Vísir - 04.10.1968, Qupperneq 4
s
WH
'ltafir banna Kristinu
prinsessu oá aug-
lýsa Sviþjób
Nú er aumingia Christina prins
essa Svía leiö í skapi. Yfirvöld
á ftaliu banna henni að reka á-
róöur, eins og þau kalla það, fvr
ir land hennar, Svíþjóð. Vettvang
urinn var kvikmyndahátiðin mikla
í Sorrento. Kristín litla ætlaði að
gera nafn lands síns víðfrægt, á-
samt nokkrum „pop“tónlistar-
mönnum og öðru ungu fólki. —
Sænsk yfirvöld höfðu gefið henni
leyfi til þessa. Sérstaklega hafði
prinsessan hlakkað til þess að
losa sig við hinn hátíðlega svip,
sem hennar tign sæmir venjulega.
Til skjalanna komu ítalir og
sögðu, að það væri nú einu sinni
svo, að konunglegt fólk fengi ekki
að hegða sér þannig á Ítaiíu. ítal
ir sögðu sem svo: Úr því, að
Kristín ætlar að hafa í frammi
áróður, þá er ekki hægt að segja,
að „prinsessan" komi fram á há-
tíðinni. Hvað sem þeirri röksemda
færslu iíður, þá verður ekki af
því, að „hið unga Sviaríki" verði
kynnt fyrir ítölum að þessu sinni.
„Menn verða að fylgja almenn-
um reglum um komur tignra
gesta“, segja arftaka hinna fornu
Rómverja. Það er jafnmikilvægt
og orð Biblíunnar. Borgarstjórar
verða að fá að hneigja sig fyrir
prinsessunni. Herm. og lögregla
verða að vera nærstödd. Einnig
leynílögreglan. Prinsessan yrði að
búa í virðulegu gistihúsi og ekki
með alls kyns ungu fólki. — í
staðinn fyrir allt þetta var nú
send til Sorrento mynd af Svía-
konungi og prinsessunni skelli-
hlæjandi. Átti hún að vera til sýn
is í sýningargluggum vegna há-
tíðarinnar. Þetta leizt þeim þar
suður frá heldur ekki of vel á.
Nú hafa þeir hirðmyndir af þeim
Kristínu og afa hennar. Kristín
hafði sig lítið í frammi í Sorrento
og ferðaðist um óþekkt að mestu,
til dæmis til eyjunnar Capri. Hún
kom ekki fram sérstaklega, og
ítölsk æska er ósnortin af hinu
ljúfa lífi þeirra norður í Sviþjóð.
Sophia Loren
einangruð í 3
mánuði fyrir
barnsburð
Hefur fjórum sinnum missf fóstur
1 þrjá mánuði hefur Sophia Lor
en, sú ítalska, verið einangruð
frá öllum öðrum en eiginmannin
um, Carlo Ponti, einkaritara sín
um og lækni. í tuttugu klukku-
sttundir á dag liggur hún fyrir í
rúminu í hljóðeinangruðu her-
bergi. Herbergishitinn er 22 gráð
ur. í tvær stundir gengur hún
um garöinn og dáist að blómun-
um og litlu fuglunum. Hún er í
matarkúr. Hvers vegna allt þetta
umstang? Leikkonan á von á
barni. Þegar síðast fréttist var
það enn ófætt, og leikkonan ein-
angruð.
Þetta var ekki að ástæðulausu.
Á ellefu árum hefur hún fjórum
sinnum misst fóstur. Nú vill hún
veröa ,,sönn“ kona og móðir.
Læknarnir telja hana geta átt
böm, og hún biöur forsjónina, að
svo megi til takast. Hún segir, að
því hafi verið spáð, að hún mundi
eignast tvö börn. Þó vill hún,
kona frá hinni barnmörgu Napólí,
hafa í kringum sig herskara hrín-
andi barna. Þá fyrst verður hún
ánægð.
Sophia hefur nú staöizt fimmta
mánuö meðgöngutímans, er venju-
lega hefur reynzt henni erfiðastur.
Nú bíða menn og sjá, hverju ein
angrunin fær áorkað.
Endurfundirnir.
Romy Schneider
og Alain Delon
aftur í kær-
leikum
Þau leika enn hinn sama leik,
sem fyrr, leikkonan Romv
Schneider frá Austurríki og leik-
arinn Alain Delon frá Frakkiandi.
Á ég eða á ég ekki? Réttara
sagt, þau hafa tekið til við leik-
inn, þar sem þau hurfu frá fyrir
fimm árum.
Þá endaði sólarsagan með því,
að Alain yfirgaf aumingja Romy
morgun einn í París. Á borði
hennar lá aðeins rós og bréf. Fugl
inn var floginn. Alain Delon
gekk að eiga Nathalie nokkra. Nú
er hún farin að leika, og þá finnst
Alain e. t. v. réttast að yfirgefa
hana lika, svo að lífið verði ekki
of fábreytilegt.
