Vísir - 04.10.1968, Síða 5
V1SIR . Föstudagur 4. október 1968.
Blóðmör og lifrarpylsa
— og geymsla jbess i frysti
Þær, sem vilja safna forða til vetrarins kaupa slátur.
Clátrun er hafin og nú er ein-
° mitt kominn tfminn trl að
birgja sig upp af matvörum fyr-
ir veturinn. Margar hafa hugsað
sér að eiga vetrarforða og má
búast við því að jafnvel yngri
húsmæður hugsi sér að taka
slátur núna. Verðlag fer hækk-
andi og margar hafa eignazt
nýja geymslu, sem er frystirinn.
Við gefum því uppskriftir í dag
aö blóðmör og lifrarpylsu, tekn-
ar upp úr hússtjórnarbókinni.
Blóðmör
1 1. blóö
2 dl. vatn
y2 msk. salt
300 g hafragrjón
400—500 g rúgmjöl
um 750 g mör
vambir
Hreinsið vambirnar. Dýfið
þeim í heitt vatn, og skafið burt
öll óhreinindi bæði utan og inn-
an, skolið þær vel og látiö þær
liggja í köldu vatni.
Sníðið 4-6 keppi úr hverri
vömb, og saumið þá með frekar
grófu baðmullargarni.
Skiljið eftir vænt op, og legg
ið keppina í kalt vatn.
Takið eitlana úr mörnum, og
brytjið hann.
Síið blóðið, og blandið salti
og vatni í það.
Hrærið hafragrjónunum út í
og síðan rúgmjölinu.
Hrærið vel í með hendinni eða
sleif.
Hrærið síðan mörnum seman
við.
Takið keppina upp úr vatninu
og strjúkið vætuna af.
Fyllið keppina rúmlega til
hálfs með blóðhrærunni.
Saumið fyrir og pikkið kepp-
ina.
Látið keppina í sjóðandi vatn
(V2 msk. salt í hvem lítra
vatns). Látið einungis fáeina
keppi út í vatnið í einu, svo að
suðan komi fljótt upp,
Pikkið keppina með nál, um
leið og þeim skýtur upp.
Snúið keppunum við, meðan
þeir sjóða.
Hafiö rúmt í pottinum, og gæt
ið þess, að suðan sé hæg og
jöfn. Suðutími 2 — 3 klst.
Látið slátrið kólna i soðinu,
þar til allir keppimir eru sókkn-
ir.
Fleytiö soðið, og færið slátrið
upp á bretti eða bakka, svo að
renni vel af því.
Tilbreytni:
Berið heitan blóðmör fram
með soðnum gulrófum eða gul-
rófustöppu.
Kælið blóðmör í köldu vatni,
eigi að geyma hann.
Berið fram kaldar blóðmörs-
sneiðar með hafragrairt, hrls-
grjónagraut eða hrísgrjónavell-
ingi.
Steikið kaldar blóðmörssneið-
ar í sláturfloti, tólg eða smjör-
líki á pönnu.
Geymið blóðmör í sýru á köld-
um og rakalausum stað.
Skákmenn
Firmakeppni Skáksai-bands íslands (hraðskákmót)
vsa-öur haldið í Skákheimilinu að Grensásvegi 46 n.k.
laagardag 5. okt. kl 2 e.h. — Mætið stundvíslega.
Stjóm Skáksambands Islands.
Unnt er að sjóöa slátur i
sellófan. Vefjið seHófanið þétt
utan um blóðhræruna, og bind-
ið fyrir endana.
Lifrarpylsa
450 g lifur
100 g nýra
3 dl mjólk eða kjötsoð
y2 msk. salt
100 g hafragrjón
100 g hveiti
300 g rúgmjöl (eða rúgmjöl
og heilhveiti)
300 — 400 g mör
vambir
Þvoið lifur og nýru, og takið
himnurnar af.
Skerið nýrun í tvennt að endi-
löngu, og hreinsið þau.
Skerið grófar æðar úr lifrinni.
Hakkið lifur og nýru tvisvar i
hakkavél.
Blandið mjólk og salti í.
Hrærið hafragrjónum, hveiti
og rúgmjöli saman viö. Blandið
mörnum saman viö.
Lifrarhræra á að vera mun
þykkari en blóðmörshræra.
Setjið hræruna i vambakeppi
og sjóðið eins og blóðmör.
Suðutími 2—2y2 klst.
