Vísir - 30.12.1968, Side 13
V1SIR. Mánudagur 30. desember 1968.
73
Minning:
Guðbjörg Krist j ánsdóttir
í dag var jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, frú
Guðbjörg Kristjánsdóttir, á 96. ald-
ursári. — Það eru nú 13 ár síöan
ég kynntist frú Guðbjörgu, þegar
ég tengdist fjölskyldu hennar. Mér
verður það ætíð minnistætt þegar
ég sá hana fyrst, þessa fallegu konu
á peysufötunum, með þennan
hreina og bjarta svip, geislandi af
lífsfjöri, sem einstakt má telja með
konu á níræðisaldri. Ég ætla ekki
að rekja hinn merka æviferil frú
Guðbjargar, enda allsendis ófróö-
ur um hennar .langa ævidag, —
Það munu aðrir- gera. Þessar fáu
línúr eiga einungis að færa henni
þakkir okkar fyrir ógreymanlega
viðkynningu og allar samveru-
stundirnar. Hún var ein af því
fólkí sem gott er að vera með. Þeir
eru sannarlega hamingjusamir sem
gæddir eru þeim eiginleikum að
fegra og bæta umhverfi sitt, enda
eru þeir vafalaust ófáir, sem slíkar
minningar varðveita um þessa góðu
konu.
Frú Guðbjörg var ekki stór kona
í þeirri eiginlegu merkingu orðanna
en persónutöfrar hennar voru slík-
ir, að óvíða sást glæsilegri kona,
en þar sem Guðbjörg fór, — bein
í baki, kvik í hreyfingum. Hún var
glæsilegur fulltrúi íslenzku konunn
ar hvort heldur hún fór eftir einni
breiðgötunni á Manhattan, Strau-
inu, eða gekk bara niður Laugaveg-
inn.
Þau ár sem ég hef þekkt frú Guð-
björgu, hefur hún búiö hjá dóttur
sinni og tengdasyni í Garðastræti
11, þar sem hún var elskuð og virt,
sem og af öðrum er henni kynntust.
Guð blessi minningu þessarar
góðu konu.
J.B.G.
w* »5 rr í** ^
Góður árangur við jarðbor-
, i
amr a
BoraniP Jháfa .’gengiö mjög
vel að -uhdawförnu''á Reykja-
nessvæðinu, að því er ísleif-
ur Jónsson tjáði blaðinu í
morgun. Þar hafa verið bor-
aðar tvær holur með gufubor
síðan í október, en áður hafði
þar verið boruð minni hola.
Stærsta holan af þessum síð-
arnefridu er 1167 m á dýpt, og
hefur í henni mælzt meiri hiti
en nokkurri annarri borholu,
oða 283° C.
Hin holan, sem er 1036 m á
dýpt, var kláruð f síðustu viku,
og telur ísleifur Jónsson, að
hún sé jafnvel enn öflugri en
*sú fyrri. " ' '
Hann sagöi, að erfitt væri að
gizka á gufumagnið í holunum,
en kvaðst álíta, að þetta væru
öflugri holur en í Hveragerði
og þess vegna enn þá verðmæt
ari.
Eftir áramót er fvrirhugað aö
bora enn eina holu á Reykja-
nesi, og því næst kvaðst ísjeif
ur Jónsson vonast til að haf-
izt yrði handa í Kópavogi og
sömuleiðis fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur, svo aö þess gerð-
ist ekki þörf að leggja bornum
í vetur.
Sinffóníutónleikar
huidnir í kvöid
í kvöld mun sinfóníuhljómsveit-
in halda tónleika fyrir áheyrendur
sína eins og venia hefur verið um
jólin til þessa. Tónleikarnir eru
kl. 20.30 í Háskólabíói og mun Páll
P. Pálsson stjórna sveitinni. Á efnis
skrá eru þrjú verk, Serenata
Mozarts fyrir blásturshijóðfæri nr.
