Vísir - 04.10.1968, Qupperneq 3
V í SIR . Föstudagur 4. október 1868.
3
Smám saman mótast skipið í höndum smiðanna. Innan
sett og síðan á hún eftir að færa Súðvíkingum björg í bú.
Skip í smíðum á fsafirði
Fyrsta stálskipið, _:m smíöað
er í skipasmíðastöð Marselíusar
Bernharðssonar á ísafirði er nú
langt komið. Gengið hefur verið
frá bol skipsins, yfirbygging er
langt komin og byrjað er að
innrétta bað og setja niður vél-
ar.
Þetta er 41. nýsmíði skipa-
smíðastöðvarinnar og fer hún
fram í nýiu húsi, sem byggt
var sérstaklega fyrir stálskipa-
smíðar. Þar er hægt að smíða
alit að 300—350 tonna skip.
-O-
Skip það sem nú er unitið við
i stöðinni er tvö hunclruð rúm-
lestir að stærð og er það smíð-
að fyrir útgerðarfélagið Þor-
grim á l úðavík. Kemur þetta
skip í stað vélskipsins Trausta,
sem fórst í vetur.
Vinna við smíðina hófst í jan-
úar i vetur, og var meiningin að
skipið verði tilbúið fyrir vetrar-
vertíð í vetur. Við smíðina hafa
unnið 15—20 manns. Gera ís-
firðingar sér vonir um, -að stál-
skipasmíðar geti orðið nokkur
atvinnubót í bænum í framtíð-
inni. Hins vegar hefur skipa-
smíðastöðinni ekkert tilboð bor-
izt ennþá um nýsmíði, en skipi
þeirra Súðvíkinga má hleypa af
stokkunum hvenær sem væri,
þar eð nú er aðeins eftir að
setja í það.vélar og tæki.
-O-
Skip betta er gert eftir fyrir-
sögn skipstjóra og útgerðar-
manns, frumteikningar eru eftir
Hjálmar R. Bárðarson, skipa-
skoðunarstióra, en vinnuteikn-
ingar og aðrar frágangsteikning
ar eru gerðar hjá skipasmíða-
stöðinni sjálfri.
Skipið verður búið til svo að
segja hvaða veiða sem er, síld-
veiða, togveiða, línu- og neta-
veiða. I því verða að sjálfsögðu
öll nýjustu tæki, sem fáanleg
eru á markaðinum um þessar
mundir.
-O-
Auk skipasmíðastöðvarinnar á
Járniö sindrar undan heiturr Ioga rafsuðutækjanna. Það fara
glampar iíkt og af eldingum um vinnusalinn. Guðmundur
Guðmundsson er þarna með rafsuðutæki uppi við hekkið.
ísafirði var fyrir nokkrum árum
gerður slippur, sem getur tekið
allt að 400 tonna skip til við-
gerðar og er það mikill hægðar-
auki fyrir Vestfirðinga að hafa
slikt fyrirtæki við höndina fyr-
ir hin stærri fiskiskip sín, sem
annars hefði þurft að fara með
til Reykjavíkur, ellegar til Akur-
eyrar.
Charles Pétursson, verkstjóri ásamt Reyni Péturssyni, járn- Marselíus Bernharðsson.
smíðanema að athuga teikningar.
Skúli Þórðarson, skipasmiður. - Hcfur fengizt við þessa Iðn
í mörg herrans ár og hefur lagt hönd á smíði margra skipa,
bæði af tré og járni.