Tilbreytni:
Berið lifrarpylsu fram eins og
blóðmör, nýja eða súra.
Frysting sláturs
(blóðmör og lifrarpylsa)
Frysta má slátur hrátt eða
hálfsoðið.
Frystið það strax og það er
tilbúið í vambarkeppunum, ef
það er hrátt, svo að blóðið renni
sem minnst úr því.
Búið um slátrið í plastpokum
og pappaöskjum til hlífðar.
Sé slátrið hálfsoðið eða soöið,
áður en það er fryst, er auðveld-
ara að búa um það til frysting-
ar.
Látið keppina frosna I pott-
inn og sjóðið þá tilskildan tíma,
áður en þeir eru bornir fram.
Frysta má blóð, mör og vamb
ir hvert í sinu lagi og gera slát-
ur, þegar hentar. Helliö blóðinu
I áldósir eða plastilát (jafnvel
glerkrukkur). Blóð þenst út við
frystingu, svo að ekki má fyMa
ílátin.
Búið um mörinn í plastpoka,
áður en hann er frystur.
Hreinsið vambimar vandlega,
áður en þær eru frystar, og
búið um þær í plastpoka. Hafið
góðar ytri umbúðir.
Geymsluþol í frysti við 18
gráða frost eru 6 mánuðir fyrir
blóðmör og lifrarpylsu en 9
mánuðir fyrir blóð.
Hand- og list-
iðnaðarsýningin
Aðeins 3 dagar eftir.
Norræna Húsib
Hannyröanámskeið
er haldiö á vegum Hannyrðabúðarínnar á Lauga-
vegi 63. hófst 1. október. Myndflos, glitsaumsteppi,
svo' sem „Sofðu rótt“ „Vetrarferf “, landslagsmyndir,
Krýningin o.m.fl. Ryateppi, smymateppi ásamt fi&iri
handavinnu, sem fæst í búoinni. Innritun í verzlunino'
daglega.
SOLBRA
Laugavegi 83.
Kuldaúlpur á skólabörn.
föng í úrvali.
— Unglingafatnaður - Leik-
FRAMLEIÐENDUR:
TIELSA, VESTUR-ÞÝZK
GÆÐAVARA OG
JÓN PÉTURSSON
HÚSGAGNA‘
FRAMLEIÐANDI
láláláláláláEáláEáláláEálálálálániiiláEáSálá
lELDHtJS- |
| MBIMDMBI
EIIáláláEálalálálálaláEálalála
% KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI
# STAÐLAÐAR
EÍDHÚSINNRÉTTINGAR
ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI
OG ÖLL TÆKI FYLGJA
% HAGKVÆMIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
EáláEá
ODDUR HF
UMBOÐS-
OG HEILDVERZLUN
KIRKJUHVOLI
SÍMl 21718 og 42137
FULLKOMIÐ SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI
TEKUR ALLS KONAR KLffiÐNlNGAR
FL4ÓT OG VÖNDUÐ VINNA
ÚRVAL AF ÁKLŒÐUM
LAUðAVEG 62 - SlMI 10625 HEIMASIMISS6M
Reykjavikurdeild Rauða kross Islands:
Námskeið í skyndihjálp
fyrir almenning hefjast fimmtudaginn 10. okt.
n.k. Kennt verður eftir hinu nýja kennslu-
kerfi í skyndihjálp, m.a. blástursaðferðin, með
ferð slasaðra o.fl Vinsamlegast tilkynnið þátt
töku í síma 14658 hið fyrsta. — Hópar og fé-
lög, sem óska eftir kennslu í skyndihjálp í vet-
ur eru beðin um að endurnýja beiðnir sínar
sem fyrst.
Reykjavíkurdeild R.K.Í.
BOLSTRUN
Svefnbekkir í úrvali á verkstæöisverði
TÆKIFÆRISKAUP
Höfum nýfengið ROTHO hjólbörur, kr
1185—1929, v-þýzk úrvalsvara, einnig úr-
val af CAR-FA toppgrindúm, þ. á m. tvö
földu burðarbogana vinsælu á alla bfla
Mikið úrval nýkomið af HEYCO 0« D>URO
bíla- og vélaverkfærum, stökum og i sett-
um, einnig ódýr blöndunartæki, botnventlar og vatnslásar. Strotejám kr
405. — Málningarvörur. — Allar vörur á gamla veröinu. — Póstsendum
INGÞÓR HARALDSSON H/F, Grensásvegi 5, slmi 84845.