10 í B-dúr, cellókonsert eftir Bocc-
erini, en þar er Einar Vigfússon
einleikari og loks Pulcinella, svíta
eftir Stravinskí.
TIE Seigu
2ja herbergja íbúð i austur-
bænum. Tilboð sendist augl.
Vísis merkt „5113“.
Lýst eftir
manni
— kom fram
Lýst var eftir 35 ára gömlum
manni í gærkvöldi, sem saknað var
úr Kópavogi, en maðurinn kom
fram stuttu síðar, eftir að Kópa-
vogslögreglan hafði lýst eftir hon-
um í útvarpinu.
Þá hafði Reykjavíkurlögreglan
verið beöin um að svipast um eftir
dreng, sem saknað var á laugardag
en þegar lýst hafði verið eftir hon-
um, kom hann fram og hafði þá
verið staddur í húsi einu, ekki
fjarri heimiii sínu.
Litlu næfurgulcirnir
í Kristskirkju
Litlu næturgalarnir syngja í
Kristskirkju i kvöld. Hefst söngur
þeirra kl. 18.30.
Skrifstofustarf
Stofnun í Reykjavík óskar að ráða skrifstofustúlku nú
þegar. Góð tungumálakunnátta, færni í vélritun og
nokkur bókhaldsþekking nauðsynleg. Góð laun.
Umsóknir, er greini m. a. frá aldri, menntun og fyrri
störfum, skulu lagðar inn á augl.d. Vísis ekki síðar
en laugardaginn 4. jan. n.k., merkar „Fjölbreytt starf“.
Móðir okkar
SOFFÍA KJARAN
lézt að Landakotsspítala laugardaginn 28. desember.
Birgir Kjaran
Sigríður Kjaran
Eyþór Kjaran
Luusufé
Fjöliðjunnor á
uppboði
Nauðungaruppboð hefur farið
fram á lausafé Fjöliðiunnar á ísa-
1‘irði. Komu inn um 50 þúsund
krónur upp í vinnulaunakröfur, en
nokkur hluti lausafjárins er óseid-
ur og uppboöi á sumu var frestað.
Bæjarfógetinn á ísafirði upplýsti
í morgun, að ekki hafi verið beðið
um uppboð á húseignum.
Fjöliðjan á ísafirði hefur átt við
mikla fjárhagsörðugleika að stríða
i seinni tíð, en hún hefur sem kunn
ugt er, framleitt gler, sem selt
hefur verið víða um land. Rekstur
fyrirtækisins hefur mjög verið í
fréttum.
Jólasveinar
-> 16. síðu
um, enda mun hann ekki sízt snið-
inn við hæfi stálpaðra krakka og
unglinga. — Sem kunnugt er hafa
félagar Litla leikfélagsins sjálfir
samið textann, gert tjöldin og bún-
ingana fvrir þessa sýningu. Leik-
stjóri er Guðrún Ásmundsdóttir.
í leiknum kemur fram fjöldi kyn-
legra fyrirbrigða, svo sem jólasvein
ar, grýlubörn, álfar og dýr, sem
dansa í fjósinu.
Viðræöur 1969 um
sovézk-vestur-
þýzkan ekki-
órúsarsóttmóla
Wiliy Brandt utanríkisráðherra
Vestur-Þýzkalands sagði í gær í út-
varpsviðtaii, að hann vænti þess,
að viðræður yrðu teknar upp á
næsta ári um sovézk-vestur-þýzkan
ekki-árásarsáttmála.
Ráðherrann varaði við, að gera
sér of miklar vonir um árangur af
slíkum viöræðum.
Jólasteikin fékk
eðlilegan struum
Jólasteikin fékk hvarvetna full-
an hita þessi jólin. Álag á raf-
magnsveitunni i Reykjavík var
að minnsta kosti óvenju litið á
aðfangadag, að því er Aðai-
steinn Guöjohnsen, rafmagns-
stjóri sagði í viðtali við Vísi í
gasr. — miklu minna álag en
búizt var við. — Ástæðan er
sjálfsagt blíðviðrið. Það hefur
hvergi þurft aö bregða upp raf-
magnsofni til þess að auka hlýj-
una á jólahátíðinni.
