Alþýðublaðið - 09.01.1966, Page 5
Benedikt Sröndal:
tJM iffELGlNA
Þyrlur flytja farþega milli
Manhattan og flugvallar
Hinn 22. des. sl. hófust áætlun
arferðir með þyrlum milli Pan
Am byggingarinnar í miðri New
York borg og J.F. Kennedy flug
vallarins. Ferðin tekur aðeins 7.
xnínútur en eins og þeir vita sem
reynt hafa, getur þessi ferð í bíl
tekið 1—2 tíma og stundum leng.
ur ef umferðin er mikil,
Það er flugfélagið „New York
Airwais“ sem annast þetta flug
á vegum Pan American. Farnar
eru 17 ferðir á dag — í sambandi
við ferðir Pan American frá J. F.
Kennedy flugvelli.
Þessi flugferð kostar kr. 300.00
fyrir aðra leiðina — en kr. 430.00
báðar leiðir, en það er minna en
kostar að aka í leigubíl þessa sömu
leið.
Farþegar sem fara frá New York
aka að sér.,talcri afgreiðslu í Pan i
Am byggingunni. Hraðfara lyftur
flytja fa'rþegana upp á 58 hæð i
Pan Am byggingunni, en þaðan
eru nokkur skref út á þak þygg
ingarinnar þar sem þyrlan stend
Ur tilbúin til flugs. Þegar þyrlan
lendir við byggingu Pan Am á flug
vellinum ganga farþegar beint
uiji borð í þotuna sem flytur þá
frá New York.
Þegar farþegar Pan Am koma
til New York og hafa lokið toll
skoðun er þeim ekið beint að þyrl
unni sem flytur þá á 7 mínútum
til miðborgai-innar og lendir með
þá á þaki Pan Am byggingárinnar
á miðri Manhattan.
Þessi þyrlu-flugvöllur — þakið á
Pan Am byggingunni — er rúm
lega 23 þúsund ,,Square“ fet á
stærð og er í 800 feta hæð frá
götu.
Þess má að lokum geta að ís-
lenzkir farþegar Pan Am geta að
sjálfsögðu keypfc s|ína þyrlu-far
Framhaid á 10. síðu.
KYNNING A FRAMLEIÐNI-
AUKANDILAUNAKERFUM
í nútima atvinnurekstri gegna
iaunagreiðslukerfi mikilvægu hlut
verki. Reynsla síðustu ára hér-
lendY hefur sýnt að tilhögun á
launagreiðslukerfum getur ráðið
miklu um samkeppnishæfni ein
stakra fyrirtækja. í því efni getur
verið 'um ýmsar leiðir að ræða,
eftir aðstæðum, og verður að telj
ast mikilvægt, að forstöðumenn
fyrirtækja 'hafi öðlazt svn yfir
það, lrvaða leiðir eru færar í
•þessum efnum.
Það htfur orðið að ráði, að Iðn
aðarmálastofnun íslands í sam-
vinnu við Industrikonsulent A/S
boði til kynningar á framleiðniauk
'andi launakdrfum dagafca 3—5
febr. n.k. Á dagski-á fundar verða
m. a. tekin fyrir eftirfarandi at-.
riði:
Helztu leiðir til aukningar fram
leiðni í atvinnurekstri, Kynning
vinnurannsókna, Algengustu
launakerfi, Uppbygging ákvæðis
kerfa, Ákvörðun launahlutfalla,
Launakerfi fyrir störf í hjálpar
deildum, Launakerfi fyrir verk-
stjóra, Viðiiald launakerfa, Dæmi
um launakerfi í notkun liérlendis.
Fyrirle'arar verða sérfræðing
ar frá IndUsfcrikonsulent A/S og
Iðnaðarmálastofnun íslancls. Þessi
kynning er ætluð fyrir forstöðu
menn fyrirtækja og nánustu sam
starfsmenn þeirra.
Allar nána~i upplýsingar og um
sóknareyðublöð er að fá í Iðnað
armálastpfnun íslgnds, Skipholti
37..Umsóknarfrestur er til. 24. jan
úar n,k.
(Fréttatilkynning frá IMSÍ.)
Hvað verður um
íslenzku blöðin?
RÉTT FYRIR JÓL fór fram í sænska þinginu í Stokkhólmi um-
læða um frumvarp stjórnarinnar um opinberan styrk til stjórn-
málaflokka. Var tillagan samþykkt með 240 atkvæðum gegn 76 og
munu því 23 milljónir sænskra króna renna til flokhanna á ári, en
mesb af því fé fer til flokksblaða.
Svíar eru önnur þjóðin í Vestur-Evrópu, sem tekur upp slikt
kerfi, en fyrstir voru Vestur-Þjóðverjar undir stjórn kristiiegra
demókrata. Áratuginn 1954—64 hættu 54 blöð
útkómu I Svíþjóð, þar af aðeins 10 blöð jafn-
aðarmanna. Þeir hafa þó misst stærstu blöð
síri, nú síðast Stockholms-Tidningen, stórblað
með 140.000 eintaka útbreiðslu.
