og ræða við hann um
þessi mál. Stakk ég upp á því að
hann skrifaði um þessi annars
ekki skemmtilegu mál £ samtals-
formi, en það kaus hann ekki
og lét sér nægja upplýsingar frá
öðrum, sem ekki hafa með þessi
mál að gera.
Með þökk fyrir birtinguna.
F. h. loftferðaeftirlitsins,
Sigurður Jónsson.“
Athugasemd við
„athugasemd“.
í athugasemd Sigurðar Jónsson-
ar er margt athugasemdavert.
1. Fyrirsögninni lauk að sjálf-
sögðu með spumingarmerki. Ofan-
greind frétt var fyrst og fremst
vangaveltur um hvort flugslys séu
tíðari á íslandi en í Bandaríkjun-
um, sem höfð voru til samanburð-
ar. Engin „statistik" er til hér á
landi til að hrekja það né sanna.
2. Tilefni fréttarinnar var ekki,
að undirritaður hringdi í Sigurð,
heldur tölur, sem bandaríska flug-
máiastjórnin birti nýlega um fjölda
látinna í innanlandsflugi í Banda-
ríkjunum 1927—’67. Áhugi vakn-
aði á því að gera samanburð viö
innanlandsflug á íslandi á sama
tíma. Tölur um fjölda flugslysa
hér á landi voru ekki til hjá loft-
ferðaeftirlitinu, að því er Sigurður
tjáði undirrituðum, þó að hægt
væri að taka þær saman úr hinum
einstöku skýrslum um flugslys.
Sigurður sagðist þó ekki treysta
sér til þess að svo komnu máli
vegna annríkis. Hann bauð, að
blaðamaður Vísis gæti fengið að
kynna sér aðstööu loftferðaeftirlits-
ins, en gaf ekkert út á, hvort hægt
yrðj að taka saman fiölda látinna
í flugslysum hér á landi frá upp-
hafi flugs.
3. Skýrslur um tíðni flugslysa
eru ekki hið sama og skýrslur um
einstök flugslys. í fréttinni var
átt við skýrslur um tíðni flugsiysa,
þó að viðurkennt skuli, að það hafi
verið klaufalega orðað á einum
stað í fréttinni. Við lestur fréttar-
innar allrar getur enginn hins veg-
ar efazt um, hvað við er átt.
4. Sigurður birtir nokkra tölur,
sem gefa villandi upplýsingar.
Hann var aftur á móti svo vin-
gjamlegur að sýna mér lauslega
samantekna skýrslu um flugslys
frá 1945, sem hann hafði tekið
saman síðan við hann var talað
upphaflega. Sú skýrsla sýndi, að
fjöldi látinna f flugslysum i ís-
lenzkum Plugvélum frá 1945 er
104.
5. Það er ekki rétt, að su niöur-
staða fáist I fréttinni, að hér megi
ekki fleiri en 30 manns hafa farizt
til þess að það geti talizt eðlilegt.
Hins vegar er sagt að miðað við
mannfjölda hér og í Bandaríkjun-
um sé 30.000 þar sambærileg við
30 hér.
6. Sigurður segir að íslending-
ar séu meðal fremstu flugþjóða i
heimi. Það er sjálfsagt rétt. Hitt
mun þó vera á allra vitorði, að
Bandaríkjamenn eru fremsta flug-
þjóð í heimi. I fréttinni er sér-
stakiega tekið fram, að ekki sé
mark takandi á tölum um flug-
slys, nema upplýsingar um far-
þegakílómetra fylgi með. Skýrslur
um það eru ekki til hér á landi,
en hæpið má teljast að saman-
burður við. Bandaríkin yrði okkur
nokkuð hagstæðari þó að upplýs-
ingar þar um lægju fyrir.
7. Rétt er að vekja athygli á
því að lokum, að talan um fjölda
látinna í Bandaríkjunum nær yfir
40 ára tímabil, en hér aðeins frá
1945. Samanburðurinn fyrir okkur
batnar ekki við það.
Valdimar H. Jóhannesson.
LEIGAN s.f.
Vinnuvelar til feígu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
Raiknúnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzín)
Jar ðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Víbratorar
Staurabarar
Slípirokkar
Hitablásarar
HDFDATUNU - SIMI 23480
ATVINNA
VINNA ÓSKAST
21 árs gamall reglusamur maður óskar eftir vinnu strax,
allt mögulegt kemur til greina, hefur bílpróf. Uppl. í síma
20192.
FYRIRSÆTA ÓSKAST.
Listmálari óskar eftir fyrirsætu. — Ekki yngri en 18 ára.
Há laun. — Umsókn sendist blaðinu merkt. „Listmálari
187“.
BiFREIÐAVIÐGERÐIR
BIFREIÐAEIGENDUR
Alsprr itum og blettum bfla. Bilasprautun Skaftahlíð 42.
SPRAUTUM BÍLA
Alsprautum og blettum ailar gerðir af bflum. Sprautum
einnig heimilistæki, isskápa, þvottavélar, frystikistur og
fleira f hvaða iit sem er. Vönduð vinna og ódýr. —
Stimir st, bflasprautun Dugguvogi - (inng. frá Ksentr-
vogi). Sími 33895.
3ÍLAVIÐGERÐIR
Geri rið grindur oílum og annast alls konar jámsmíði.
Vélsmiðja Sigurðar V Gunnarsscnar. Sæviðarsundi 9.
Simi 34816 (Var áður á Hrlsateig’ 5).
VISIR I VIKULORIN
700 króna mappa
Þeir áskrifendur
upphafi i oar til
er yfir 700 kr-e-
Vísis, sem hafa safnað „Visi i vikulokin“ frá
gerða möppu, eiga nú 160 blaðsiðna bók, sem
- yirði.
Hvert viðbótareintak af „Vísi í vikulokin" er 15 króna virði. —
Gætið þess þvi að missa ekki úr töiublrö.
Aðeins áskrifendur Visis fá „Visi i vikulokin" Ekki er hægt
að fá fylgiblaðið á annan hátt. Það er þvi mikils virði að vera
ðskrifandi að Vlsl.
Gerizt áskrifendur strax, ef þé» eruð það ekki þegar! '
Dagblaðið
VÍSIR