Vísir - 30.12.1968, Blaðsíða 6

Vísir - 30.12.1968, Blaðsíða 6
V í SIR . Mánudagur 30. desember 1968. „Rúsjarnir koma" „Rússarnir koma" ísleazkur texti. Víðfræg og snilldar vel gerö. ný, amerísk gamanmynd í al- gjörum sérflokki. Myndin er í litum og Panavision. Sagan hef ur komið út á íslenzku. Carl Reiner Alan Arkin Eva Marie Saint Sýnd kl. 5 og 9 íslenzkur texti. (What did you do in the war daddy?) Sprenghlægileg og jafnframt spennandi, ný, aferfsk gaman- mynd í litum og Panavision. James Coburn Dick Shawn Aldo Ray Sýnd kl. 5.15 og 9 STJÖRNliBÍÓ Djengis Khan íslenzkur texti. Amerísk stórmynd í litum og Cinemascope. Sýnd annan í jól um kl. 5 og 9. Vér flughetjur fyrri tima íslenzkur texti. Amerísk CinemaScope litmynd. Stuart Whitman, Sarah Miles (og fjöldi annarra leikara) Sýnd kl. 5 og 9. m\m ím WOÐLEIKHUSIÐ j DELERÍUM BÚBÓNIS þriöja sýning fimmtudag kl. 20. Hjálparsjóöur skáta. Munið þriöju sýningu. Hunangsilmur föstudag kl. 20 Aðgöngumiöasa,lan er opin frá kl. 13.15-20.00. Sími 1-1200. Sinfóniuhljómsveit Islands 7. tónleikar í Háskólabíói mánudaginn 30. desember kl. 20.30. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Einar Vigfússon celloleikari. — Verk eftir Mozart Boccherini og Stravin skí. — Nokkrir aögöngumiöar hjá Blöndal. VoBkswngen #63 Vil kaupa Volkswagen '63 — Vinsamlegast hríngið i sima 33191 Geti ég ekki dansað og Me er eins gott að moka yfir mig TTpegar ég var aö koma í Ólafsfjörð á kyrrlátu kvöldi síðari hluta júnímánaðar áriö 1962, hafði ég aldrei komið þar fyrr. Enga menn þekkti ég og umhverfið var mér framandi. 1 annálum hafði ég sitthvað séð, en fátt sem laðandi gat talizt. Eitt vissi ég þó. Kristján Jóns- son frá Hólmavík hafði hér sum ardvöl, var síldarmatsmaður og lét vel yfir. Annað vissi ég einnig. Hér var veriö að vinna aö miklum hafnarmannvirkjum, og því var ég á leiö svo fjarri þeim götum er ég hafði áður troöið, aö mér gafst kostur á að vera einn af hafnarverkamönn- unum. Ekki var Iaust við að mér þætti það í aðra röndina bros- legt, að ég, sem veriö hafði þrjá áratugi í þjónustu íslenzka ríkisins, og lengst af borið á- byrgð á nokkuð stórum skóla, skyldi þurfa að nota sumar- leyfi mitt við grjótmulning til þess að eiga nokkra von í að árskaup mitt næði hásetahlut á sæmilegu síldarskipi yfir úthald- iö. Og ekki minnkaði undrun mín þegar ég hitti þarna Guömund Magnússon skólastjóra við Laugalækjarskólann og sá Helga kennara við Stýrimannaskólann í óðaönn við að landa síld. Hann var sem sé háseti hjá Þorsteini Gíslasyni samkennara sínum, og hafði nú eftir rúmlega sex vikna úthald haft því nær jafnháa hýru og árslaun haps sem kennara höfðu numið árið þar á undan. Og svo bættist nafni minn í hópinn. Hann heitir Þorsteinn Símonarson og hefur margt lagt á gjörva hönd. Ekki veit ég hvort hann hafði sveins- eða meistarabréf út á færni sína í starfinu, en það duldist engum, að kunnáttusamlega handlék hann flest þau verkfæri sem þarna voru notuð, enda leiö ekki á löngu þar til almennt var litið upp til hans. þorsteinn er Svarfdælingur að ætt, en ólst lengi upp úti í Grímsey, og þar ræður Magn- ús bróðir hans miklu, og er ef til vill í sumu tilfelli forsjá eyjarskeggja, sem nú kváðu vera nær 90 manns. Sjóróðra hefur Þorsteinn stundað allt frá þeim tlm’a aö hann var fær um að innbyrða undirmálsfisk. Seinna fór hann í siglingar, svo að hann gæti svalað útþrá sinni, og fengið aura í vas- ann... Maður og kona nýársdag. Maður og kona laugardag. Aðgöngumiðasalan í Iðnó er op in frá kl. 14, sími 13191. Litla leikfélagið. Tjarnarbæ: Einu sinna á jólanótt, sýning í dag kl. 15. Aðgöngumiðasalan í Tjarnar- bæ er opin frá kl. 13. Sími — 1-51-71. v//„. Þorsteinn Símonarson. — Já, viö höfðum að jafnaöi 2000 krónur í túr, en hver ferö tók venjulega mánuð. Auðvitað hefði verið hægt að drýgja þess- ar tekjur með því að kaupa varn ing úti, því þar var margt ó- dýrara t. d. fékk ég þar góð föt fyrir 150 krónur. En það var takmarkað sem mátti kaupa, annað en brennivín og glaðar stundir. í Grímsey er ágætt að lifa fyrir þá sem stunda sjó ötul- lega, en þar er mjög veörasamt og meöan hafnleysa var, þá voru bátarnir í sífelldri hættu væru þeir ekki dregnir á land að kvöldi. — Og stutt að sækja sjóinn? — Já, en getur verið erfitt samt. Vestan hvellirnir voru verstir, en mér finnst veðrátt- an mildari nú hvað það snertir. Annars hefur líf mitt lengst af