Á sama hátt giftist Romy
Schneider þýzka kvikmyndaleik
stjóranum Harry Meyen.
Nú gerðist það héma um dag-
inn, að þau hittust aftur Romy og
Aiain. Þetta varð í Nizza í Frakk
landi. Að vísu hét það svo, að
þau væru þar tii að leika í nýrri
kvikmynd. Hjónaband þeirra
Romy og Harry Meyen kom ný-
Iega í hendur lögfræðinga og skiln
aður virðist yfirvofandi. Sennilega
er samband austurrísku stúlkunn-
ar og Frakkans enn ekki of ryðg-
að. Sögur herma, aö þau ætli að
taka saman aftur.
Endurfundirnir voru innsiglað-
ir opinberlega með kossi. Alain
Delon er nú þrjátíu og tveggja
ára, og Romy Schneider er þrjá-
tíu. Á flugvellinum lék hljóm-
sveit lagið um ástina, marglofuðu
„Love is a many — splendored
thing.“
I
s
i
:
Um samkvæmisklædda
ferðalanga
Það gerist á hverju hausti,
þegar fyrsti haustbylurinn skelí
ur á, að til vandræða kemur á
fjallvegum, ekki elnungis vegna
þess að bflar festast vegna
snjóa, heldur og vegna hins, að
ferðalangar sem í bilunum eru,
eru margir hverjir svo illa klædd
ir, að við slysum liggur. Fólk
ferðast um fjallvegi samkvæmis
klætt og án þess að hafa með-
ferðis nokkra flík sem yfirhöfn,
ef eitthvað bjátar á. Að bilar
séu keðjulausir, þegar fyrstu
haustbyljir skella á, er algengt,
þó reynslan ætti að vera búin
að kenna mönnum, aö allra
veðra sé von, og þvi nauösyn að
búast þannig af stað, að erfiö-
leikum geti verið að mæta.
Annars segja þeir, sem ot't
ferðast um fjallvegi landsins, að
fólk sé furðu illa útbúið á ferða
lögum um fjallvegi, allt áriö um
kring. Eina sögu hef ég heyrt
um einstakt fyrirhyggjuleysi,
er gerðist fyrir fáum árum. Hóp
ur feröafólks var á leið yfir
ekki lengi í gangi vegna hríðar,
var ekki talið ráðlegt, að fólk
léti fyrirberast í þeim vegna
kuldans, og talið skynsamlegt
að fara til sæluhússins, sem
væri um stundarfjórðungs gang
á stóð. Var stúlkan miður sín
af kulda, begar komið var í
sæluhúsið. Ekki var neitt aflögu
af fatnaði, nema einn mið-
aldra maður í hónnum var svo
vel búinn, að hann var í síðri
Holtavörðuheiði í nokkrum bif-
reiðum, sem fylgdust að. En svo
varð það, sem svo oft verður á
þessari leið, að bílalestin varð
að láta staðar numið vegna
snjóa, því hríðarveður skall á
Bílalestin var þá stödd skammt
frá sæluhúsinu á há-heiðinni.
Þar eð suniir bílannn héldust
í burtu. Héldu feröalangarnir
hópinn og klofuðu snjóinn und-
ir forustu bílstjóranna.
Ein stúlkan var mjög illa á
sig komin vegna kulda, bví hún
var einungis klædd nælonfatn-
aði yzt sem innst, og bar að
auki í háhæluðum skóm, seni
vægast sagt hentuðu illa, eins og
baðniullarbrók og ullarbrók þar
utan yfir og siðan utanyfirbux
um. Þegar hann hafði látið uppi
um sinn ágæta búnað, þótti vart
annað fært en að hann Iéði stúlk
unni aðra brókina, sem hún fór
í utan yfir nælon-piattið.
Ileitt kaffi í sæluhúsinu og
iijálpsemi ferðafélagans átti
vafalaust sinn þátt í því, að
þetta fyrirhyggjuleysi stúlkunn-
ar, að útbúa sig ekki betur til
vetrarferðar, varð ekki til að
valda henni alvarlegum eftir-
köstum.
Fyrirhyggjuleysi ferðafólks,
sem íeggur á fjallvegi, þegar lið
ur að hausti, er allt of algengt.
Fólk snarast út í bílana og ger
ir r' ki ráð fyrir, að neitt geti
fyrir bílana komið, sem tefji
förina. Furðu margir virðast
ekki hafa lært bað, að fljótt skip
ast veður í lofti hér í landi
okkar, svo að hyggilegast er að
búa sig samkvæmt því.
Ferðalangar geta vart búizt
við því, að samferðamennimir
séu almennt svo vel aflögufærir,
eins og sá sem þrí-bróka var og
fyrr er getið. Þess vegna ætti
hver um sig að útbúa sig eins
og hentar aðstæðum okkar og
veðurfari.
Þrándur i Götu.