Vísir - 30.12.1968, Blaðsíða 16
f
VISIR
Mánudagur 30. desember.
Konan alskar ilninn af
Maðurinn þekkir' gæðin.
InpnH 178 • Stai 21120 Reykjarili
ÁvaxtasaiS,
sem má.
Manfía
4 sinnum
með vatni
ÓboS'.nn gestur
JóSasveinar í hléinu
Leikrit Litla leikfélagsins, „Einu
sinni á jólanótt“ hefur nú verið
sýnt fjórum sinnum í Tjarnarbæ og
verður næsta sýning klukkan þrjú
á nýársdag. Leiknum hefur verið
sérlega vel tekið af áhorfendum.
Til þess að skemmta börnunum
í hléi munu íslenzkir jólasveinar,
sem koma fram í leiknum birtast
i anddyrinu og spjalla við krakk-
ana. Leikurinn hefur ekki síður
verið sóttur af fullorðnum en börn
m->- 13. síða
Gluggagægir i
handfekinn
*
,• Lögreglan handtók i fyrrinóttj
*,gluggagægi, sem haföi gert ibú-*
sjum í Bjarmalandi í Fossvogi ó-i
J»næði. Hafði einn ibúinn séð and J
■Jiiti hans bregða fyrir á glugg-*
■’anum hjá sér og gert lögregl-I
’,unni viðvart. ’
■J Maðurinn fannst á ráfi i ná->
/grenninu og reyndist vera und-I
■lir áhrifum áfengis. Viðurkenndi*
.Jhann að hafa gægzt á glugga*
J.eins hússins, en gat litla skýr-J
"lingu gefið á þessari hegðan>
I’sinni. I
■I ■
/ næturbeimsókn
Loftleiðavélarnar „mala gullið“ meðan þær fljúga fullar af farþegum. Lítið óhapp getur því kostað
mikla peninga.
Stökk í veg fyrir farartæki á ferð
og bjargaði skrúfuþotu
— Loftleiðir heiðra starfsmann sinn fyrir sérstakt snarræði
Loftleiðir heiðruðu einn starfs
mann sinn, Eyjólf Gíslason, sér-
staklega á þessum jólum. Fékk
hann sent málverk heim til sín
á aðfangadagskvöld sem viður-
kenningu frá félaginu, fyrir að
koma meö snarræði í veg fyrir
stórskemmdir á skrúfuþotu fé-
lagsins. Þetta gerðist skömmu
fyrir jólin.
Tildrög þessa atviks voru
þau, að rafknúin „trilla“ fór af
stað, þegar öryggispinni datt úr.
Þaut trillan eftir flugvellinum
með farþegatröppur í eftirdragi
og stefndi að einni skrúfuþotu
Loftleiða, sem stóð þar skammt
frá. — Eyjólfur var að vinna
við vélina og sá hvað verða
vildi, stökk hann að trillunni og
reyndi að stöðva hana með því
að kippa í öryggishemil, en
ekki stöðvaðist hún alveg við
það, stökk hann þá í veg fyrir
tækið og lagðist með öllum sín-
um þunga á móti því, þá stanz-
aði trilian loks og átti skammt
farið að væng vélarinnar, en
flugvélavængir eru mjög við-
kvæmir fyrir hnjaski og getur
tekið margar vikur að gera við
þá. Hefur Eyjólfur því bjargað
fyrirtæki sínu frá miklum skaða
með snarræði sínu.
■ í húsi einu i Bólstaðarhlíð varð fólki illa brugðið í nótt,
þegar það fékk — öllum að óvörum - óboðinn gest í heim-
sókn. Vissi stúlka ein í húsinu ekki fyrr til en ókunnugur
karlmaður var kominn inn í herbergi hennar.
----------------------------®
80 ATVINNULAUSIR
Selja flugelda til
að afla hjálpar-
sveitinni rekstr-
arf jár
• Skátar hafa opnað flugelda-
markaö tii að afla fjár til hjálp-
arsveitar sinnar. en beinn rekstrar-
kostnaður við sveitina á síðasta
ári var um 400 þús. krónur að
«ögn þeirra.
9 1 gær héldu skátarnir mikia
flugeldasýningu við Skátabúö-
ina á Snorrabraut, en þar er flug-
eidamarkaður þeirra til húsa. —
Fjöldi manns horfði á sýningu
beirra. $>•
Varð ekki á milli séð, hvoru
yrði meira bilt við, stúlkunni
eða manninum, þvi að hann forð
aði sér út aftur sömu leið og
hann haföi komið, þegar hann
varð stúlkunnar var, en hún aft-
ur á móti rak upp hljóð, sem
kvaddi á vettvang hina íbúa
hússins.
Þá var maðurinn á bak og
burt, en hann hafði komizt inn
um opnar svalardyr. Lögregl-
unni var gert viðvart, en þrátt
fyrir leit í nágrenninu fannst
maðurinn ekki.
A SAMA TIMA I FYRRA
373 karlar og 107 konur eru
nú skráð atvinnulaus í Reykja-
vík, eða samtals 480 manns. At-
vinnulausum hefur fjölgað í mán
uðinum um 126. Á sama tíma í
fyrra voru aðeins 3 karlar skráð
ir atvinnulausir, en engin kona.
Atvinnuleysið er mest meðal
verkafólks. 240 verkamenn og 72
verkakonur eru á skránni.
Fyrir mánuði voru tvinnulausir
272 karlar og 82 konur. Þessar töl
ur eru samkvæmt upplýsingum
Ragnars Lárussonar, forstöðu-
manns Ráðningastofu Reykjavíkur-1 bera á atvinnuleysi í höfuðborg-
borgar. Ragnar minnti á, að upp j inni en nú eru atvinnuleysingjar
úr áramótum í fyrra tók fyrst aö nær 500.
Kært yfir glunnu-
skup hestumunnu
Skátamir við afgreiðslu í flugeldasölunni.
Kona nokkur kærði tii lögregl-
únnar glannaskap hestamanna, sem
höfðu á iaugardag riöiö fram á
hana og tvö börn, þar sem þau
voru á gangi eftir Vatnsveituvegi.
Taldi konan hestamennina hafa
riðið háskalega nærri sér og börn-
unum og hafði hún þurft að bregða
snöggt við, til þess að forða börn-
unum, öðru 4 ára og hinu 7 ára,
undan hófum hestanna.
Kannaðist konan við annan mann
inn og gat gefið lögreglunni lýsingu
á honum, en málið er í frekari
rannsókn.
BÍLSLYS VIÐ
HLEMMTORG
• 56 ára gamall maður lenti fyrir
bifreið á gatnamótum Hverfisgötu
og Rauðarárstígs i gærkvöldi um
23.30 og fótbrotnaði. Að auki skarst
hann á höfði, en áreksturinn hafði
verið nokkurð harður, þótt sjónar-
vottar teldu, að bifreiðinni hefði
ekki verið ekið á óeðlilega mikl-
um hraða.
Bifreiðinni hafði verið ekið vest-
ur Hverfisgötu, en ökumaðurinn,
18 ára piltur, bar það eftir á, að
hann hefði ekki séð manninn, sem
gekk yfir götuna, enda var skyggni
slæmt.
Maðurinn lenti fyrir framenda
bifreiðarinnar, kastaðist á glugga
karm framrúðunnar og yfir þakið á
bifreiðinni, en síðan af henni aftur
að aftan.