Vísir - 23.10.1968, Qupperneq 16
Míðvikudagur 23. oktöber 1968
Þjófur vinnur
spjöll í Þjéðleik-
húskjalluranum
• Brotizt var inn i fyrrinótt í
Þjóðleikhúskjallarann og stol-
ió 12000 krónum i peningum. —
Þjófurinn hafói unniö mikil spjöll á
skápum og dyrum í leit sinni að
verðmætum, en peningunum stal
hann úr læstum skáp, sem hann
braut upp. Glös og flöskur báru
bess merki, að þiófurinn hefur ann
að veifið hresst sig á veitingum
milli þess sem hann hefur gert at-
Sögu að hlrzlum staðarins. Þá hef-
ur hann einnig haft á brott með
sér eitthvert magn af áfengi.
Borgarbúar til funda með borg
arstjóranum
Sex fundir i hinum ýmsu hverfum Reykjavikur
O Borgarstjóri Reykjavíkur,
Geir Hallgrímsson, hefur
boðað til sex hverfafunda
með íbúum Reykjavíkur og
verður sá fyrsti þeirra hald-
inn kl. 3 á laugardaginn n.k.
í Laugarásbíói fyrir íbúa
Laugarnes-, Sunda-, Heima-
og Vogahverfis. — Fundir
þessir verða nú haldnir í
framhaldi af yfirlýsingu, sem
ég gaf út eftir að gagnrýni
hafði komið á sams konar
fundi vorið 1966 fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar,
sagði borgarstjóri á fundi
með blaðamönnum í gær. Þá
lýsti ég því vfir, að reynt
yrði að halda hverfisfundi á
tveggja ára fresti. í vor var
ætlunin að halda hverfis-
fundi, en þá komu verkföll
og annað í veg fyrir að af því
yrði.
Fundirnir hafa þann tvíþætta
tilgang aö gefa borgurunum inn-
sýn í borgarniálefnin jafnframt
því sem hugur borgaranna til
ýmissa mála er kannaður, svar-
aði borgarstjóri aðspurður um
tilgang slíkra funda. — Það er
mikill stvrkur við gerð fram-
kvæmdaáætlana borgarinnar að
vita hvar áhugamál borgaranna
liggja til bess að hægt sé að
samræma sjónarmið beirra, em-
bættismanna borgarinnar og
borgarfulltrúa.
Þessir fundir borgarstjórans
eru ekki hugsaðir sem pólitískir
fundir, enda er öllum frjálst að
leggja fyrir munnlegar eða skrif-
legar fyrirspurnir á beim að
loknum ræðum, sem borgar-
stjóri mun fiytja.
Fundirnir verða sem hér segir:
Laugardaginn 26. okt. kl. 3 i
Laugarásbíói fyrir Laugames-
Sunda-, Heinia- og Vogahverfiy
sunnudaginn 27. okt. kl. 3 i
Dansskóia Hermanns Ragnars i
Miðbæ fyrir Smáibúða-, Bú-
staða-, Háaleitis- og Fossvogs-
hverfi, miðvikudaginn 30. okt.
að Hótel Sögu fvrir Mela- og
Vesturbæjarhverfi, fimmtudag-
inn 31. okt. í Sigtúni fyrir Mið-
og Austurbæjarhverfi, Iaugar-
daginn 2. nóv. í Félagsheimili
Rafveitunnar við Eiiiðaár fyrir
Árbæjar- og Breiðholtshverfi og
sunnudaginn 3. nóv. i Domus
Medica fyrir Hiiða-, Holta- og
Norðurmýrarhverfi.
SÍF vill ráða til
sín sölumantt
— Aukafundurinn haldinn á morgun
Sölusamband isl. fiskframleið-
enda ráðgerir nú að auka sölustarf-
Engin síld
Engin síld veiddist á miðunum
umhverfis landið í nótt. Fyrir aust
an var bræla og 6 til 7 vindstig.
Fáir bátar munu hafa kastað og
engum þeirra tekizt að klófesta
neitt af silfri hafsins. Nokkuð eru
menn orðnir hvekktir á sildarleys-
inu og segja má einnig, að það séu
flestir landsmenn orðnir.
Fyrir sunnan varð sílciin ekki á
vegi veiðimanna og fóru allir bát-
arnir því bónleiðir til búðar. Þrátt
fyrir veiðileysi var veður hið feg
ursta á miðunum og því ekki um að
kenna.
semi sina og hefur m. a. auglýst
eftir nianni, sem vinna á að sölu-
og markaðsmálum. Samkvæmt upp
lýsingum Helga Þórarinssonar,
framkvæmdastjóra, er þetta gert í
framhaldi af ályktun síðasta aðal-
fundar, sem taldi að nauðsynlegt
væri að auka bessa star.'semi fyrir-
tæk-sins.