Hins vegar varð mesta álagið
nokkrum dögum fyrir jól, í
kuldakastinu. — Kannski eru
húsmæður orðnar þetta forsjál-
ar að sjóða hangikjötið nokkr-
um dögum fyrir jól.
í fvrra var mesta rafmagnsnotk
un ársins á gamlárskvöld. Búizt
er við, að svo verði jafnvel enn.
Enda lifir þá ljós í hverju skoti
að gömlum sið. Rafmagnsveit-
an framleiöir þá svo mikið Ijós-
magn, sem kostur er á — til
þess að Iýsa álfum meðan þeir
flytja búferlum væntanlega, svo
sem trúað var í gamla daga —
og trúa má enn.
Hættiö að
reykja!
Við lestur bókarinnar „Hvemig
hætta á að reykja“ eftir Her-
bert Briean, hætta allir að
reykja. — Nú er allt tóbak ný-
hækkað og maður sem reykir 1
pakka á dag, sparar milli 15
og 20 þúsund krónur á ári ef
hann hættir.
En það ábyrgjumst við að þér
gerið með því að bjóða yður
bókina á kr. 100, sem þér fáið
endurgreiddar, ef þér ekki hætt
ið eftir lestur hennar.
Hringið í síma 19828 og bókin
verður keyrð til yðar, yður að
kostnaðarlausu.
VIN. Tékkneski rithöfundurinn
Pavel Kohout hefur tekið upp hanzk
ann fyrir Josef Smrkovskí, forseta
tékkneska þjóðþingsins, sem nú á
á hættu að verða vikið úr embætti
vegna þrýstings frá öflum vinveitt-
um Sovétmönnum.
Konhout hvatti til þess, að Smrk-
ovskí héldi embætti sínu, og var-
aði slóvakska þjóðernisstefnumenn
við að brjóta þau lög, sem sjá þeim
fyrir jafnrétti í sambandsríkinu
Tékkóslóvakíu.
ATLANTA. Helmingi fleiri hafa
látizt af völdum inflúensufaraldurs
í Bandaríkjunum heldur en eðlilegt
er. Orsökin er Hongkong-inflúens-
an svonefnda eða Maó-flensan, sem
hefur reynzt mun skæðíi heldur
en ráð var fyrir gert í upphafi.
TÓKÍÓ. Samningur um^ smiði
367.000 lesta olíuskips hefur verið
undirritaður í Tókíó. Skipið á að
afhenda árið 1971, og mun það
kosta um 25 milljónir dollara. Það
verður 345,5 metra langt, 54,3 m
breitt og ristir 27 m.
STULKA
eða kona óskast til að gæta
2ja telpna, 1 og 2 ára. -
Uppl. í síma 17422 og að
Laugavegi 70 B.
Ibúðir til sölu
Simar 20424
14120
2ja herb. nýstandsett íbúð f
Kópav. Verð kr. 400 þús., útb.
kr. 150 þús., laus strax.
3ja herb. risíbúð með svölum
við Skúlagötu.
3ja herb. nýstandsett íbúð
með nýjum teppum í steinhúsi i
gamla bænum.
5 herb. íbúð með tvennum
svölum í Grænuhlíð.
4ra herb. íbúð við Skaftahlíð
skipti á minni íbúð koma til
greina.
Ný 6 herb. sérhæð í Kópavogi
mjög gott verð, skipti á 2ja
herb. íbúð sem gæti verið sem
útborgun.
Fokheld glæsileg 5—6 herb.
sérhæð með bílskúr í Kópavogi
útb. kr. 200 þús.
Hef mikið úrval af ein-
býlis og raðhúsum í smíð
um og fullgerðum, sem
skipti koma til greina
með.
Fasteignamiðstöðin
Austurstræti 12
Símar 20424 og 14120
Heimasími 83974.
Á