í umræðum sænska þingsins sagði Tage
Erlander forsætisráðherra meðal annars, að
hlutverk stjórnmálaflokka sé að leiða umræður
landsfólksins á þann hátt, að allir fái sem
skýrasta hugmynd um stefnu hyers flokks og
viðhorf til þeirrar framvindu þjóðmála, sem er
á næsta leyti. Þess vegna hafi flokkarnir og
málgögn þeirra meginþýðingu fyrir lýðræði i
landinu.
Vandamál blaða eru alvarlegust, þar sem
; þau hafa verið flokkspólitísk í marga manns-
aldra, eins og á Norðurlöndum. í Bretlandi, Bandaríkjunum og jafn-r
vel Vestur-Þýzkalandi eru blöð þjónustufyi’irtæki, þar sem heiðar-
legar frásagnir eru birtar af ræðum og gerðum manna úr öllum
flokkum eftir fréttagildi, og greinar birtast hlið við hlið eftir menn
úr mismunandi flokkum. Þar sem slík blaðamennska er ekki, til,
verður að telja hættulega þróun, er blöð deyja unnvörpum, og
flokkur situr uppi með blaðaeinokun.
Hér á landi er þetta mál aðkallandi og hefur verið rætt alvar-
lega af ráðamönnum sumra flokkanna um hátíðirnar. Síðustu miss-
eri hafa bæði verðbólga, tækni og aðrir þættir blaðarekstrar þróazt
svo, að kostnaður við útgáfu dagblaða hefur aukizt mun meira en
bægt er að auka tekjur blaðanna. Þjóðviljinn er verst staddur og
sagði upp öllu starfsfólki sínu um áramótin. Vísir, Alþýðublaðið og
Thninn eru ekki langt á eftir. Getur svo farið, að öll þessi blöð
verði að draga seg'in saman, en veldi Morgunblaðsins nálgist æ meir
einokun.
íslenzka þjóðin verður að gera upp við sig, livort hún telur á-
stæðu til að gefa út dagblað fyrir hvern flokk. Fjárhagslega ,er
þetta ekki mikið mál á alþjóðarmælikvarða, — minna en velta eins
skemmtistaðar í Reykjavík. Mundi það efla lýðræði og skoðapa-
myndun í stjórnmálum, listum, kjarabaráttu og á öðrum sviðum, et-
Morgunblaðið væri eina dagblað landsins, með Vísir sem síðdegisút-
gáfu? Eða skapar fjölbreytnin okkur þá útrás og fullnægingu, sem
veitir íslenzku iýöræði þrótt og líf?
ISTálið er komið á það stig, að foringjar flokkanna geta ekkl
longur haldið blöðunum úti með liappdrættum og einkastyrkjumt-4~.
því, foisfc stórhætta á óeðlilegum áhrifum peningamanna eða jafnvel
erlendra aðila. Þessa fjötra verður að leysa af íslenzkri pólitík, ef
hún á að heita frjáls og eðlileg.
Undanfarnar vikur hefur verið rætt um ýmsar leiðir til að
leysa þetta mál. Ein er hið sænska kerfi, ríkisstyrkur til þeirra'
flokka, sem eiga fulltrúa á Alþingi, mismunandi eftir þingmanna-
fjölda. Þá mundu þeir fá mestan styrk, sem minnsta þörf hafa fyrir
liann.
Önnur hugmynd er um að leggja skatt á auglýsingar, láta hann
reima í sjóð, sem styrkti þau blöð, er eiga í erfiðleikum. Þetta þýðir,
að briðjungur af auglýsingatekjum Morgunblaðsins væri tekinn fcil
að greiða hallann af Þjóðviljanum, Timanum, Alþýðublaðinu og Vísi. i
Þriðja hugmyndin er að leggja 25% gjald á allt innflutt, prentsð
mál: Það gjald mundi vega á móti tolli á bókapappír og bókbands-
efni og jafna aðstöðu erlendra og innlendra bóka og blaða á mark-
laðii Gjaldið ætti ásamt tolltekjum af blaðapappír að leggja í dag-
blaðasjóð. Sá sjóður gæti aðstoðað þau dagblöð, sem sanna með
umsókn og reikningum, að þau eigi við fjárhagsörðugleika að sti'iða.
Aðalatriðið- er, að þetta vandamál er komið á svo alvarlegt stig,
að bað krefst lausnar áður en langt líður. Umræður um þær ráð- .
, st.af.anir, sem að cfan getur, Iiafa farið fram í fyllstu alvöru. Þettti
er að sumu leyti hvimleitt mál, en lengur verður ekki unnt Í9
stinga hausnum í sandinn. -, ,ct
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. janúar 1966