Aukafundur vegna sölu- og mark
aösmála verður haldinn á morgun
í SÍF. Það verða rædd mál þau,
sem mikill styr hefur staöið um,
en eins og lesendur rekur minni tii,
urðu miki! blaðaskrif vegna þess
að saltfiskkaupandi frá Italíu,
I Mercurio frá Paonessa, fékk ekki
| keyptan hér þann saitfisk, sem
hann óskaði. Málin munu væntan-
: Iega eitthvað skýrast eftir þennan
í fund.
i
eykingabann hert
í mjólkurbúðunum
„REYKINGAR BANNAÐAR“
stendur á skiltum, sem komið
hefur verið upp í mjólkursölu-
búðum og öðrum mjólkurútsöl-
um og fólk hefur nýlega tekið
eftir.
Til þess að fá nánari skýringu
á því gegn hverjum þessum tilmæl-
um er beitt hafði blaðið tal af
Kára Guðmundssyni, mjólkureftir-
litsmanni rikisins í morgun.
„Það er talinn sóðaskapur að
vera með sígarettureyk þar sem
matvæli 'ei* höfð um hönd,“ sagði
Kári, ,,og líltin voru sett upp með
tilliti til hreinlætis."
Kári sagði ennfremur, að fyrir-
mælum þessum væri ekki sízt
beint til afgreiðslufölksins, en
kvartanir yfir reykingum þess
hefðu borizt i fjölda mörg ár.
Hefðu ráðstafanir sem þessar ver-
ið fremkvæmdar áður, en nú væri
tekið fastari tökum á málinu.
Malbikað
. ...... /..V'
við Laugaveg
• Víða við Laugaveg ofanverð-
an standa nú yfir malbikunar-
framkvæmdir, enda er nú að
verða hver síðastur áður en vet-
ur gengur í garð.
O Á ýmsum stöðum er verið
að ganga frá bifreiðastæðum fyr
ir framan hinar stóru verzlunar-
og skrifstofubyggingar, sem þar
standa. Viðskiptahverfið færist
nú æ lengra frá kjarna borgar-
innar, sem er eðíileg þróun í
vaxandi borg.
O Þessi mynd var tekin fyrir
utan Laugaveg 178 í morgun, en
þar eru m. a. ritstjóm og
prentsmiðja Vísis til húsa eins
og kunnugt er.
O Lögreglan fann þessi reiðhjólafiök í skurði í bænum, en reið-
hjólum þessum hafði verið stolið og þjófurin-i fleygt þeim þarna,
þegar hann var búinn að hirða a. þeim það, sem hann munaði í.
Unnið er að rannsókn málsins áfram, en þarna mun hafa verið að
verki ungur piltur.
*****•••■••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
VERÐUR FANGAHÚSINUI
SNÚIÐ í HEILU LAGI? I
Spurt um 3 hús á fundi með borgarstjóra i gær
• Sérstakar i'yrirspurnir um
þrjú hús komu fram á fundi
borgarstjóra með blaðamönnum
i gær. Spurt var um framtið
fangahússins við Skólavörðu-
stíg. Hvort það yrði rifið vegna
gatnaframkvæmda. Hver væru
viðhorf borgaryfirvalda til vænt-
anlegrar byggingar Scðlabank-
ans á lóð sinni við Fríkirkjuveg
11 (þar sem hús Thor .Tensens
stendur nú) og hvers konar hús
Landssírninn gæti býggt á lóð-
inni, sem hann hefur nýlega
keypt af Sjálfstæðisflokknum
og nokkur styr hefur staðið um.
Fangahúsið stendur aö nokkru
fyrir götu, sem ráðgert er að
gera samkvæmt Aðalskipulagi
Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir
að gatan verði gerð seint á þvi
tímabili, sem skipulagið nær til
eða fvrir 1983. — Margir hafa
?ýnt áhuga á þvi að húsiö verði
varðveitt, þó að ekki séu bundn-
ar eintómar skemmtilegar minn-
ingar við það, sagði borgarstióri
Það hafa þvi komið upp þær
lauslégu hugmyndir að snúa því
' heilu lagi þar sem það stend-
ur, en borgarstjóri kvaðst hafa
haft spurnir af að slíkt hefði ver
ið gert erlendis og gefið góða
raun.
Um fyrirhugað hús Seðlabank-
ans á lóðinni við Fríkirkjuveg
11, sagði borgarstjóri, að borg-
in mundi heimila hús af hóf-
legri stærð, sem félli vel að um-
hverfi þess, en það er mjög við-
kvæmt fyrir öllum byggingar-
fra '''.væmdum.
"amkvæmt Aðalskipulaginu
getur Landssíminn byggt fjög-
urra hæða hús á lóð þeirri, sem
hann kevpti af Sjálfstæðisflokkn
um.