verið tengt sjósókn og hún uppistaöan í bjargræðisútvegi minum. Haustið 1936 var ég á bát sem hét Baldvin Þorvalds- son og var gerður út frá Dal- vík. Þann 16. september vorum við á reknetum út af Siglunes- inu, ásamt mörgum fleiri bát- um. Geröi þá allt í einu óða vestan veður og það svo hart, að ekki varð við neitt ráðið, misstum viö helminginn af net- unum og komumst við illan leik til lands. í þessu veðri fórst Þorkell máni frá Ólafs- firöj meö allri áhöfn. Einnig Einar og Brími frá Siglufiröi, en þá báta báða hafði togari tek ið í slef. En svo kom Alexandr- ine drottning þar að og hugöist veita aðstoð en sló þá saman við Bríma svo hann sökk og meö honum tveir menn. Af Einari varð mannbjörg, en báturinn fór í hafið. Ég eignaðist gamla Kára Söl- mundarson og áttí hann í sex ár, en seldi hann 1959 og hætti þá að mestu sjómennsku. Þó á ég trilluhom, sem ég keypti i félagi við frænda minn. En hann veiktist í fyrra og fór út til Kaupmannahafnar þar sem eitt- hvað var „tjöslað" viö hann, kom svo heim en dó litlu síöar. Síðan ég hætti sjómennsku hefur atvinna mín verið marg- breytileg. Ég hef unniö flest það, sem að höndum hefur boriö, talsvert við smíðar, t. d. í bryggj unni á Ólafsfiröi þegar viö hitt- umst hérna um áriö. — Fannst þér það ekki ágæt- ur tími? Jú, það voru þarna ágætir vinnufélagar, .t. d.'þiö Sig- urður. Annars gekk nú stundum talsverður tími í að sækja verk færi og annað smádót upp í geymsluna? — Já, en þetta var nú heldur » VIÐTAL DAGSINS er við Þorstein Simonarson enginn smáspotti og eins og þú manst var ég orðinn draghalt- ur af þessu sífellda rölti. — Já, þetta er líklega rétt. Nú fæst ég aðallega við að dytta að ýmsu, sem úr lagi hefur gengið. — Þú ert ennþá ókvæntur? — Já, svo er nú það. Ég bjó lengi með móður minni, en nú hef ég fengið ráðskonu. — Þú ert ein aðaldriffjöðrin í gömlu dönsunum á-Akureyri? — Jú, talsvert hef ég feng- izt við þau mál, jafnvel meira en ég hefði sjálfur kosið. Og þó, þegar ég get ekki lengur dansað og hlegið er eips gott að fara að moka yfir mig, því þá er ég ekki lengur til neins nýt- ur. — Við sögðum áðan að tím- inn, sem við unnum við hefn- argerðina hefði verið á margan hátt skemmtilegur? — Já, en lítið dönsuöum við nú á hafnar- garðinum, eða manst þú eftir nokkrum dansleik þar? — Já, þótt fæturnir væru stundum þungfærir, voru oft dansandi glettur og orðakast manna í milli. — Hvernig lízt þér svo á ástandið núna? — Mér lízt fremur óefnilega á það. É skil ekki hvernig barnafólk í verkamannastétt fer að lifa á átta stunda vinnudegi. Hvað þá heldur ef yfir dynur almennt atvinnuleysi, sem allt útlit virðist fyrir. Þjóðin með ráðamenn í fararbroddi er búin aö spila rassinn úr buxunum. Þaö viröist sem við skiljum ekki eða öllu fremur kunnum ekkj aö nota frelsjð. Þetta frjálsa val er okkur ekki hent- ugt. Alls konar óþarfa er hrúgað inn f landiö, síðan stillt út f glerhöllum kaupmennskunnar til ginningar fákænum sálum, sern einhver fjárráö hafa, en skortir dómgreind til innkaupa. — Og hvað skal þá til bragðs • taka? 'pjg held að ekki veröi önnur Jeiö fær en setja einhver höft- á óþarfan innflutning, þótt illt sé. Það er búið að sýna sig svo tæpast verður um villzt að við Islandingar þolum ekki að- haldsleysi í þessu efni. Okkur finnst við allt geta leyft okkur meðan aurarnir hringla í vasan- um, en stöndum svo einn góðan veðurdag frammi fyrir þeirri staðreynd, að við eigum ekkert til að kaupa fyrir í matinn. Þ. M HAFNARBIO Orabelgirnir Amerísk gamanmynd í litum. Rosalind Russell, Hayley Mills. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HASKOLABIO Eltingaleikurinn Brezk gamanmynd í litum frá Rank. tsl. texti. Aðalhlutverk Phil Silvers, Kenneth Williams Jim Dale. Sýnd kl. 5, 7 og 9. AUSTURB/EJARBIO Angélique og soldáninn Frönsk kvikmynd í litum. ísl. texti. Aðalhlutverk Michele Mercier, Robert Hossein. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 5 og 9. Ferðin ótrúlega (The Inncredible Joumey) Ný, kanadísk Walt Disney- mynd meö islenzkum texta. Sýnd kí. 5, 7 og 9. LAUGARASBÍÓ Madame X Amerísk kvikmynd f litum og með ísl. texta. Sýnd kl. 5 og 9. Gyðja dagsins Áhrifamikil, frönsk verðlauna mynd í litum, meistaraverk leikstjórans Luis Bunuell. íslenzkur texti. — Sýnd kl. 9. Bönnuö bömum. AðgöBgumiðasateö er qbíji frá kL 7. iBMfayfttfaiir ■- —-;

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.